Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1978, Qupperneq 67

Læknaneminn - 01.11.1978, Qupperneq 67
búnað á þeim stúdentagörðum sem heita Carnatic Halls. Þegar litiS er um öxl og dvölin rifjuð upp, er niargs að minnast, enda sjaldnast setið auðum hönd- um. Ekki ætla ég að tíunda það hér hvernig kvöld- unum eða nóttunum var eytt í Liverpool. Varla hef- ur það verið svo frábrugðið athöfnum undanfarandi árganga, né frábrugðið athöfnum komandi árganga, ef þeir verða þá fleiri sem fara. I hverri för eiga sér stað mörg skemmtileg atvik, sem um spinnast brandarar, er ekki verða skildir að fullnustu nema af þátttakendum hverrar ferðar, og því ekki þess verðir að vera sagðir í grein sem þess- ari. Þó get ég ekki setið á mér að segja frá einhverju skemmilegu, svona rétt til þess að endurvekja minn- ingar fyrri fara og til að komandi árgangar hafi hugmynd um hvað þeir eiga í vændum. Liverpool heilsaði okkur með úrhellis rigningu og myrkri. Hlýtt var í veðri og rigningin þægilega svalandi, einkum fyrir þá sem enn höfðu leifar af starfrænum skilningarvitum og fundu að það rigndi. Það var sem mannskapurinn fylltist nýju lífi og þrátt fyrir 12 klukkustunda langt og strangt ferða- lag, var ákveðið að halda niður í miðborgina. I veðri var látið vaka, að það væri maginn sem krefðist þessarar bæjarferðar, hann væri orðinn gal- tómur og hvergi neitt ætilegt að fá í nágrenninu. En í raun var hér um að ræða takmarkalausa forvitni og tilhlökkun að kynnast næturlífi stórborgarinnar, að minnsta kosti hjá sumum. Fljótlega tvístraöist hópurinn og héldu smáhópar sinn í hverja áttina. Fm only here jor the beer. Viska Harissons meðtekin. Sumir héldu áfram að látast og kröfðust að fundinn yrði matsölustaður, en aðrir dembdu sér beint út í næturlífið, myrkrið og óvissuna. Allir lentu í meiri eða minni háttar ævintýrum, en án alls vafa er eftir- minnilegusl fyrsta næturklúbbaheimsókn nokkurra stúdentanna. Ekki höfðu þeir verið lengi innan dyra þegar þeir allt í einu voru umkringdir af nokkrum skuggalegum náungum, sem ólmir vildu ná af þeim peningaveskjunum. En eins og allir vita, þá eru ís- lenskir læknanemar engin lömb við að eiga og því fór fyrir þessum náungum eins og mörgum öðrum, að þeir urðu að láta í minni pokann. Eftir að stúd- entarnir höfðu snúið Jiessi illmenni af sér, fannst þeim kominn tími til að væta kverkarnar. Er þeir höfðu komið sér fyrir við barinn með glös fyrir framan sig, fékk einn þeirra þá hugmynd, að nú vantaöi ekkert nema kvenmann við hliðina á sér, til að vera fullkomin eftirmynd myndasöguhetjunnar Sigga Sixpensara. Þar sem hann stendur þarna lít- andi í kringum sig, sér hann hvar eigi allfjarri stendur hinn laglegasti kvenmaður, er virðist bíða eftir afgreiðslu. An frekari umhugsunar víkur hann sér að dömunni og segir dimmri röddu: „Good evening miss, my name is Graham Parker.“ Varla bafði hann sleppt síðasta oröinu, þegar hann fann hendi vera lagöa þunglega á öxlina á sér. Hann sneri sér hægt við um leið og hann ýlti dökkum sólgler- augunum lengra upp á nefið. Fyrir framan hann stóð þessi voða svoli, sem greinilega var ekkert um nærveru hans gefiö. „Sorry, but my name is Graham Parker, 1 didn’t know . . .“ En lengra komst hann LÆKNANEMINN 59
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.