Læknaneminn - 01.11.1978, Side 62
Það virðist svæfa fljótt og vel og valda litlum sem
engum drunga morguninn eftir gjöf, ef notaðir hafa
verið lækningalegir skammtar. Það virðist heppilegt
fyrir þá sem þurfa svefnlyf til skamms tíma, t. d.
sjúkrahússjúklingar og einnig virðist að það bæti
svefn næstu nætur á eftir, sem ætti að minnka á-
vanamyndun. Til langtíma virðist það einnig gott
sökum þess að virkni þess helst vel, en menn ættu
þó að vera á verði gegn hjáverkunum sem geta kom-
ið seint sökum hins langa helmingunartíma annars
af niðurbrotsefnunum. Skammtastærðir eru þýðing-
armiklar, sérstaklega hjá öldruðum einstaklingum
og ættu menn ætíð að reyna að nota sem smæsta
skammta. 15 mg skammtur flurazepam virðist þol-
ast vel af eldra fólki og virðist samdóma álit manna
af flurazepam fari vel í aldraða.
Ahrif flurazepam á NREM- og REM-hluta svefns-
ins virðast lítilvæg í lækningalegum skömmtum og
ætti það að stuðla að góðum og lítt trufluðum svefni.
Ekki hefur sést aukning á draumatíma eftir að notk-
un er hætt eins og t. d. eftir barbitursýrusambönd,
en slíkt kann einmitt að stuðla að ávana. Aður var
talið að ávanahætta benzodiazepína væri hverfandi,
en nú seinni ár hafa augu manna opnast fyrir þeim
möguleika og fellur flurazepam einnig þar undir.
Þar sem eitrunarhætta þess og annarra benzodia-
zepina er frekar lítil ætti það að mæla með því til
handa sjúklingum sem hætt er við að misnoti lyf.
Niðurstaða þessa greinarkorns er því sú að flura-
zepam sé heppilegt bæði í skamman tíma, vegna
þess hve það svæfir fljótt og vel og truflar svefninn
lítt, og einnig til lengri tíma vegna þess hve virkni
þess helst vel.
Menn skulu þó vera vel á verði gegn hjáverkun-
um, í fyrsta lagi hjá öldruðum, vegna þess að þol
þeirra er minna og í öðru lagi hjá þeim sem taka
lyfið lengi, vegna þess að annað umbrotsefna þess
skilst hægt út. I öllum tilfellum er nauðsynlegt að
hafa skammta sem minnsta.
Samantekt
Flurazepam er benzodiazepin-afbrigði notað sem
svefnlyf. Flurazepam er áhrifaríkara en placebo og
jafngott eða betra en önnur svefnlyf sem það hefur
verið borið saman við. Sjúklingar virðast sofna
54
fljótt og vel. Við langtíma meðferð virðist virkni
þess haldast þó önnur sambærileg lyf tapi virkni
sinni. Flurazepam hefur tiltölulega lítil áhrif á REM-
svefn og virðist ekki framkalla REM-„rebound“,
sem gæti minnkað líkur fyrir misnotkun. Það styttir
4. stig NREM-svefns en þýðing þess er óljós. Það
hvarfast að talið er í virk umbrotsefni, þar af hefur
annað, desalkylflurazepam helmingunartíma 49-100
klst. og getur safnast fyrir í líkamanum við sam-
fellda og langvarandi notkun. Flurazepam veldur
ekki aukinni ensímvirkni og virðist hafa litla hættu
á ávanamyndun eða eitrun af völdum of hárra
skammta.
HEIMILDIR:
1 Greenblatt DJ, Shader RI, Koch-Weser J: Flurazepam
hydrochloride. Clin Pharmacol Ther 17 (1): 1—14, jan.
75.
2 Syntposium om „Benzodiazepinenes plass i terapien" 7 —
8. november 1975. Roche Oslo 1976.
3 Schwartz MA, Postma E: Metabolism oí ílurazepam, a
benzodiazepine, in man and dog J Pharm Sci 59:1800-
6. des 70 .
4 Silva JA F de, Strojny N: Determination of flurazepam
and its major biotransformation poducts in blood and
urine by spectrophotofluorometry sep 71 and spectro-
photometry J Pharm Sci 60:1303—14, sep 71.
5 Kaplan SA, Silva JAF de, Jack ML, Alexander K,
Strojny N, Weinfeld RE, Puglisi CV, Weissman L:
Blood level profile in man following chronic oral ad-
ministration of flurazepam hydrochloide, J Pharm Sci 62:
1932-5, des 73.
6 Garattini S, Mussini E, Randall LO, eds.: The benzodia-
zepines. Monographs of the Mario Negri Institute for
pharmacological research, Milan. New York, Raven Press
1973.
7 Feinberg I, Fein G, Walker JM, Rice LJ, Floyd TC,
March JD: Flurazepam effects on slow-wave sleep: Stage
4 suppressed but number of delta waves constant. Science
198 ( 4319) 847-8, 25 nov 77.
8 Goodman LS, Gilman A, eds: The pharmacological basis
of therapeutics. 5. útg. New York, Macmillan, 1975.
9 Sambrooks JE, MacCullough MJ, Birtles CJ, Smallman
C: Assessment of the effects of flurazepam and nitra-
zepam on visuo-motor performance using an automated
assessment technique Acta Psychiatr Scand 48:443C54,
1972.
10 Bond AJ, Lader MH: The residual effects of flurazepam,
Psychopharmacologia 32:223-35, 28 sep 73.
11 Weldkamp W, Staw RN, Mettzler CM, Demissianos HV:
Efficacy and residual effect evaluation of a new hypno-
LÆKNANEMINN