Ferðir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Ferðir - 01.05.1988, Qupperneq 13

Ferðir - 01.05.1988, Qupperneq 13
FERÐIR 13 þiðna í húsinu yfir veturinn. Það reyndist ekki rétt, sem betur fer. Það fraus aldrei í því, en vitað er, að hitinn þar inni komst eitt sinn niður í 0 stig. Næsta sumar var eftirfarandi skrifað í gestabókina: Vinnuferð 5.-10. júlí. „Nú þegar við snúum heim á sjötta degi ferðar okkar er orðið öðruvísi umhorfs hér í kring. Vindbásarnir kringum húsið hafa verið fylltir með mold og sáð í túnvingli. Tvö vik eftir vinda í útjöðrum torfunnar hafa verið fyllt upp og grjóti hlaðið undir þau rofabörð sem mest fauk úr. Við biðjum alla sem hér koma að virða verk okkar og ganga sem gætilegast hér í kring og umfram allt að fara ekki með bifreiðar alveg heim að húsi.“ Ýmislegt fleira var bókað í þessari vinnuferð. Þar eru m.a. margar teikningar af fólki við störf sín og nokkrar skemmti- legar athugasemdir skrifaðar við þær. Undir þetta hafa sjö Eyfirðingar skrifað nöfn sín í umboði Ferðafélagsins. Næsta vinnuferð félagsins var farin fyrst í ágúst 1971. Hún var farin vegna þess að vindurinn hafði sorfið djúpa bása niður í jarðveginn á þrjá vegu kringum húsið. í þessa bása þurfti að flytja mold og síðan að rista þökur norður við laugarlæk og þekja yfir. Dýpsti skápurinn var orðinn allt að 1 m á dýpt. Um þessa ferð má lesa í gestabókinni. Efnislega er það á þessa leið: Við lögðum af stað úr innstu dölum Eyjafjarðar laust eftir hádegi fimmtudaginn 5. ágúst, fórum Skagafjörð og komum hingað klukkan 2 aðfaranótt föstudagsins. Við höfðum með okkur tvær kúfaðar jeppakerrur af hálfþurri mykju, en þær voru þungar í drætti og töfðu ferð okkar mikið. Föstudags- morguninn byrjuðum við á að flytja mold í básana, settum mykjulag yfir, þöktum svo og dreifðum afganginum af mykj-

x

Ferðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.