Ferðir - 01.05.1988, Page 39
FERÐIR
39
11. Sprengisandur, Gæsavötn, Askja og Herðubreiðarlindir (31/7-3/8).
Fararstjóri Guðmundur Gunnarsson Þátttakendur 36.
12. Látraströnd (8/8). Fararstjóri Þór Þorvaldsson. Þátttakendur 11.
13. Ólafsfjörður og Siglufjörður (15/8). Fararstjóri Árný Runólfsdóttir.
Þátttakendur 14.
14. Hjaltadalsheiði (15/8). Fararstjóri Sigurður Hjálmarsson. Þátttak-
endur 11.
15. Kverkfjöll, Askja, Herðubreiðarlindir (20-23/8). Fararstjóri Jón D.
Ármannsson. Þátttakendur 33.
16. Bleiksmýrardalur (30/8). Fararstjóri Sigríður Magnúsdóttir. Leið-
sögumaður Þór Sigurðsson. Þátttakendur 20.
17. Hörgárdalsheiði (5/9). Fararstjórar Þór Þorvaldsson og Sigurður
Hjálmarsson. Þátttakendur 10.
Ársskýrsla Bræðrafellsnefndar 1987
Á vegum nefndarinnar var aldrei farið í skálann á árinu. Höfðum fregnir af
fólki sem komið hafði i skálann og var allt í besta standi.
Helsta verkefni næsta árs er að yfirfara og mála stikur til Herðubreiðar og
huga að skálastæði nærri Dyngjufjalladal og eins við Hvammsfjöll eða
Hrúthálsa.
31. 12. 1987
F. h. Bræðrafellsnefndar:
Jakob Kárason.
Skýrsla Laugafellsnefndar 1987
Laugafellsnefnd hafði nokkur verkefni á sumrinu. Ýmsir urðu líka til að
hlaupa undir bagga með henni t.d. nokkrir félagar í F.F.A., vélsleðamenn
og ófélagsbundið fólk.