Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1981, Blaðsíða 10

Læknaneminn - 01.09.1981, Blaðsíða 10
Líf og dauði Séra Ólafur Oddur Jónsson sóknarprestur Inngangur ÖIl vitum viö að h'fið er ekki ótæm- andi hamingja, þar sem lífið gengur ekki áfallalaust fyrir sig. Hitt vitum við einnig að þungbær reynsla getur eflt þroskann. Sorg og söknuður eru eðlileg viðbrögð við ástvinamissi. Miklu skiptir að menn láti þá í Ijós tilfinningar sínar og viðurkenni sárs- aukann. Hættan er fólgin í því að menn hafi stöðugt hemil á sjálfum sér og einangri sig frá öðrum. Eftir sem áður skiptir ekki mestu máli það sem við höfum misst, heldur það sem við eigum eftir til að lifa fyrir. Það er staðreynd að menn hafa reynt að fela dauðann. Sumir vilja ekkert af dauðanum vita, vegna þess að hann kemur þeim úr jafnvægi. Börn í Reykjavík sjá sjaldnast lík- fylgd þar sem flestar jarðarfarir fara fram frá Fossvogskirkju. En dauðinn verður enn meira áfall í tjölskyldunni ef við reynum að fela hann og ræðum ekki um hann. Það er jafn þarft aö ræða um dauðann og sjúkrahúsvist, og sem betur fer hefur orðið á þessu breyting til bóta í seinni tíð. Sigurður Nordal gerði sér grein fyrir þessu í bókinni Líf og dauði, þar sem hann segir á þessa leið: ,,Mér hefur virst það eitt af hinum frjó- sömu íhugunarefnum, sem mannar manninn, að skoða lífið frá sjónar- miði dauðans og dauðann frá sjónar- miði Iífsins.“ Það er ekki ástæða til þess að ótt- ast Iíkamsdauðann, þegar hann kem- ur í fyllingu lífsins. Það væri nær að óttast þann dauða sem eyðileggur líf- ið smátt og smátt. Sagt hefur verið að líkamsdauðinn sé fremur vinur en óvinur lífsins, því sú staðreynd að við eigum eftir að deyja gerir lífið óend- anlega dýrmætt. Eitt er alveg ljóst: Menn verða að læra að lifa við ýmsar dökkar hliðar lífsins án þess að afneita þeim. Heilsutjón og dauði ér verulciki sem ekki verður horft framhjá. Kristinn maður getur orðað það þannig aö krossinn sé veruleiki í lífi manns og samfélags. En hann sér þetta allt undir formerkjum sigurs, vonar og eilífs lífs. — Sú lífsafstaða nefnist trú. Dauðinn er manninum ekki eitt- hvað eðlilegt og sjálfsagt, jafnvel þótt hann komi í fyllingu lífsins. Það sýna best þær ódauðleikahugmyndir sam- tímans, sem fólgnar eru í djúpfryst- ingu mannslíkamans í þeirri von að menn fái bót meina sinna síðar. Það er nærtækasta dæmið unt afneitun dauðans og sýnir hve menn eiga erfitt með að horfast í augu við hann. Ef til vill er þaö vegna þess að dauðinn hefur verið álíka feimnismál og kyn- lífið var á Viktoríutímabilinu. Dauðastundin hefur verið einka- mál hvers og eins, enda þótt sú spurning hljóti að leita á hvernig hægt sé að hjálpa mönnum að mæta dauða sínum. Menn geta vissulega undirbúið sig fyrir dauöann, treyst fyrirgefningu Guðs og fyrirgefið öör- um. En dauðinn sjálfur er óhjá- kvæmilegur. Ólík viðhorf til dauðans Fullvissan um að lífið sé hluti stærri tilveru er ekki lengur almenn. Hinn eftir-kristni maður (the post-christi- an man) trúir aðeins því sem hann reynir og því sem vísindin birta. Eilíft líf fellur utan veruleikasviðs samtím- ans, og því er oft hafnað sem hugar- burði og draumórum. Vissulega hugsa ekki allir, sem þú hittir á förn- um vegi, á þennan hátt. Ólík viðhorf er að finna manna á meðal, eins og ýmsar kannanir gefa til kynna. Það má vera að nú sé meira um for-kristin viðhorf en margur ætlar, þar sem fólk virðist trúa á stjörnuspeki fremur en 8 LÆKNANEMINN 3-"/18». - 34. árg.

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.