Ferðir - 01.05.1988, Page 8
8
FERÐIR
ustu aldar og þá í félagi við Eyfirðinga. Þingeysk fjallalömb
rásuðu oft vestur á gróðurflesjurnar vestur undir Jökulsá og
þetta var talin öruggasta leiðin til að ná þeim heilum heim.
Eyfirðingar höguðu leitum sínum þannig, að þeir fóru á
fyrsta degi suður að laugunum og tjölduðu þar. Næsta morg-
un var liðinu skipt og tveir riðu vestur að Hofsjökli og smöl-
uðu þaðan til baka aftur að laugunum. Hinir tveir riðu suður
á Þjórsárkvíslar og þar skilst mér að tveir Þingeyingar hafi
komið til móts við þá og allir hafi þeir leitað norður að
laugunum. Oftast var ekki leitað lengra þann daginn. Þá var
hlaðin rétt á melnum neðan við sæluhúsið og hún stendur að
nokkru enn. Næsta dag var smalað norður í hvamminn við
Geldingsá, en hann hefur hlotið nafnið Réttarhvammur. Leit-
armannakofarnir Gráni og Sesseljubær standa þar hlið við
hlið síðan árið 1971 að Sesseljubær var byggður. Gráni er nú
bara notaður sem hesthús, en hýsti áður bæði menn og hesta.
Þriðja smölunardaginn riðu menn norður að Fossá og
smöluðu þaðan suður í Réttarhvamm. Fimmta og síðasta
daginn ráku Eyfirðingar safnið heim, en Þingeyingar ráku sitt
fé austur öræfin. Þetta leitarfyrirkomulag breyttist síðar og
það varð m.a. til þess að leitirnar gengu fljótar.
Af framanskráðu sést að oft þurftu menn að nátta sig við
laugarnar og stundum urðu það kaldsamar nætur. Það var
gerð fleiri en ein tilraun með að koma upp leitarmannakofa
við nyrsta laugalækinn, en þeir stóðu skammt. Hvorutveggja
var, að þeir fúnuðu við ylinn og rakann frá læknum og svo
munu snjóþyngsli hafa sligað þá niður. Við nákvæma at-
hugun má enn sjá hvar þessi kofi var. Hann hefur verið mjög
lítill og ekki rúmað nema tvo menn. Trúlega hafa það verið
Skagfirðingar sem komu þessum kofa upp til að leita skjóls í
eftirleitum, sem venjulega voru ekki farnar fyrr en um vetur-
nætur og stundum síðar.
Langferðamenn lögðu nokkrum sinnum leiðir sínar hjá
Laugafelli og stundum fór ungt fólk úr Eyjafirði þangað að
gamni sínu, einkum eftir 1920. Það þóttu miklar sportferðir
og jafnvel ævintýraferðir, ef eitthvað bar út af, eins og stund-