Læknaneminn - 01.11.1978, Page 45
TAFLAT
Sýnisliorn af dreifingu. ascorhinsýru um nokkur líf-
fœri manns, naggríss og 40 annarra dýrategunda.
Mg af ascorbinsfru í 100 gaf vef
Nfrnahettur Lifur Nfru
40 dýrategundir
Meðaltal ...... 140(12mM) 23(2mM) 12(lmM)
Dreifing ...... 104-295 18-40 4-25
Naggrís á kálfæðu . 135 28 12
Maður b .......... 30-40 10-16 5-15
en eru nokkuð breytilegir frá einu landi til annars
(30-70 mg).
Þótt alvarlegur skyrbjúgur tilheyri liðinni tíð,
sjást einkenni skyrbjúgs enn í dag, einkum í fólki
sem lifir á fæðu sem er mjög einhæf og snauð af
C-vítamíni. Fyrstu einkenni skyrbjúgs eru breyting
á litarhætti, fólk verður föit, guggið og haldið al-
mennum slappleika. Þá verður vart stirðleika og
máttleysis í hnjáliðum og mæði við áreynslu. Breyt-
ingar verða í tannholdi, það roðnar og þrútnar,
grefur jafnvel í og blæðir úr. Húðin verður þurr og
tekur að blæða í og undir hana. Við þetta bætist svo
blóðleysi, en hemóglóbin getur fallið niður í 30%
af eðlilegu gildi í alvarlegum skyrbjúg.
Flest af fyrstu einkennum skyrbjúgs má rekja til
myndunar gallaðs collagens og chondroitin sulfats.
Prolin hydroxylasi, sem hvatar hydroxyleringu pró-
lins í protocollageni, notar ascorbat sem kofactor.
Reyndar er ekki fyllilega Ijóst hvern þátt ascorbatið
á í hvarfinu. Þó er talið að ascorbat eigi þátt í að
- Gly - Pro - Y - Gly - X - Pro - Gly - X - Y -
- Gly - Pro - Y - Gly - X - Hypro - Gly X - Y -
Mynd 1. Yfiriit yfir hydroxyleringu prolíns í protocollageni,
hvataS af prolín hydroxylasa.
breyta óvirkum prolín hydroxylasa í virkt enzym.1’
Prolín er hydroxylerað meðan protocollagenið er
enn í myndun og er að jafnaði tíunda hver amíno-
sýra proteinsins hydroxyprolín. Efnahvarfið er sýnt
á mynd 1 og taka járn, a-oxoglutarat og súrefni þátt
í hvarfinu. An ascorbats hydroxylerast hverfandi lít-
ið af prolíni protocollagens, sem leiðir til þess að
þriggja þráða helix collagens verður mjög laus í sér
og viðkvæmari fyrir áhrifum hita heldur en helix í
eðlilegu collageni.
NHj • - COOH
Mynd 2. Skfringarmynd aj þriggja þráða helix protocol-
lagens.
Dopamín - fi - hydroxylasi er einnig talinn þurfa
ascorbat sem kofaktor og dregur ascorbat skortur
því úr myndun katekolamína. Er hugsanlegt að
slappleikinn í skyrbjúg stafi af adrenalinskorti. Tvö
enzym til viðbótar, tryptophan oxidasi og p-hydroxy-
phenyl pyruvat oxidasi, starfa ekki eðilega í líkam-
anum nema ascorbat sé til staðar. Skortseinkenni
vegna óstarfhæfni þessa enzyma eru þó hverfandi
samanborið við skyrbjúgseinkennin.
Onnur áhrif ascorbats en þau sem að ofan eru tal-
in, virðast vera ósérhæfð, og eru fremur kemisk eða
fysisk áhrif heldur en enzymatisk.
Ósérluefð tihrif C-vítmníns
Flestir oxidasar í plöntu- og dýravefj um geta oxað
ascorbat ýmist beint eða óbeint. Ennfremur oxar
súrefni ascorbat mjög greiðlega, einkum í neutral
eða basískri lausn, og eru kopar- og járnjónir öfl-
ugir oxunarhvatar. Ascorbat oxast yfir í semide-
hydroascorbat (ascorbat frítt radical), sem er mjög
skammlíft mólikúl. Semidehydroascorbat reduktasi,
enzym sem finnst í lifur, nýrum og nýrnahettum, af-
oxar semidehydroascorbat aftur yfir í ascorbat, þó
er óljóst hversu mikinn þátt þetta enzym á í því að
að verja ascorbat frumunnar oxun.
Semidehydroascorbat örvar mjög peroxidation
lípíða í vitro og kann að örva niðurbrot fituefna í
LÆKNANEMINN
4.1