Læknaneminn


Læknaneminn - 01.09.1981, Page 33

Læknaneminn - 01.09.1981, Page 33
Veistu það? Flettu upp svöruuum attust í blaöiuu frekar eu standa á gati. 1. IVlb. Basedovvii er sama og: a) Addisons sjúkdómur b) Grave’s sjúkdómur d) Skorpulifur d) Felty’s syndróm. 2. Per contiguitatcm á við um: a) Snertismit b) Útbreiðslu meinsemdar um ná- grenni sitt c) Saursmit (óhreinindasmit) d) Meinvarp illkynja vaxtar með blóði eða lymfu 3. Erysipelas heitir á íslensku a) Hrúðurgeit b) Sárasótt c) Áblástur d) Heimakoma 4. Haultak er: a) Liðverkur b) Viðgerð á herniu c) Tungurótarbólga d) Brottnám á graftarbelg (abscess) 5. Mors Subitanea er: a) Skyndidauði b) Hægfœra dauði c) Dauði með sœntd d) Sjálfsmorð 6. Credés handtak er: a) Handtak sjúklings með byrjandi helftarlömun b) Beiting beggja handa við hjarta- hnoð c) Expressio placentœ ad modum Credé d) Palpatio uteri ad modum Credé 7. Manicomio, sem erspænska, þýðin a) Með minni eigin hendi (þ. e. und- irskrift) b) Geðveila c) Geðveikrahœli d) Hlœgilegur 8. Aura epileptica er: a) Fyrirboði flogakasts b) Meðvitundarleysi eftirflogákast cj Heilarýrnun vegna langvarandi flogaveiki d) Svipbrigði á andliti sjúklings í flogakasd 9. Arthrokleisis er sama og: a) Liðhlaup (luxatio) b) Spenging liðar (arthrodesis) c) Skurður inn á lið (arthrotomia) d) Stirðleiki í lið 10. Incretum er sama og: a) Elnunsóttar b) Stagnerað sekret c) Staðfesting sjúkdómsgreiningar með krufningu d) Hormón Leiðrétting Þau leiðu mistök urðu þegar rituð var grein um Stúdentaskiptaráðstefnuna 1981, að röngum aðila var eignuð lopapeysa í myndatexta. Undir mynd á bls. 54 í 1. tbl. ’81 stóð: „Ghana- ntaðurinn Isaac Odame í lopapeys- unni hennar Möggu Odds,“ en að sjálfsögðu var það Jóhanna Lárus- dóttir sem átti peysuna. Biðjum við peysuna velvirðingar á þessu. Ritstjóri/ Greinarhöf. Sent blaðinu Læknanemanum hafa borist eftir- talin blöð og tímarit: World Health, mánaðarlega, okkur sent af Landlækni. Hjartavernd, 18. árg., 1. og 2. tbl. 1981. Skýrsla A V frá Rannsóknarstöð Hjartaverndar, fjallar um reyk- ingavenjur íslenskra karla á aldr- inum 34-61 árs. Hóprannsókn 1967-68. Blað meinatækna 10. árg., 1. tbl., maí 1981, 4 eintök. Hjúkrun, tímarit hjúkrunarfélags íslands, 1. tbl. 1982 til kynningar. IFPA-news No 1 1981, blað Inter- national Federation of Psoriasis Associations. Auk þess sendir Guðmundur Björnsson prófessor okkur alltaf sérprentun af þeim greinum sem hann skrifar. Kunnum við honum bestu þakkir fyrir. Blöð þessi liggja frammi á her- bergi F.L. Aha, fingraför LÆKNANEMINN 3-4/18,1 - 34. árg. 31

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.