Ferðir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Ferðir - 01.05.1988, Qupperneq 3

Ferðir - 01.05.1988, Qupperneq 3
FERÐIR BLAÐ FERÐAFÉLAGS AKUREYRAR MAÍ 1988 — 47. ÁRGANGUR ANGANTÝR HJÖRVAR HJÁLMARSSON: Saga Laugafells Þótt nú sé aðeins tveggja stunda ferð á góðum bíl frá Akureyri að Laugafelli, var það áður seinfarnara. Laugafell var hulið móðu fjarlægðarinnar. Menn vissu að það var óralangt inni á öræfum og þar streymdi víða heitt vatn úr jörð, þar voru góðir landkostir einkum meðfram volgu lækjunum. Um þennan ágæta stað höfðu myndast þjóðsögur, sem m.a. sýndu hversu kjarngott land þar var. í Gráskinnu Gísla Konráðssonar er eftirfarandi saga: Svanhildur sem ána saug ,,Það var eitt sumar að grasafólk fór fram á heiðar, eins og siður var til, og var með því unglingsstúlka, er Svanhildur hét, 12 eða 13 ára gömul. Svo vildi til, að hún týndist í göngu og fannst ekki aftur. Villtist hún þangað er Laugafell heitir fram og austur af Nýjabæjarafrétt, og sést fell þetta af framanverðri Hofsafrétt í Goðdölum. Svanhildur fann þar dilká eina, er var svo gæf, að hún gat handleikið hana, og tók hún það ráð, til þess að stilla hungur sitt, að hún saug ána með dilkinum og fylgdi henni eftir um sumarið. Jafnframt át hún bláber og

x

Ferðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.