Ferðir - 01.05.1988, Side 25
F E R Ð I R
25
Eins og fyrr er sagt frá, er skáli þessi, Trölli, eins og hann
reyndar heitir, í fjalllendinu milli Austur-Húnavatnssýslu og
Skagafjarðar. Eins og þeir geta séð, sem skoða svæði þetta á
korti, er það all víðáttumikið. Víða eru talsvert há fjöll, og
einna hæst og bröttust vestur og suður af skálanum. Skal nú
nánasta umhverfi Trölla og helstu ferðaleiðum lýst nokkuð.
Þeir, sem lagt hafa leið sína um Langadal muna, að há fjöll
eru austan hans, en sums staðar eru þó skörð í milli einstakra
fjallabálka. Má þar nefna Auðólfsstaðaskarð, Strjúgsskarð og
Geitaskarð. Austan þessa fjallabálks er mikill dalur, Laxár-
dalur fremri, og voru þar allmargir bæir allt fram á þessa öld.
Flestir eru þeir nú í eyði, nema þeir allra nyrstu. Er þeim, sem
fræðast vilja um byggð þessa og sögu hennar bent á að lesa
bókina Fþlk og fjöll eftir Rósberg G. Snædal, sem var fæddur
og uppalinn þarna á dalnum. Austan Laxárdals eru hæstu
tindar í fjallgarðinum. Ná margir þeirra vel yfir eitt þúsund
metra hæð. Ótal gildrög, dalverpi og skorningar ganga inn í
fjallgarðinn, og heita þau að sjálfsögðu ýmsum nöfnum, sem
of langt mál er að telja hér. Stærsta og dýpsta skarðið heitir
Litla-Vatnsskarð. Ef farið er austur úr skarðinu er komið á
allvænan dal, sem heitir Víðidalur, oft nefndur í annálum
Víðidalur í Staðarfjöllum, en austasti hluti þessa svæðis var
a.m.k. fyrr meir oft nefndur Staðarfjöll, kennd við Reynistað í
Skagafirði. Mikið af þessu landi var í eigu staðarins, og höfðu
klausturhaldarar þar flest ráð í hendi sér. Eru um það margar
sagnir, sem ekki verða raktar hér. I Litla-Vatnsskarði austar-
lega er dálítið vatn, Móbergsselstjörn, en um vatnið og veiði í
því má lesa í þjóðsögum. Þótt Laxárdalur sé grasgefinn og
búsældarlegur og mörg ummerki megi sjá þar um búsetu,
sýnist nútímamanninum sem Víðidalur sé ekki vel til búsetu
fallinn. Bæði er dalurinn afskekktur samkvæmt okkar skiln-
ingi, og svo er gróðurfar hans allt með þeim hætti, að ekki er
auðséð að þar muni hægt að afla vetrarfóðurs fyrir búpening.
Þó mun hér hafa verið fjölbýlt fyrr á öldum. Ögmundur
Helgason, cand. mag. hefur manna mest rannsakað sögu
dalsins og byggðarinnar, og hefur hann komist að þeirri