Ferðir


Ferðir - 01.05.1988, Page 24

Ferðir - 01.05.1988, Page 24
24 F E RÐIR lengi blundað. Varð úr, að þeir gengu til samstarfs við félagsdeildina, og lögðu nokkurt fé í byggingarsjóðinn. Var tekið til óspilltra málanna um efnisöflun, og snemma árs 1983 voru staurar í undirstöður fluttir með vélsleðum á byggingarstað, ásamt ýmsu fleiru er til þess þurfti. Snemma í ágúst um sumarið, tók Sigurþór Hjörleifsson í Messuholti fyrstu skóflustunguna, og var síðan grafið fyrir undirstöðum og gengið frá þeim þannig, að festa mætti skálann á þær án teljandi fyrirhafnar. Um haustið tóku menn svo til við skálabygginguna sjálfa, en strax í upphafi hafði félagsfólk ákveðið, að skálann væri hentugast að byggja heima við og flytja í heilu lagi á sinn fyrirhugaða stað. Tókst að fá aðstöðu í gömlum „bragga“ sem Vegagerðin hafði áður átt, en hafði komist í eigu bæjaryfir- valda á Sauðárkróki þegar Vegagerðin fluttist á nýjan stað þar í bænum. Jón E. ísdal, sem hefur verið aðalhöfundur nýjustu skála F.Í., var svo vinsamlegur að lána deildinni teikningar að skála, sem bæði F.í. og Jöklarannsóknarfélagið höfðu byggt eftir. Þeir Jón og Sigurþór Hjörleifsson aðlöguðu teikninguna aðstæðum á byggingarstað, og gerðu á henni nokkrar breytingar. Baldur Ingólfsson, húasmíðameistari á Sauðárkróki lagði til fagþekkingu við smíðina, en Friðrik A. Jónsson, þá og enn gjaldkeri deildarinnar, vann manna mest að smíðinni. Fleiri lögðu þar þó að sjálfsögðu hönd á plóginn, þótt hér sé ekki vettvangur til að rekja það nánar. Með tals- verðu harðfylgi tókst að ljúka skálasmíðinni og koma honum á sinn stað áður en vetur var úr bæ, en það var nánst skilyrði fyrir því ferðalagi, að snjór væri nægur, svo draga mætti skálann á sleða á áfangastað. Ekki er ástæða til að rekja flutningssöguna á þessum vett- vangi, en þar tókst vel til, enda vaskir menn að verki. Hefur skáli þessi síðan verið mikið notaður á öllum árstímum. Strax á fyrsta vetri var haldin þar þrettándavaka á vegum FFS, og var hún fjölsótt. Hefur sú athöfn verið endurtekin árlega síðan, og verður vonandi framhald á, enda láta þátttakendur vel af þessari skammdegisskemmtun.

x

Ferðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.