Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1981, Blaðsíða 28

Læknaneminn - 01.09.1981, Blaðsíða 28
Sjúkratilfelli Bjarni Þjóðleifsson Iæknir Fimmtug kona leitar til heimilislækn- is vegna slappleika og óljósra verkja um ofanverðan kvið, einkum hægra megin. Einkennin byrjuðu fyrir 10 dögum, voru væg fyrst en fóru versn- andi. Hitalaus. Síðustu 2 daga hafði þvag verið óvenju dökkt. Við skoðun fannst aum og nokkuð stækkuð lifur og væg gula sást á augnhvítu. Milta fannst ekki. Heilsufarssaga var ekki markverð. Rannsóknir: Hb. 13,0 gr.%, sökk 20 hvít 5600. Bilirubin 5,6 mg%, direkt 4,7 mg%. ASAT 102 IU (<35), gamma GT 96 (<35) og alk. fosf. 302 (<270). LDH Quick próf 18 sek., kontrol 14 sek. Hvernig má túlka sögu og skoðun? Hvernig ber að túlka lifraprófin? Hvaða atriði þarf að kanna nánar í sjúkrasögu til að nálgast grein- ingu? Svar Vandamálið snýst um að finna hvers eðlis gulan er, þ.e. stíflu- lifrarfrumu- eða hæmolysugula. Það er strax hægt að leiða rök að því að ekki sé um hæmolysugulu að ræða, en í þeim sjúkdómi er indirekt bilirubin hækk- að. Dökkt þvag bendir hinsvegar á direkt bilirubin. Aum og stækkuð lif- ur bendir á sjúkdóm í lifur, en ekkert kemur fram, sem bendir á stíflu í gall- vegum. Milta fannst ekki og bendir það til að ekki sé um langvarandi lifrarsjúkdóm að ræða og styður enn frekar að hæmolysa sé ekki orsök gulunnar. Lifrarprófin sýna drep á lifrarfrum- um (j1 ASAT og gamma GT) og byrj- andi lifrarbilun (lengt Quickpróf). Það síðastnefnda getur þó einnig stafað af skorti á K vítamíni en það er mjög ólíkleg orsök. Alk. fosf. er óverulega hækkaður og samrýmist það einnig drepi á lifrarfrumum og bendir ekki á stíflu. Túlkun á sjúkrasögu, skoðun og lifrarprófum styður því hvort annað. Um er að ræða sjúkdóm í lifur, annað hvort bólgu (hepatit) eða æxlisvöxt (meinvörp). Það síðastnefnda er þó mun ólíklegra og verður því fyrst snúið að því að kanna möguleika á lifrarbólgum. Nákvæm sjúkrasaga er þar mikilvægasta greiningartækið og þarf að kanna möguleika á helstu or- sökum lifrarbólgu. Konan var vel efnuð, gift forstjóra innflutningsfyrirtækis. Hún ferðaðist mikið með manni sínum og var síðast á Italíu fyrir P/2 mánuði. Notaði engin lyf að staðaldri, en einstaka sinnum nitrazepam fýrir svefn, en það lyf er ekki þekkt að því að valda lifrarbólgu. Áfengisnotkun taldi hún hóflega, en við nánari könnun kom í ljós að í ferðalögum notaði hún Iétt- vín með mat og auk þess sterka drykki á kvöldin. Var þessi neysla áætluð um 50-60 gr. hreinn vínandi á dag (ein léttvínsflaska inniheldur 90 gr. vínanda). Þegar hún var heima var áfengisneysla tengd samkvæmis- lífi og gestamóttöku, en einnig sherry við sjónvarp. samtals metið um 40- 50 gr. vínanda á dag. Þessi neysla hafði staðið í meira en 10 ár. Aldrei fengið fráhvarfseinkenni og aldrei orðið ölvuð. Þessi könnun á sjúkrasögu vekur grun um að konan hafi alkohól lifrar- bólgu. Var hún tekin á spítala og voru þar m.a. mæld mótefni fyrir A & B lifrarbólguveiru og voru bæði nei- kvæð. Þegar blæðingarpróf voru komin í lag var tekið nálarsýni úr lifur og sýndi það fitusöfnun og drep í lifrarfrumum, bólgufrumuígerð og mallory hyalin. Þessar rannsóknir staðfesta klíniskan grun um alkohól Iifrarbólgu. Meðferð var fólgin í eftirliti á göngudeild og ráðleggingum um áfengisbindindi. Lifrarpróf urðu eðlileg á 3 mánuðum. Horfur eru góðar ef bindindi er haldið og líklegt áð ekki sé um varanlega skaða á lifur að ræða. Það sem er athyglisvert við þessa sögu er m.a. að konan var ekki alko- hólisti í þeirri merkingu að hún væri líkamlega háð áfengi. Neyslan mót- aðist frekar af lífsstíl hennar og um- hverfi og magnið er ekki frábrugðið meðalneyslu íbúa í ýmsum Evrópu- löndum. Engu að síður getur þetta magn ef þess er neytt í nokkur ár valdið fituíferð og lifrarbólgu eins og hér er lýst. Það er mjög einstaklings- bundið hve „hófdrykkja“ þolist vel og er talið að sumir einstaklingar geti fengið alkóhóllifrarbólgu á stöðugri neyslu á 20-30 gr. af hreinum vín- anda á dag. Konur þola minna en karlar í þessu tilliti. 26 LÆKNANEMINN 3-4/i.„ - 34. árg.

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.