Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 24
24
Mér finnst svo merkilegt hvað þetta virkar vel
Heiða Björk Sturludóttir skrifaði bókina Ayurveda
– Listin að halda jafnvægi í óstöðugri veröld.
Leiðarvísir um indversku lífsvísindin sem kom
út nú á árinu. Bókin fjallar um þessi indversku
lífsvísindi og hvernig þau hafa m.a. hjálpað henni
að takast á við lungnasjúkdóm sinn, auk þess að
hafa nýst syni hennar vel í sinni sjúkdómsbaráttu.
Hún var stödd í Kerala héraði á Suður-Indlandi
þegar við ræddum saman í nóvemberlok þar
sem hún gengst undir svokallaða panchakarma
læknismeðferð ayurveda lífsvísindanna.
Venju samkvæmt leikur forvitni á að vita um bakgrunn
viðmælandans. „Ég er 56 ára flóttabarn úr Eyjum,“ svarar
Heiða Björk brosandi og bætir við að undangengnir
atburðir í Grindavík hafi sannarlega rifjað upp alls konar
tilfinningar. „Við fjölskyldan fluttumst í viðlagasjóðshús
í Mosfellsbæ. Ég fór svo í Menntaskólann í Hamrahlíð,
þaðan í Háskólann í sagnfræði og því næst í mastersnámi
í stjórun umhverfismála úti á Spáni. Fyrir vikið er ég með
góð tök á spænsku og hef m.a. sem hliðarstarf að fara með
spænskumælandi ferðamenn um Ísland.“
Fann leið sem skipti sköpum fyrir soninn
Ástæðu þess að Heiða Björk fór að kynna sér indversku
lífsvísindin má rekja til þess að sonur hennar greindist
með tourette sjúkdóminn. „Hann var sagður ólæknandi,
við gætum ekkert gert og værum algerlega upp á náð
máttarvaldanna komin.“ Þar sem hún segist alltaf hafa
verið frekar hlynnt náttúrulækningum fór hún að leita
leiða fyrir son sinn og fann samtök í Bandaríkjunum þar
sem náttúrulæknar og hefðbundnir, vestrænir taugalæknar
vinna saman. „Þeir voru búnir að gefa út bók sem heitir
Ticks and Tourette til þess að hjálpa fólki að ná sér góðu.
Ég pantaði bókina á Amazon og fylgdi henni af mikilli
nákvæmni og strákurinn losnaði við alla kippina og kækina
á innan við tveim mánuðum!“
Vakti mikla athygli
Þetta var árið 2006 og Heiða Björk segir að kveikjan að
þessari leit hafi verið að til stóð að gefa syni hennar lyf sem
hún vissi að myndu ekki losa hann við sjúkdóminn og hefðu
alls kyns óæskileg aukaáhrif. „Ég var svo uppnumin af þessu
því að enginn virtist vita af þessari leið og enginn hafði sagt
mér frá þessu. Ég skrifaði grein sem vakti mikla athygli og
fjölmiðlar fengu mig til að koma í viðtal. Fólk fór að leita
til mín í síauknum mæli og ég bauð þeim sumum að koma
heim og kíkja í skápana. Á þessum tímum var vöruúrvalið í
stórmörkuðunum ekki það sama og í dag og ekkert einfalt
að finna hvað ætti að gefa barni sem mátti t.d. ekki fá
glúten og mjólk.“
Þegar þar var komið sögu segir Heiða Björk að sér hafi
ekki fundist hún trúverðug og ekki liðið vel með að vera
orðin einhver heilsuráðgjafi með engan bakgrunn. „Það
varð til þess að ég fór í þriggja ára nám til Bretlands í
næringarþerapíu. Þaðan lá leiðin í yogakennaranám af
því að ég sá að það hafði svo góð áhrif, meðfram því að
taka lífsstíl og næringu í gegn, að nota yogaæfæingar,
öndunaræfingar og hugleiðslu.“
Öll vötn runnu til ayurveda
Í kjölfarið kynntist Heiða Björk svo ayurveda fræðunum,
elsta lækningakerfi veraldar. „Þessi fræði eru alveg 5000
ára gömul og enginn veit hversu mikið eldri en það. Ég
komst í kynni við þau þegar ég var í náttúrulækninganámi
í Toronto. Þar hitti ég indverskan lækni og hann hjálpaði
mér með soninn sem hafði verið góður af tourette í tæp 4
ár en fengið bakslag. Í þetta sinn birtist það ekki sem kippir
og kækir, heldur ofboðslegt magnleysi, sífelld hitavella
og verkir í maganum.“ Hún segir að læknarnir heima hafi
staðið ráðþrota frammi fyrir þessum veikindum og hafi sett
hann á þunglyndislyf til að prófa eitthvað. Hann var 13 ára
og þegar hún talaði við hann á Skype og sá hvað honum
leið illa var hún komin á fremsta hlunn með að hætta í