Ferðir - 01.05.1988, Síða 27
FERÐIR
27
Trölli í Tröllabotnum og umhverfi hans.
Eftir Víðidal rennur samnefnd á. Nyrst lokast Víðidalur af
fyrirferðarmiklu en fremur lágu felli er heitir Hryggjafjall
(563 m y.s.). Sveigir dalurinn þar til austurs, og heitir Stakk-
fell sunnan dalsmynnisins (703 m y.s). Heitir þar síðan
Hryggjadalur, niður í Gönguskörð. Suður úr honum ganga
ganga svo Ranghali og Miðdalur.
Skammt þar frá sem Víðidalsá sveigir til austurs eru tóftir
Gvendarstaða, norðan ár, sunnan undir Hryggjafjalli. Lítið
eitt vestar er skarð nokkurt og kemur þar árspræna í Víðidalsá
er Þverá heitir. Um skarð þetta er oft farið norður á dal þann
er Skálarhnjúksdalur heitir. Tengist hann til norðurs Laxár-
dal ytri, sem nær allt til sjávar þar sem heitir Sævarlandsvík,
norðan Tindastóls. Eftir Laxárdal ytri rennur Laxá. Segja má
aðalupptök hennar séu í svonefndum Tröllabotnum, sem eru
eitt þeirra dalverpa sem skerast inn í fjallabálkinn austan
Laxárdals fremri að austan. Á móti Tröllabotnum að vestan
er álíka dalverpi sem heitir Vesturárdalur, og milli þeirra er
Vesturárskarð, en um það eru dæmi að menn hafi komist að
vetri til, en ekki er það hent lofthræddum. Af Tröllabotnum
rennur Tröllá niður á Trölleyrar, í sunnanverðum Skálar-