Læknaneminn - 01.08.1976, Side 38
um flesta klínísku tímana, en oftast flytja stúdentar
sjálfir eitthvert efni, en kennarinn gagnrýnir. Hvetur
þetta stúdenta mjög til sjálfstæðrar hugsunar.
Svœfingar og gjörgœsla
Eru 2 stúdentar í einu í 2 vikur á þessum kúrsus,
en hann er af mörgum talinn einn sá besti í náminu
hingað til. Eru læknarnir hver öðrum duglegri að
segja stúdentum til og kenna þeim að intubera, setja
upp nálar o. þ. h.
Slysadeild
A slysadeild eru 8—9 stúdentar í einu í mánuð.
Skiptust á 4 stúdentar fram til kl. 4 og hinir eftir kl.
4 og voru þeir fram á kvöld. Klínískir tímar voru
fyrir alla átta kl. 11. Var þar farið yfir skoðanir á
ýmiss konar meiðslum, meðferð o. fl. Mættu tímarn-
ir gjarnan vera fleiri.
Það sem mest háir kennslunni á slysadeild er
fjöldi stúdenta og aðstöðuleysi. Verður hún af þeim
sökum ekki eins góð og annars gæti verið.
Röntgendeild
Á röntgendeild voru stúdentar í hálfan mánuð í
einu. Var þar bæði fylgst með tæknilegu hliðinni,
þ. e. myndatökunum og einnig röngengreiningunni.
Nokkuð leiðigjarnt er að horfa á margar maga- eða
ristilmyndatökur í röð, enda varð nokkuð um skróp
og bókasafnsferðir. Tímar voru hjá Ásmundi Brekk-
an dósent einu sinni á dag, og þeir mættu tvímæla-
laust vera mun fleiri. Nokkuð fannst mönnum vanta
á, að stúdentum væri kennd meðferð einföldustu
röntgentækja, eins og notuð eru í héraði.
Nám á V ífilssliifium
Hálfsmánaðar Vífilsstaðakúrsus hefur löngum
þótt mjög hagstæður og hefur þar engin breyting
orðið á. Er þar stúdentum (virkilega) kennt vel og
lítið er um hangs og iðjuleysi.
Apríl 1976, Arthúr Löve.
Klínísht nám á Landspítalanum
Handlœknisdeild. Á handlæknisdeild Landspítal-
ans dvöldu menn 6 vikur, yfirleitt tveir í einu í tvær
vikur á hverjum gangi. Þarna voru skipulagðir tímar
(klinikkur) 5 sinnum í viku með sérfræðingum
handlæknis- og svæfingardeildar. Sumir þessara
tíma voru góðir og gagnlegir, en aðrir ekki og ófáir
féllu niður af ýmsum orsökum. Að öðru leyti fengu
stúdentar ekki mikla kennslu hjá sérfræðingum hand-
læknisdeildar.
Þó á flestum göngum væru sérfræðingar fleiri en
stúdentar, heyrði það til algjörra undantekninga, að
sérfræðingar færu yfir sjúkraskrár og skoðuðu sjúk-
ling með stúdentum. Stúdentar tóku flestir 15-20
journala á kúrsusnum, en það erfiði var að miklu
leyti unnið fyrir gíg. Klínik verður best kennd með
sýnikennslu, og meðan prófessorsstaðan í handlækn-
isfræði er bundin Landspítalanum, er ekki til of mik-
ils ætlast, að stúdentar þar fái a. m. k. ekki lakari
kennslu, en stúdentar á öðrum sjúkrahúsum.
Svœfinga- og gjörgœsludeild. Á svæfinga- og gj ör-
gæsludeild Landspítalans voru stúdentar 2-3 vikur,
tveir og þrír saman. Reyndin varð sú, að stúdentar
eyddu litlum tíma á gjörgæslunni, en fylgdu þess í
stað þeim sérfræðingum, sem sáu um svæfingar.
Þarna fengu menn góð þjálfun í að intúbera, setja
upp vökva og ventilera með maska, en voru að öðru
leyti aðeins áhorfendur.
Lyflæknisdeild. Á lyflæknisdeild Landspítalans
voru tveir eða þrír stúdentar á gangi tvær til þrjár
vikur í senn á hverjum gangi. Þarna voru engir
sameiginlegir tímar fyrir alla stúdenta, en kennslan
inni á deildunum sjálfum var yfirleitt í góðu lagi.
Kúrsusinn var best skipulagður á 3-D, þar tóku
stúdentar á móti svo til öllum sjúklingum, sem
komu inn á deildina, og næsta dag var sjúkraskrá
yfirfarin og sjúklingur skoðaður með stúdentum.
Síðan var spjallað um diagnosu, rannsóknir og með-
ferð. Stúdentum var og ætlað að fylgja eftir þeim
sjúklingum, sem þeir tóku á móti, panta rannsóknir,
skrifa dagála og læknabréf. Stúdentum var auk þess
ætlað að taka meiri þátt í öðrum störfum deildar-
innar, en tíðkast á öðrum deildum.
Yfirlæknir deildarinnar fylgdist náið með stúd-
entum og sá til þess að þeir sætu ekki auðum hönd-
um. Á öðrum deildum var kennsla og aðhald minna
og meir undir stúdentum sjálfum komið hvernig
tíminn nýttist.
Röntgendeild. Á röntgendeild Landspítalans sóttu
28
LÆKNANEMINN