Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1981, Page 19

Læknaneminn - 01.09.1981, Page 19
Toxic shock syndrome Kristinn Tómasson læknanemi Inngangur Síðustu ár hefur farið að bera á sjúk- dómi, sem ekki hefur áður verið lýst. Hann kemur fram með háum hita, lágum blóðþrýstingi og útbrotum, er síðar flagna, auk fleiri einkenna. Hafa flestir, er veikst hafa, verið ung- ar konur. Todd et al.7 lýsa 1978 sérkenni- legri sjúkdómsmynd 7 barna og ung- linga á aldrinum 8-17 ára. Höfðu börnin veikst á tímabilinu júní 1975 til nóvember 1977. í greininni er ekki nefnt hvernig hópurinn skiptist í pilta og stúlkur. Helstu einkenni voru skyndilegur, hár hiti (39^41°C), er hélst í nokkra daga. Höfuðverkir, truflun á meðvit- und og útbrot, er flögnuðu 1—2 vik- um síðar. Pessum einkennum fylgdu oft hálssærindi, uppköst, kviðar- eymsli, vatnskenndur niðurgangur, minnkaður þvagútskilnaður og Iost. Við frekari skoðun var augnslím- húð rauðleit. Útbrotin voru skarlats- sóttarlík, mest á bol og útlimum. Bjúgur í andliti og útlimum var, ásamt einkennum um blóðrásartrufl- anir í útlimum, oft til staðar. Blóð- þrýstingur var óstöðugur og fremur lágur. Hætti honum til að lækka mik- ið og skyndilega. Kok var rauðflekk- ótt og slikja á tungu. Prír sjúkling- anna fengu gulu og tveir lungnabjúg þrátt fyrir lágan lungnablóðrásar- þrýsting. Einn dó, annar fékk drep í fót og þriðji drep í húð. Hjá þeim, er lifðu af veikindin, flagnaði húðin þar sem útbrotin höfðu verið, þegar þeim var að batna. Var þetta mest áberandi í lófum og iljum. Við eftirgrennslan kom í Ijós, að ekkert barnanna hafði komist í snertingu við nein þekkt eiturefni, né voru veikindi af svipuðum toga í fjöl- skyldum þeirra. Við bakteríu- og veirurannsóknir reyndust öll börnin neikvæð fyrir beta hemolytiskum streptokokkum af A grúppu og fyrir leptospira. Veiruræktanir voru einnig neikvæð- ar. Titer fyrir Klettafjallablettasótt var neikvæður hjá 5 af 7. Staphylokokkus aureus var ein- angraður frá tveimur sjúklingum á sýkingarstað og hjá tjórum öðrum voru ræktanir úr slímhúðarstrokum jákvæðar fyrir bakteríunni. Hins veg- ar voru blóð-, mænuvökva- og þvag- sýni neikvæð. Þessi staph. aureus sýni voru með grúppu-l-phage og fram- leiddu sérstakt exotoxin, er hafði áhrif í epidermis. Greina má þetta toxin frá toxini, sem fundist hefur í ,,scalded skin syndrome". Þessa sjúkdómsmynd kölluðu Todd et al. „Toxic-shock Syndrome (TSS)". Hún virtist leggjast á stálpuð börn og vera tengd phage-grúppu-1- staphylokokkum, er framleiddu nýtt epidermal toxin. Eftir að þessi grein birtist, hafa all- margar greinar kontið fram, sem lýsa TSS. Aðalmunur á þeim og fyrstu greininni er, að getið er um, að mikill meirihluti þeirra, sem fá TSS, eru konur á tíðaaldri. Flestir þessara sjúklinga hafa verið greindir eftir 1979. Einnig hafa verið greindir nokkrir með TSS, sem áður höföu fengið aðra eða enga greiningu (allt aftur til ársins 1975), með Ieit í eldri sjúkraskrám.4 Þrjú, til muna eldri til- felli, gætu hafa verið TSS.7 Árið 1927 er lýst tveimur unglingum með rauðflekkótt útbrot, sem síðar flögn- uðu. Og 1942 er lýst 15 ára stúlku með rauðflekkótt útbrot, roða í aug- um, Iost og nýrnabilun. Síðar varð mikil húðflögnun í lófum og iljum hjá henni. Einkennin hjá þessum þremur einstaklingum voru tengd staphylo- kokka sýkingu. Einkenni í sjúkrasögu og skoðun Mikill meiri hluti þeirra, sem fá TSS, eru konuráaldrinum 13—50ára, sem hafa tíðir. Meðalaldur TSS-sjúklinga er í kringum 25 ár :'8. Þær konur, sem ekki hafa tíðir, og karlar, sem fá þennan sjúkdóm, virðast án undan- tekninga hafa afmarkaða sýkingu af völdum staph. aureus. Ekki hafa fundist nein tengsl á milli sjúkling- anna. Sjúkdómurinn byrjar venjulega í konum meðan á blæðingum stendur og hafa þær áður verið hraustar. Al- gengast á 2.^1. degi blæðinga og yfir 90% verða veikar innan við 5 dögum eftir að blæðingar hefjast.5 Einkenn- in koma oft skyndilega með hita, uppköstum, niðurgangi og stundum kuldahrolli. Algengt er að hiti fari yfir 40°C í TSS. Sjúklingurinn getur haft slæma kviðverki. Blóðþrýsting- ur fellur iöulega innan 72 stunda frá upphafi fyrstu einkenna.5 Getur þrýstingurinn fallið skyndilega og er þá hætt við svima og yfirliði. LÆKNANEMINN 3-4/i98i - 34. árg. 17

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.