Ferðir - 01.05.1988, Page 6
6
FERÐIR
1 Laugafelli. Vinnuferð 1974. (Ljósm.: Gunnar Jónsson).
og þá hefur Þórunn trúlega farið að búa sig til heimferðar. En
hve löng dvöl hennar hefur orðið þarna, verður bara hver og
einn að geta sér til um. Fyrir því eru engar heimildir, nema
þessi óljósa ábending í frásögn séra Einars í Saurbæ.
Eins og gróðurfari er nú háttað við Laugafell mundi engum
manni koma til hugar að reyna að framfleyta búsmala þar. Á
tímum Þórunnar var það þó engan veginn óhugsandi.
Hnignun á hálendisgróðri hefur verið skelfileg á síðastliðnum
500 árum. Það er trúlegt að gróður hafi lifað þarna alls staðar
nema á hæstu melum, en víða hefur hann samt verið lág-
vaxinn. Þarna hafa því verið víðlendir hagar og gróðurinn er
alltaf kjarnmikill.
Gróðurtorfan sem sæluhúsið stendur á, er aðeins lítil leif af
þykku gróðurlendi. Bara með því að athuga hana og horfa svo
yfir melana þarna utan og neðan við, sér maður að þarna
hefur allt verið gróið í fyrri tíð, og kannske er það ekki svo
langt síðan að þarna var samfelldur gróður. Ég sé mikla
hnignun á gróðri síðan ég kom þarna fyrst og uppblástur er
alltaf talsverður á svæðinu frá sæluhúsinu og niður að