Læknaneminn - 01.08.1976, Side 25
orð Hauks. Mig langar samt að varpa þessari spurn-
mgu til baka til spyrjanda, þar sem hann hefur
nokkra reynslu af starfi bæði á almennum deildum
og endurhæfingardeild, þar sem rekin er svolítið
önnur pólitík. Spurningin hvort endurhæfing eigi
að vera á sjúkrahúsum eingöngu eða inni á öðrum
stofnunum er spurning um pólitík og hugsanagang.
Eg held, að oft sé það sjúklingnum til bóta að geta
dvalist á endurhæfingardeild á sjúkrahúsi, a. m. k. í
byrjun endurhæfingarþáttarins, en unnt sé að fram-
lengja endurhæfinguna á annarri stofnun. Til þess
að endurhæfingardeild á almennu sjúkrahúsi geti
starfað eðlilega verður umsetning að vera tiltölu-
lega hröð. Hvað finnst þér um þetta Leifur?
Leijur: Eitt sem sker í augu, hvað varðar mismun
á starfi á endurhæfingardeild og t. d. almennri lyfja-
deild eru helftarlamaðir sjúklingar. A endurhæfing-
ardeild er stefnt markvisst að því að gera þá færa til
ákveðinna athafna, en á lyflæknisdeildum er við-
horfið gjarnan að þeir fari sem fyrst annað til að
losa rúm. I beinu framhaldi af því langar mig að
spyrja hvort endurhæfingarrúm séu nógu mörg hér á
landi.
Haukur: Ut frá þessari spurningu má benda á að
mikið er rætt hvort sjúkrarúm í landinu séu nógu
mörg og hvort dreifing þeirra á milli sérgreina sé
rétt. Það er sýnt að hér á Islandi eru allmörg rúm
ætluð endurhæfingarlækningum. Hins vegar eru þau
hvergi nærri öll nýtt til virkrar endurhæfingar. Það
er alkunna að á sérgreinadeildum verða rúm „föst“,
ekki tekst að útskrifa sjúklinga þegar ýmist tilgangi
með komu hans er náð eða ljóst er að honum verður
ekki náð. Endurhæfingardeildir og endurhæfingar-
stofnanir eru í sérstaklega mikilli hættu í þessum
efnum, sem er skiljanlegt með hliðsjón af sjúklinga-
hópnum, sem þangað velst. Þetta hefur einmitt gerst
hér á landi, að mörg rúm á endurhæfingardeildum
og endurhæfingarstofnunum hafa orðið „föst“. Það
hefur orðið að nýta þau að allmiklu leyti til hjúkr-
unar og umönnunar langdvalarsjúklinga. Svarið við
spurningunni er einfaldlega á þann veg að vistrými
á heilbrigðisstofnunum hér á landi í dag fyrir end-
urhæfingarlækningar er talsvert og raunar nægjan-
legt, ef það nýttist á virkan hátt fyrir endurhæfing-
arsjúklinga.
Páll: Enginn vafi er að það eru lil nægjanlega
mörg rúm í landinu fyrir endurhæfingu. Eg vil
leggja áherslu á, að ég er afskaplega hlynntur
,,centraliseringu“. Ég álít að spítalarnir eigi að
hafa aðstöðu lil þess að endurhæfa, þ. e. liafi endur-
hæfingardeildir. Miðað við þá stefnu held ég að
legudeild Landspítalans sé of lítil. Ég álít að við
þurfum u. þ. b. 40-60 rúm til að hafa nægjanlegan
sveigj anleika til að geta tekið við sjúklingum, sem
við erum beðnir fyrir og ættum að meðhöndla sér-
staklega. Hins vegar segir rúmafjöldi aðeins hálfa
sögu, önnur aðstaða ýmisleg er ennþá mikilvægari.
Kristján, ert þú sammála þessu?
Kristján: Eg er sammála sumu og ósammála öðru.
Ég held að það sé ekki alger nauðsyn að hafa legu-
deild á almennu sjúkrahúsi. Ég held, að við getum
vel stundað okkar sjúklinga á öðrum deildum og
fylgt þeim eftir þar, ef starfsfólk deildanna er sam-
vinnuþýtt og skilur endurhæfingu í framkvæmd. Ég
held að mögulegt sé að sjúklingar, sem þurfa lang-
varandi og meiri háttar endurhæfingu, fari beint á
stofnun eins og Reykjalund. Væri e. t. v. mögulegt
að endurhæfingarlæknar hér á Landspítala hefðu
nánari samvinnu við Reykjalund og fylgdu sjúkling-
um eftir þar? Ég held, að það hafi komið nægjan-
lega glöggt fram, að við getum aldrei vistað alla
sjúklinga á Landspítala, sem þurfa endurhæfingu á
endurhæfingardeild spítalans. Meiri hluti fer að
Reykjalundi. Hins vegar get ég nú ekki neitað því,
að það er þægilegt að hafa þessa deild. Loks er ég
alveg sammála bæði Páli og Hauki, að hér á landi
eru nægjanlega mörg sjúkrahúsrúm fyrir endurhæf-
ingarsjúklinga. I því tilliti er okkur sjálfsagt betur
borgið heldur en nokkurri annarri vestrænni þjóð.
Aðalatriðið er, að þau nýtist til þess, sem þeim er
ætlað.
Pátt: Þetta er kannski mergurinn málsins. Um-
setning endurhæfingardeildar Landspítalans er langt
fyrir neðan það, sem hún ætti að vera ef best léti.
Umsetning á síðasta ári var ekki nema 48 sjúklingar.
Þessa tölu mætti fimmfalda eða meira.
Leifur: Er endurhæfing dýr meðferð, t. d. dýrari
en önnur meðferð?
læknaneminn
19