Læknaneminn - 01.08.1976, Page 27
er því helclur óárennilegt fyrirtæki, eins og málin
standa í dag, fyrir endurhæfingarlækni að hefja
störf á eigin vegum.
Leifur: Það er einmitt þetta sem ég átti við. Þarf
ekki endurhæfingarlæknir að láta hið opinbera eða
frjáls samtök einstaklinga setja upp fyrir sig að-
stöðu?
Kristján: Svo ég tali frá eigin bæjardyrum finnst
rnér ákaflega óárennilegt að leggja í mikla fjárfest-
'ngu og ekki síður í þann mikla rekstrarkostnað,
sem fylgir fullkominni endurhæfingarstöð. Eg held
að kostnaður, sem slíku fyrirtæki fylgir, sé svo mik-
ill að greiðslur sjúkrasamlaganna nái ekki að vega
upp á móti honum, a. m. k. eins og nú er.
Leifur: Þarf endurhæfingarlæknir að vera póli-
tískt þenkjandi umfram aðra lækna?
Iiaukur: Erlendis hefur sýnt sig að sérfræðingar
í endurhæfingarlækningum verða með tímanum
lækna kunnugastir ýmsum hnútum almennra þjóð-
mála og gerast stundum stjórnmálamenn. Starfs-
kröfu rnar eru oft þess eðlis, að þeim er hentugt og
nauðsynlegt að mynda sér ákveðnar stjórnmálaskoð-
anir, en í því sambandi skiptir engu máli nafn og
stefnuskrá stjórnmálaflokks.
Kristján: Endurhæfingarhugsjónin er í sjálfri sér
algerlega ópólitískt fyrirbrigði. Það er enginn vafi
að fólk úr öllum stjórnmálaflokkum þarf jafnt end-
urhæfingu eftir alvarlega sjúkdóma og slys. Þetta er
áhugaverð spurning því að ég helcl, að í þessari sér-
grein sjáum við best mátt einstaklingsframtaksins,
þ. e. a. s. hve langt vel mótiveraður sjúklingur kemst.
Honum eru engin takmörk sett. Jafnframt finnum
við einnig áþreifanlega hversu mikils virði samvinna
er, ekki aðeins innan sjúkrahúsa milli starfsfólks,
heldur einnig utan þeirra við hina ýmsu þætti þjóð-
félagsins. Byltingin, sem við boðum. er ekki endi-
lega þjóðfélagsleg, heldur að nokkru leyti í hugsun-
arhætti gagnvart bækluðu fólki.
Páll: Það er gaman að bera saman gang mála í
kapitalísku landi eins og Bandaríkjunum og annars
staðar. Vestan hafs er oft unnt að draga fram fjár-
magn með miklum áróðri og dugnaði til þess að
byggja upp endurhæfingarstöðvar, og það merkilega
fyrirbæri gerist hér á Islandi, að ýmsar stöðvar, sem
eru tengdar endurhæfingu, hafa ekki verið byggðar
upp af ríkisvaldi eða bæjaryfirvöldum, heldur af
fjármagni félagshópa. Má nefna skóla fyrir van-
gefna, fyrir fjölfötluð börn o. fl. Hins vegar held ég
að augu yfirvalda séu að opnast hægt og hægt fyrir
hvað þeim beri að gera, en fé til reiðu er allt of tak-
markað.
Leifur: I framhaldi af þessu. Eru fatlaðir ekki
lakari vinnukraftur en heilbrigðir og er þannig ekki
verið að búa til hóp fólks, sem er illa hæfur til fram-
leiðni í þjóðfélaginu?
Haukur: Líkamlega fatlaðir menn eru að jafnaði
hetri starfskraftur en heilbrigðir innan marka, sem
fötlunin setur. Ef fötlunin er hins vegar á sviði skyn-
færa eða andlegrar starfsemi, eru starfsvandamálin
einlægt einstaklingsbundin, háð stigi sjúkdómsins og
ástandi sjúklingsins á hverjum tíma. Það er einnig
misjafnt hvaða störf eru í boði frá einu byggðalagi
til annars. Þjóðfélaginu er skylt að veita þeim vinnu,
sem eru ekki frambærilegir á almennum vinnumark-
aði. Reynt hefur verið að mæta þörfum þeirra með
svokölluðum vernduðum vinnustofum sem eru yfir-
leitt framleiðslufyrirtæki og haga starfsemi sinni á
þann veg að sá, sem er annað hvort líkamlega eða
andlega fatlaður, getur sinnt þar störfum. Að jafn-
aði er reynt að haga svo til að vinnan sé líkust því,
sem gerist á almennum vinnumarkaði. Ymist eru
greidd full laun eða hluti af launum almenns vinnu-
markaðar. Að sjálfsögðu tekst yfirleitt ekki að reka
verndaðar vinnustofur án talsverðs halla.
Kristján: Því hefur verið haldið fram með nokkr-
um rétti að fatlaðir séu e. t. v. stærsti minnihluta-
hópur heimsins, milli 3O0-HOO milljónir. Mörgum
hefur láðst að athuga, að þeir eru oft í rauninni
betri vinnukraftur en heilbrigðir. Það sýnir sig, að
þeir hafa færri veikindadaga, eru mun stundvísari
og leggja harðar að sér við vinnu. Margir vinnuveit-
endur erlendis hafa veitt þessu athygli og sækjast
eftir þeim. Það hefur verið nefnt sem dæmi, að sá,
sem gengur í gegnum hreinsunareld fötlunar og
læknaneminn
21