Læknaneminn - 01.08.1976, Side 15

Læknaneminn - 01.08.1976, Side 15
Sjúkdómar lengdir göllum í gleyplum eingöngu hafa enn ekki fundist með vissu (sjá þó Wiskott- Aldrich sjúkdóm). Vitað er um eina fjölskyldu með alvarlega áunna fækkun gleypla. Helslu einkenni þeirra voru krónískar sveppasýkingar, endurteknar sýkingar í brjóstholi og risastórar vörtur. Skortur B- oí/ T-citilfrinnna (com- hined ímtnuniíti tíeficiencti; Ttilmi D) Því hefur verið haldið fram að skortur á bæði B- og T-eitiIfrumum sé orsök allt að 10% af ungbarna- dauða. Tvö afbrigði eru tengd X-litningi, en hið þriðj a er víkjandi og tengt A-litningi. Orsökin er talin hefting á þroska sameiginlegs forsligs eitil- frumna. I alvariegustu afbrigðunum er lítið sem ekkert af eitilfrumum í eitilvef og engin eitilbú (lymphoid follicles) finnast. Eitilfrumur í blóði eru venjulega færri en 1000/mm:i. Til eru líka vægari tilfelli þar sem fáeinir hnútar með eitilfrumum finn- ast í milta og eitlum, og talsvert magn B-frumna (og stöku sinnum T-frumna) er í blóði. Nýlega hafa fundist efnagallar, þ. e. a. s. skortur á adenosin deamínasa eða transkóbalamín II, í sumum sjúk- lingum með B- og T-eitilfrumuskort. Fyrstu einkenni sjúkdómsins eru oftast niðurgangur og vanþrif. Þessi börn hafa mjög litla mótstöðu gegn fjölda sýkla en sveppasýkingar eru mest áberandi í fyrstu. Börnin ná yfirleitt ekki 2ja ára aldri nema hægt sé að græða í þau samþýðanlegan merg (histocompatible bone marrow graft). Bilun í mtindun B-citilfrumna (Ttilmi E) Mótefnaskortur ungbarna tengdur X-litningi (Bru- tons sjúkdómur) var fyrsti ónæmásgallinn sem fannst, árið 1952. I serum þessara sjúklinga er minna en lOOmg/lOOml af IgG og nær ekkert IgA eða IgM. Hækkun á títer mótefna eftir vækisáreiti er lítil sem engin, en fókerfið starfar oftast eðlilega. Vöntun B-frumna skilur þennan sjúkdóm frá öðrum mótefnaskortssjúkdómum. Þessir sjúklingar hafa þannig engar B-frumur í blóði og þá vantar eitilbú, vaxtarbú (germinal centers) og plasmafrumur. Mótefnaskortur (þroskah eftintf B-eitilfrumna; Tttlmi F) Gallar sem hindra fullan þroska B-frumna og valda þannig mótefnaskorti eru algengari en Brutons sjúk- dómur. Þessir sjúklingar hafa eðlilegan fjölda B- frumna með mótefni á yfirborði, þrátt fyrir algera vöntun eins eða fleiri flokka mótefna í blóðið. Þessir einstaklingar geta greinilega myndað mótefnin og hlýtur því gallinn að liggja í tálmun á þroska B- frumna í plasmafrumur. Þrátt fyrir framfarir á þessu sviði á síðustu árum, hefur frumorsök þessarar tálm- unar ekki fundist. Hún þarf þó ekki endilega að vera í B-eitilfrumunum sjálfum, ónóg aðstoð T-frumna eða gleypla gæti valdið þessu í sumum tilfellum. Gagnstætt sjúklingum með T-frumuskort, þá eru börn með mótefnaskort oftast einkennalaus fyrsta árið, og enn lengri tími getur liðið þar til tíðni sýkinga verður veruleg. Þetta er vegna mótefna, sem börnin fá frá móður á fósturskeiði. Sýkingar eru algengastar í lungum, nefholum, húð og meltingar- vegi; einnig heilahimnubólgur af völdum ígerðar- baktería. Mótefnagjöf ásamt notkun sýklalyfja geta oftast haldið sýkingum í skefjum. Bilun í myndun T-eitilfrumna Vöntun á tímgli orsakar alvarlegan skort á T-frum- um. I di-George sjúkdómi hafa tímgill og kalkkirtlar ekki þroskast frá 3. og 4. kokrifu (pharyngeal pouch). Onnur einkenni eru gallar í hjarta- og æða- kerfi og sérkennilegir andlitsdrættir. Sjúkdómur þessi er ekki arfbundinn, en stafar af óeðlilegri fóst- urþroskun (embryogenesis). Sjúklingarnir hafa mjög fáar T-frumur og fókerfi þeirra er því ekki starfhæft. Öfugt við tímgillausar mýs hafa þeir eðli- legt magn IgA í blóði og myndun mótefna er nær eðlileg. Bendir það til að myndun IgA og annarra mótefna sé meira háð tímgli hjá músum en mönnum. Oftast eru krampar (tetany) fyrsta einkenni di- George sjúkdóms, en síðan koma þær sýkingar sem einkennandi eru fyrir fóveilur. Börn með sjúkdóm- inn ná sjaldan 2ja ára aldri, en lækningar hafa tek- ist með ígræðslu tímgilvefjar. Til eru afbrigði di- George sjúkdóms þar sem T-frumurnar hafa ein- læknaneminn 9

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.