Læknaneminn - 01.04.2004, Side 34

Læknaneminn - 01.04.2004, Side 34
AÐGERÐIR VEGNA ALVARLEGRAR OFFITU, Mynd 3. Maga- og garnahjáveituaðgerðin sem gerð er á LSH. Maga- og garnahjáveituaðgerðir (Gastric- and intestinal byp- ass) eru þær aðgerðir sem flestir hallast að í dag og þykja gefa bestan langtímaárangur <15‘17L Gerð eru mörg mismun- andi afbrigði þessara aðgerða og mismunandi tækni beitt. Flestir eru nú sammála um að ef góður langtímaárangur á að nást þurfi: 1. Hjáveitu á maga þar sem veitt er framhjá a.m.k. 90% af maga. Flestír gera magapoka sem tekur aðeins 50-100 ml (mynd 3). Þetta tryggir að sjúklíngar geti borðað miklu minna í einu og þeir léttast hratt í fyrstu. Þessi magapoki vex þó mikið fyrsta árið (fimm til tífaldast) og eftir það geta sjúklingarnir borðað meira magn í einu, 2. Hjáveitu á efri hluta garna, þar sem tengt er framhjá mis- miklu af efri hluta mjógirnis (við tengjum fram hjá 2 m af efsta hluta jejunum). Mikilvægt er að hreyfa ekki við neðri hluta ile- um en þar fer fram frásog á vítamínum og steinefnum. Garna- hjáveitan er gerð með Roux-enY endurtengingu en þá er eng- inn blindur endi skilinn eftir (mynd 3). Hjáveita garna veldur því að gall, brissafi og magasýrur blandast ekki fæðunni fyrr en í neðri hluta garna þannig að melting og frásog á sér aðallega stað í neðri hluta garna. Ef borðað er mikið af orkuríkri fæðu (fitu og kolvetnum) nýtist fæðan ekki að fullu og sjúklingurinn fær niðurgang (fituskitu). Til að melta hreinan sykur þarf þó enga meltingarhvata og nýtist sykur því ailtaf að fullu.[hs911 Maga- og garnahjáveituaðgerðir eru stórar skurðaðgerðir og talsvert hættulegri en sultarólaraðgerðirnar því hér eru magi og mjógirni tekin í sundur og tvær samtengingar gerðar í kviðarholinu og skapar það hættu á fylgikvillum og jafnvel dauðsföllum. Nú er komin allt að 15 ára reynsla af þessum aðgerðum á nokkrum stöðum erlendis og virðist langtímaár- angur vera mjög góður. Þegar gerð er hjáveita á maga og skeifugörn hverfur eða minnkar hin stöðuga hungurtilfinning og sjúklingar léttast og haldast léttir (nánar sultarhormón í lok greinar). Ný aðgerðartækni þ.e. tilkoma kviðsjártækni (laparoscopiu) og tilkoma örbylgjuskæra (ultrascission) og heftibyssa (Endo- GIA) til nota um kviðsjárport (myndir 4 og 5) hefur minnkað tíðni fylgikvilla verulega og sjúklingar eru fljótari að ná sér eftir slfkar aðgerðir (18,19). Árin 2001 og 2002 gerðum við alls 110 slíkar aðgerðir á LSH. Ef um enduraðgerð var að ræða (áður gerð sultarólaraðgerð hjá 15 sjúklingum) gerðum við aðgerðina með opnum kviðskurði en aðrar aðgerðir gerðum við með kviðsjá. Undirbúningur Eftir aðgerð liggja sjúklingar venjulega inni í 4 daga ef aðgerðin er gerð um kviðsjá en í 7-8 daga ef opin aðgerð er gerð. Sjúklingar eru hafðir á fljótandi fæði í 3 vikur eftir aðgerð og síðan á maukfæði í tvær vikur í samráði við næringarráð- gjafa. Eftir aðgerð taka sjúklingar tvöfaldan dagskammt af vítamínum með málmsöltum ævilangt. Ef gallsteinar eru til staðar og gerð er opin aðgerð þá er gallblaðran tekin samtímis. Ef gerð er speglunaraðgerð er gall- blaðran aðeins tekin ef gallsteinar eru til staðar og sjúklingur með einkenni. I kjölfar speglunaraðgerða myndast í mjög litlum mæli samvextir í kviðarholinu og það er engum vandkvæðum bundið að taka gallblöðru með kviðsjá síðar ef sjúklingar fá gallsteinaeinkenni. Kostir þess að framkvæma maga- og garnahjáveituaðgerðir um kviðsjá eru ekki aðeins minni óþægindi, styttri sjúkrahús- lega og styttri fjarvera frá vinnu. Tíðni fylgikvilla verður einnig lægri. Offitusjúklingar eru sjúklingahópur með marga áhættu- þætti og ef opin aðgerð (laparotomia) er gerð fá um 20% sjúklinga fylgikvilla (5) borið saman við um 10% sjúklinga ef aðgerð er gerð með kviðsjá (18,19). Helstu fylgikvillar aðgerða (5'10,11): 1. Leki frá samtengingu (anastomósuleki) með djúpri sýkingu (peritonitis/abscess): 2-3% 2. Sárasýking (sem þarfnast aðgerðar): 4-5%* 3. Þrengsli í samtengingu magstúfs-garnar: 7% 4. Magasár í magastúf: 7-10% 5. Kviðslit í skurðsárið: 15%* 6. Dánartíðni < 1% (leki, lungnaembolia ofl) 34-Læknaneminn 2004

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.