Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1978, Síða 46

Læknaneminn - 01.11.1978, Síða 46
vivo. Semidehydroascorbat dregur einnig úr vexti veira í æti, sennilega vegna eyðileggjandi áhrifa frírra radicala á kjarnasýrur veiranna. Muruta og samstarfsmenn1 0 hafa sýnt að 99% af gerlaveirum verða óvirkar eftir að hafa verið 60 mínútur í nær- veru ascorbats, að styrklerka sem næst í líkamanum við inntöku stórra skammta af C-vítamíni. Ovirknin náðist aðeins í nærveru súrefnis. Ascorbat myndar komplexa með mábnjónum eins og Ca++ og Mg++ og afoxar járn- og koparjónir greiðlega og kann það að skýra örvandi áhrif ascor- bats á virkni ýmissa enzyma. Ascorbat myndar greiðlega vatnsefnistengi, m. a. við adrenalín og no-adrenalín og ver þau þannig oxun. En katekolamín oxast yfir í adrenochrom sem er mjög eitrað efni og inhiberar m. a. oxun pyruvats, myndun ATP og decarboxyleringu glutamats. Ascorbat hjálpar til við uppsog járns í þörmun- um og flutning þess til lifrar. Ennfremur varnar það eituráhrifum ýmissa þungra málmjóna. ilámarhs-shtimmtar af C-vítamíni Maðurinn, mannapar og naggrísir eru meðaf þeirra fáu dýra, sem geta ekki framleitt eigið C- vítamín. Onnur spendýr framleiða milli 3 og 19 g af C-vítamíni á dag sé miðað við 70 kg líkamsþunga. Ascorbatið dreifist mismunandi um hin ýmsu líf- færi og er ascorbat styrkurinn mestur í nýrnahettum, heiladingli og lifur. í töflu I má sjá að ascorbat styrkur hinna ýmsu líffæra er ekki mjög breytilegur frá einni dýrategund til annarrar. Naggrísir sem lifa á C-vítamín auðugu káli hafa svipaðan ascorbat styrk í sínum líffærum og önnur dýr. Fyrstu ein- kenni skyrbjúgs í naggrísum koma fram þegar as- corbat styrkur í nýrnahettum, lifur og nýrum er fallinn niður í % af eðlilegu magni. I alvarlegum skyrbjúg er ascorbat styrkurinn orðinn af því sem telst eðlilegt í þessum sömu líffærum. Ráðlagðir dagskammtar fyrir apa og naggrísi eru rúmlega 1 g/10.000 kj af fæðuorku (samsvarar þörf- um 70 kg manns), en Yew11 komst að þeirri niður- stöðu í athugun á naggrísum, að 3,5 g/dag/70 kg væri optimum skammtur. Þegar tekið er mið af því hvað breytileikinn á eigin C-vítamín framleiðslu er lítill, þótt stærðarmunur dýra sé mjög mikill, er ekki óeðlilegt að taka nokkurt mið af niðurstöðum úr naggrísatilraunum, þegar verið er að áætla op- timum skammta fyrir manninn. Pauling mælir með7 að ráðlögð dagsneysla C- vítamíns verði á bilinu 250 mg til 4 g. Lægri mörkin miðar hann við að mettun sé náð í tubular reab- sorption nýrna, og er þá ascorbat styrkur serums á bilinu 1,1-1,9 mg/100 ml. Hann telur að erfiðara sé að komast að niðurstöðu um efri mörkin. Idins vegar bendir hann á, að upp að 4 g skammti á dag, verði aðeins örlítil aukning á oxalat útskilnaði í fullorðnum mönnum, en ein röksemdin gegn mikilli C-vítamín neyslu hefur verið talin hætta á myndun nýrnasteina vegna mikils oxalatútskilnaðar. Bent hefur verið á, að margir verða fyrir óþæg- indum samfara mikilli C-vítamín neyslu. Fá sumir brjóstsviða, aðrir loftgang eða niðurgang og út- skilnaður þvags eykst. Engin ítarleg könnun hefur þó verið gerð á tíðni slíkra óþæginda. C-vítamín útskilnaður í þvagi eykst með aukinni C-vítamín neyslu og sýrustig (pH) þvags lækkar. Yarla getur það þó talist hættulegt eða óæskilegt, þótt sumir telji að það geti valdið blöðrusteinum (,,gravel“). Því hefur verið haldið fram að C-vítamín eyði- leggi vítamín Bj ■> í meltingarveginum og sé þess vegna skaðlegt að neyta mikils C-vítamíns. Þó hefur ekki orðið vart við B12 skort hjá fólki sem neytt hefur stórra skammta af C-vítamíni árum saman. Hins vegar hefur verið sýnt fram á að C-vítamín eyðileggur anticoagulant áhrif lyfja eins og war- farin. Ennfremur er talið að ascorbat trufli glúkósa próf í þvagi sykursjúkra. Eina hættu enn hefur verið bent á, en hún er sú að C-vítamín kunni að hraða úrkölkun beina. C-vítamín sem vörn gegn gerla- og vcirusýhingu Ein öflugasta vörn líkamans gegn gerlum er phagocytosis leukocyta og macrophaga. Mönnum var ljóst fyrir meira en 30 árum, að ascorbat væri nauðsynlegt til að leukocylar sýndu óskerta phago- cytiska virkni,12 og varð ascorbat styrkurinn að vera um 20 (*g per 108 frumur. Sýkingar, sár, upp- skurðir og önnur streita, leiddi til lækkunar ascor- bats í serumi og leukocytum. Hume og Weyers13 42 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.