Læknaneminn - 01.11.1978, Page 28
Mynd 20. Ummál móSur. K: KviSveggur móður. F: Þver-
skurður jósturs. U: Najlastrengur. Þessi mynd sýnir tölu-
verðan polyhydramniosis. Sjá mynd 31 til samanburðar.
FósturhljóðFósturhljóð, sem greind eru með
venjulegri hlustpípu, eru sennilega með betri við-
miðunarákvörðunum en álitið er að fósturhljóð
heyrist oftast í fyrsta lagi um 22. viku og í síðasta
lagi um 24. viku meðgöngutímans.
Ummál móður. Ummál á kvið móður er háð
mörgum þáttum, svo sem breytileika á legvatns-
magni, vaxtarlagi konunnar og auk þess getur fóst-
urlegan verið slík að ummálsmælingin sé lítt mark-
tæk. (Sjá myndir 20 og 21.)
Ummálsmæling á fóstri með sonar (transumbilical
plan ) er óneitanlega miklu aðgengilegri og öruggari
mælikvarði. (Sjá myndir 21 og 22.)
Af þessari upprifjun má ráða að klíniskt mat á
meðgöngulengd er ákaflega áhótavant og getur
sjaldnast talist nákvæmt, nema þá helst ef fyrsta
skoðun hafi farið fram á I. trimestri. Með sonar-
skoðun er hins vegar hægt að fá glöggt hnitmiðað
jrroskamat fósturs a. m. k. fram að 20. viku og jafn-
vel fram að 30. meðgönguviku.
Fylgjustaðetniny
(Plaeentíil localization)
Mikilsvert er að gera fylgjustaðsetningar á II.
trimestri í ýmsum tilvikum: 1) Allar meiri eða
minni vaginalblæðingar. 2) Þegar fyrirhuguð er
amniocentesis. 3) Stærð og gerð fylgju við Rh, A,
B, 0 ósamræmi og diabetes.
Mjög auðvelt er að staðsetja fylgjuna á II. tri-
mestri, hvort sem hún er á framvegg eða afturvegg
þar sem fóstur er ennjrá Jtað smátt að Jrað skyggir
ekki að ráði á fylgjuna þótt hún liggi á afturtveggn-
um. (Sjá myndir 30 og 31.)
Nauðsynlegt er að hafa blöðruna vel fyllta til þess
að geta notað hana til staðarákvörðunar gagnvart
fylgjunni, gagnvart cervix og gagnvart vagina. (Sjá
mynd 18.)
Það er rétt að geta Jress hér að töluvert er um
vaginalblæðingar á II. trimestri og hefur reynst með
sonarskoðunum mjög auðvelt að flokka hvaða blæð-
ingar eru af saklausum uppruna og hverjar eru af
alvarlegri uppruna. Því er nú hægt að veita þeim
konum, sem raunverulega hafa djúpsæta eða fyrir-
sæta fylgju, hnitmiðaða meðferð, hafa Joær rúm-
liggjandi tilhlýðilega lengi og hrýna fyrir Jreim
nauðsynlegar varúðarreglur, ef hægt er að senda
Jrær heim.
Enda Jrótt fylgjan sé flokkuð djúpsæt eða jafnvel
fyrirsæt á II. trimestri, Jrá Jrarf Jrað ekki að vera
endanleg fylgjustaðsetning vegna tognunar á neðra
segmentinu, sem ég mun skýra betur frá síðar.
Sonar má telja ómissandi við amniocentesis vegna
Mynd 21. Þetta er „grey-scale“ mynd aj % stœrð, sem sýnir
jóstur á 3. trimestri í transumbilical plani. K: KviSveggur
jósturs. R: Ymis retroperitoneal líjjæri jóstursins, hryggsúl-
an og stóru œSarnar jyrir jraman hana.
26
LÆKNANEMINN