Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1981, Blaðsíða 11

Læknaneminn - 01.09.1981, Blaðsíða 11
stjörnufræði og treystir fremur stjörnuspánum en smásjánum. Manngildishugmynd kristninnar felur í sér að maðurinn sé borinn til eilífs lífs. Stór þáttur í kenningu Jesú er trúin á eilíft líf. Það er vart hægt að byggja trú sína á Jesú, sem birti mönnum kærleika Guðs, og hafna um leið lífinu eilífa. Grundvöllur þeirrar trúar var trúin á Guð föður. Sérhverjum manni er gefið fyrir- heit um eilíft líf. Dauðinn sviptir mann ekki kærleika Guðs og kirkjan boðar, að fyrir þann sem treystir Kristi sé engin fyrirdæming. Eilíft líf veitist án verðskuldunar og bregst engum. Við megum treysta því að örlög okkar ráðist af kærleika Guðs. Sú lífs- og trúarafstaða hlýtur að höfða til allra manna sem fæðast, lifa og deyja. Enski biskupinn John Robinson hefur sagt að líf kristins manns sé grundvallað á kærleika, sem sleppir honum ekki. Hvorki krabbamein né kjarnorkusprengja getur rænt hann þeim kærleika. En kristinn maður talar ekki um ódauðleika í þessu sambandi, heldur eilíft líf sem gjöf Guðs og hann hefur enga þörf til þess að teikna af því frekari myndir. Eilíft líf er líf með Guði og andstætt kenn- ingum um ódauðleika, nema þegar talað er um ódauðieika sem gjöf, rétt eins og við tölum um lífið sem gjöf. Nokkur siðfræðileg vandamál Helmut Thielicke skrifaði bók sem nefnist í enskri þýðingu The Doctor as Judge of Who Shall Live and Who Shall Die. Efni bókarinnar var fyrst sett fram sem fyrirlestrar á ráðstefnu skurðlækna, sem haldin var í Ham- borgarháskóla, þarsem höfundurinn hefur starfað sem rektor og prófessor í systematískri guðfræði. Thielicke hefur unnið meir að siðfræði en nokkur annar. í bókinni kemur m. a. fram, að þegar við tölum um skyldu læknis að viðhalda lífi, þá sé ekki átt við líf- fræöilegt líf, heldur mannlegt Iíf, sem vart verður skilgreint út frá stað- reyndum hjarta- og heilalínurita ein- vörðungu. Allt frá Genesis til Heid- eggers hefur meðvitund mannsins verið það sem greindi að dýralíf og mannlíf. Samkvæmt kristnum skilningi hef- ur maðurinn reisn sem honum ergef- in, dignitas aliena, sem honum veitist af Guði. Það var í nafni þeirrar mannhelgi sem Bodelschwingh stóð gegn SS- foringjum Hitlers, þegar þeir vildu tortíma gömlu fólki og geðveiku, fólki sem af nasistum var talið óhæft til lífs. En Bodelschwingh sá við- brögð sjúklinganna við kærleika og umhyggju og jafnvel sálmasöng og ritningarversi. Kristnir siðfræðingar taka mið af helgi lífsins og þeirri mannlegu reisn, sem mönnum er af Guði gefin, hvert sem andlegt og líkamlegt ástand þeirra kann að vera. Á þessu hvílir vitundin um að viðhalda lífi, enda þótt lina beri þjáningar. Hins vegar geta kristnir siðfræð- ingar viðurkennt réttmæti þess að hætta meðferð sjúklings, þegar engin von er um bata og heilinn er hættur að starfa: í þeim tilvikum verður að vega og meta möguleikann til mann- legs lífs. Það er fyllilega réttmætt að taka viðmiðun út frá heiladauða, og við hljótum að hugleiða gæði þess lífs sem sjúklingur á kost á, en ekki líf- fræöilegt líf einvörðungu. Þetta þýðir ekki að jákvæð eu- þanasía eða líknardráp sé viður- kennt. En það liggur fyrir mönnum eitt sinn aö deyja, segir í Hebreabréf- inu. Það þýðir að menn hafa rétt til að deyja. Og þá vaknar spurningin: Er leyfilegt að svipta menn réttinum til að deyja, þegar dauðastundin er í raun komin? Er leyfilegt að lengja dauðastundina, þegar í raun er ekki verið að viðhalda lífi heldur þjáning- unni? Thielicke heldur því fram að það sé Pyrrhosarsigur fyrir lækni að halda dauðanum í skefjum í nokkra daga eða klukkustundir. I ljósi þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað í læknavísindum, eru menn jafnvel farnir að óttast meir aðdragandann að dauðanum, heldur en dauðann sjálfan. Nútíma læknisfræði á það á hættu að grípa inn í á mörkum Iífs og dauða á þann hátt að hlutverk læknisins, að lækna viðkomandi sjúkling, verður að ómannlegri ógnun. Það ber ekki að viðhalda lífi hvað sem þaö kostar, þegar möguleikarnir til mannlegs lífs og meðvitundar eru ekki lengur fyrir hendi. Samkvæmt yfirlýsingu Píusar páfa XII frá 1957 er að áliti Kaþólsku kirkjunnar fyllilega réttmætt að lina þjáningar, jafnvel þótt það geti orðið til þess að flýta fyrir dauðastundinni. Samt sem áður er brýnt að menn geri sér grein fyrir því að þjáningin hafi ekki aðeins neikvæða hlið, hún getur verið skapandi. Það er vissu- lega uggvænlegt, hve nútímamenn eru þollausir gagnvart þjáningunni. Læknirinn Konrad Lorenz nefnir það sem eina af dauðasyndum mann- kyns. „Þolleysi fæðir af sér seigdrep- andi leiðindi og sú viðleitni að sneiða sífellt hjá þjáningunni er í reynd að forðast verulegan hluta mannlífs- ins,“ segir Lorenz. Eftir sem áður er rangt að gera Iífið sem slíkt absolut, þar sem dauðinn er hluti af lífinu. Líknardráp Þetta felur ekki í sér að viðurkenna beri aktívt Iíknardráp. Siðfræðingur- inn Joseph Fletcher hefur verið ákaf- ur talsmaður fyrir líknardrápi. í bók- inni Morals and Medicine segir hann: 9 LÆKNANEMINN 3-4/i9»i - 34. árg.

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.