Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - dec 2023, Qupperneq 11

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - dec 2023, Qupperneq 11
11 Þótt maður velji sér ekki sjúkdóma þá getur maður valið sér baráttuefni Kolbrún Sverrisdóttir er frá Ísafirði þar sem hún hefur búið alla tíð. Hún er fædd árið 1961 og á þrjú uppkomin börn. Faðir barnanna fórst í sjóslysi ásamt föður hennar þegar yngsta barnið var rétt 6 mánaða gamalt. Hún hefur glímt við lungnasjúkdóm síðastliðin 6 ár, án þess að hafa fengið viðhlítandi greiningu fyrr en á síðasta ári. Núna í vetrarbyrjun leit hún inn til okkar og sagði sögu sína í þeim tilgangi að af henni mætti draga einhvern lærdóm. „Ég hef búið ein með börnunum þangað til þau fluttust að heiman og er í mjög góðu sambandi við þau,“ segir Kolbrún þegar við hefjum spjallið og fallegt brosið styður vel þá fullyrðingu. „Þau eru náttúrulega mesti og besti bakhjarlinn sem ég á, fyrir utan systkini mín og stórfjölskylduna. Ég er úr stórum systkinahópi, við erum átta talsins, öll alin upp fyrir vestan og erum samheldinn hópur.“ Talið berst að lungnasjúkdómnum og hvenær hann hafi farið að gera vart við sig. „Eftir á að hyggja hef ég verið farin að finna fyrir þessu án þess að gera mér grein fyrir hvers kyns væri. Ég reykti í þrjátíu ár, frá því ég var unglingur og þangað til ég var fjörtíu og fimm ára og eru því að verða átján ár frá því ég hætti. Það umhugsunarverða er að fyrir um fimm til sex árum fór ég að fá mjög mikla verki fyrir brjóstið og í bakið. Ef ég fann lykt af grasi fannst mér ég alveg vera að kafna og var mjög viðkvæm fyrir alls konar lykt. Ég mæddist mikið, var alltaf hnerrandi og tók andköf ef ég fann eins og eitthvað skylli á lungunum.“ Gróðurofnæmi Læknisheimsóknir Kolbrúnar voru nokkuð reglulegar. „Ég var fljótt greind með gróðurofnæmi, eða eitthvað annað sem þeim datt í hug en var aldrei rannsökuð. Það var ekki nein eftirfylgni, ég fékk bara ráðleggingar um að fá mér histasín, eða lóritín, eða ég fékk lyfseðla fyrir púst og ofnæmislyf. Í rauninni lagaði þetta aldrei neitt. Ég fór því að reyna að skauta meira fram hjá því sem hafði áhrif á líðan mína.“ Alla sína tíð segist Kolbrún hafa unnið mikið og byrjaði ung að vinna í rækjuverksmiðju O.N.Olsen sem hún segir að hafi verið mjög skemmtilegt. Svo vann hún við verslunarstörf í mörg ár, m.a. í Bónus og í Hamraborg en síðustu sjö árin vann hún á hjúkrunarheimilinu Eyri. „Mér þótti mjög gaman að vinna á hjúkrunarheimilinu því að mér finnst skemmtilegt að umgangast fólk og reyna að hlúa að því eftir bestu getu. Undir lokin var það hins vegar orðið aðeins of erfitt fyrir mig. Það eitt að bogra er með því versta sem lungnasjúklingar gera.“ Fór á varatankinum í vinnuna „Mig hefur ekki vantað mikið í vinnu í gegnum ævina vegna veikinda,“ segir þessi netta kona sem kallar greinilega ekki allt ömmu sína. „Það er því ekki eins og ég hafi átt einhverja sjúkrasögu þar sem ég hafi alltaf verið að trufla læknana. Ég leitaði reglulega til þeirra með þetta vandamál og þeir hefðu alveg getað litið aðeins betur á mig. Eina afgreiðslan sem ég hef fengið í gegnum árin varðandi þennan sjúkdóm, áður en ég komst að því hvað var raunverulega að, var að ég væri með eitthvert ofnæmi, eða stoðverki, eða hugsanlega komin með kulnun. Ég hélt náttúrulega bara áfram að vinna því að ég er alin upp við þau góðu gildi að vinnan göfgi manninn. Ég fór því svona á varatankinum í vinnuna.“ Eins og einhverju væri hent í mig Í fyrra fór svo verulega að halla undan fæti þar sem Kolbrún veiktist illa af COVID. Í kjölfarið tók hún sér tveggja mánaða frí vegna fjölskylduaðstæðna. „Svo í maí þegar ég kom aftur til baka í vinnuna, byrjaði ég náttúrulega að vinna fullan vinnudag á hjúkrunarheimilinu, þar sem ég

x

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga
https://timarit.is/publication/1564

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.