Ferðir - 01.05.1988, Blaðsíða 42
42
FERÐIR
skálinn þrifinn að innan, pottar og kabyssa hreinsuð og fægð. Á sunnu-
deginum var skálinn málaður innan, að hluta tvær umferðir. Mokuð
kamarhola og möl og grjóti mokað að skálanum svo ekki blæs eins mikið
undir hann.
Aftur var farið laugardaginn 8. ágúst og voru þar á ferð Friðjón Hall-
dórsson, Jón Pétursson, Jóhannes Kárason, Kári Jóhannesson og Jakob
Kárason í björtu veðri og þurru. Úti voru þak, veggir og gluggar málaðir
tvær umferðir. Kamar var reistur og gengið frá honum sem tryggilegast og
hann síðan málaður. Þeir Jóhannes og Kári hlupu síðan til baka um
kvöldið. A sunnudeginum var gólfið lakkað tvisvar og fóru menn því næst
um í Glerárdalsbotni í steingervingaleit. I haust fóru svo gangnamenn með
smádót sem vantaði og er þessi skýrsla var rituð á gamlársdag hafði ekki
verið komist í skálann, hvorki á skíðum né sleðum.
Skálinn ætti að duga nokkur ár án stórra lagfæringa, en eftir 2-4 ár ætti
að byggja forstofu norðan við 3 m langa. Rífa innanúr skálanum, einangra
og klæða með panel eða krossviði. Með litlum tilkostnaði mætti bæta við
svefnplássi fyrir 4.
Núna er nefndin að viða að sér efni í brú yfir Glerá á móts við skálann og
verður hún vonandi langt komin í næstu ársskýrslu.
31. 12. 1987
F. h. Lambanefndar:
Jakob Kárason.