Ferðir


Ferðir - 01.05.1988, Side 35

Ferðir - 01.05.1988, Side 35
Ársskýrsla stjórnar Ferðafélags Akureyrar 1987 Starfið á s.l. ári var með líku móti og undanfarin ár, en allmiklar fram- kvæmdir. Stjórnin hélt mánaðarlega fundi, að venju. Nefndir voru mislíf- legar, mest bar á ferðanefnd sem skilaði góðu starfi, undir forustu Karls Bragasonar. Mjög mikilsvert er, að ferðanefnd sé vel skipuð, því hún sér um aðalmarkmið félagsins. Ferðakynning í vor tókst vel og var vel sótt, svo var einnig um fjölskyldukvöldið i haust. \ Sviðamessan var að þessu sinni í bæ_num, og var að Galtalæk, og var fjölmenn. Framkvæmdir á árinu voru við Strýtu, en eftir mikið strit, við lagfæringar utan sem innan (klædd innan með panel, ný miðstöð olíu- kynt, ný eldhúsinnrétting, skipt um járn á þaki og hlið, lakkað allt innan og málað utan), var hún flutt inn í Lindir um hvítasunnuna og sett þar niður, en helgina áður var tekinn grunnur þar innra. Við þetta unnu fjöldi manna, en hitann og þungann af þessu öllu báru þeir Magnús Tryggvason smiður, Kristján Júlíusson bifreiðarstjóri, og svo Páll Jónsson reddari: án þeirra hefði þetta allt ekki tekist. 1 Laugafelli var sundlaugin endurbyggð, en hún hafði skemmst veturinn áður, um þetta sá Angantýr Hjálmarsson, ásamt góðum mönnum sem hann fékk með sér. Tvo skála keypti félagið af starfsmannafélagi Vegagerðarinnar, og var annar settur niður við Dreka fyrir gæslumann, en hinn bíður á lóð Vegagerðarinnar eftir verkefni. Innan stjórnar hefur verið rætt um, hvort ráðin skuli gæslumaður næsta sumar í Laugafell, í 2-2Vá mánuð og væri þá hægt að nota skálann fyrir hann. Þrir verðir voru i Lindunum s.l. sumar, og skiptust þeir á að vera við gæslu inn í Dreka, viku í senn, er í ráði að næsta sumar verði þeir jafnvel fjórir, en Náttúruverndarráð ætlar að bæta Hvannalindum inn á þetta gæslusvæði (Grafarlönd, Herðubreiðarlindir, öskju). Verðirnir í Lindun- um fluttu í Strýtu s.l. vor og er mjög rúmgott um þá nú, enda ekkert kvartað í þeim efnum. Á vori komanda þarf að gera lagfæringar á Þorsteinsskála, og i tillögu sem Herbert Jónsson var beðinn að gera, er gert ráð fyrir að stækka forstofuna inn í skálavarðaherbergið, loka uppgöngu úr borðstofu, og láta ganga uppá loftið úr forstofu, lagfæra innréttingar í eldhúsi og skipta um eldavél, en hana er búið að kaupa (oliukynt sólóvél). Ferðafélag Islands var 60 ára 27. nóv. s.l. og mættu formaður og gjaldkeri í fagnað þann dag, kaffisamsæti og kvöldvöku tileinkaða Sigurði heitnum Þórarinssyni jarðfræðingi, og var kvöldvakan aldeilis frábær. Daginn eftir

x

Ferðir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.