Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Qupperneq 4

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Qupperneq 4
4 | | 5. júlí 2023 Sveitarfélög í landinu standa frammi fyrir miklum áskorun- um í rekstri með sama hætti og heimilin. Engu að síður mikilvægt að hafa í huga að það er margt jákvætt að gerast, og það á svo sannarlega við um Vestmanna- eyjar. Undanfarin ár hefur verið mikil uppbygging í Eyjum og hefur okkur fjölgað jafnt og þétt og þegar þetta er skrifað eru Vestmannaeyingar orðir 4568 og hafa ekki verið fleiri síðan um aldamótin 2000. Þetta er afar jákvætt. Mannauður og samheldni Það er nauðsynlegt fyrir samfé- lög eins og okkar að eiga mikinn mannauð á staðnum. Við búum á eyju og þurfum, og viljum vera sjálfum okkur nóg með flesta hluti. Það sýnir sig nú, sem og áður fyrr, að sannarlega eigum við mikinn mannauð sem kemur fram í öllum þeim verkefnunum sem hér eru í gangi eða í farvatninu. Kraftur og einstaklingsframtak er áberandi og sveitarfélagið reynir að fylgja eftir af bestu getu og margt hefur gengið afar vel. En við eigum líka annað sem gerir okkur að Eyjamönnum. Það er samstaðan, samheldnin og samtakamátturinn sem er í mínum huga einstakur. Gosið og allt það sem Vestmanneyingar gengu í gegnum í tengslum við það og önnur þau áföll sem við höfum þurft að takast á við sem samfé- lag í fortíð og nútíð hefur mótað okkur og gert okkar að því sem við erum. Eyjastoltið er líka alltaf til staðar og kom m.a. glögglega í ljós nú í vor þegar handboltaliðin okkar náðu glæsilegum árangri. Það er okkur öllum mikilvægt að tilheyra. Atvinnutækifærum fjölgar Uppbyggingin í ferðaþjónustu, og metnaðarfull framtíðarsýn þar, landeldi á laxi og starfsemi tengd því, aukin uppbygging og nýsköpun í fiskvinnslu og ný verkefni þar lofa öll góðu og gefa til kynna trú á framtíðina hér í Vestmannaeyjum. Þessi mikla uppbygging er merki um dugnað og skýra sýn á framtíð Eyjanna. Uppbygging seiðaeldisstöðvar og fyrsti hluta laxeldis í Viðlagafjöru er komin vel af stað. Framkvæmd- in í Viðlagafjöru, fyrsti hlutinn, er af þeirri stærðargráðu að um er að ræða stærsta einstakra fram- kvæmdarleyfi sem bærinn hefur gefið út. Uppbygging íbúðarhúsnæðis þarf að fylgja Í Vestmannaeyjum hefur verið mikil uppbygging undanfarin ár. Horft hefur verið til þess að nýta lausar lóðir í þegar skipulögðum hverfum og hefur eftirspurnin verið mikil eftir lóðum. Upp- bygging í austurbænum og á Ás- hamarsreitnum eru góð dæmi um þessa fjölgun lóða í skipulögðum og byggðum hverfum. Þegar uppbygging er í gangi í samfé- laginu eins og nú er hér í Eyjum er nauðsynlegt að í boði séu fjölbreyttar lóðir svo að frekari uppbyggingu verði ekki hamlað. Í dag eru mjög fáar lausar lóðir og við því er verið að bregðast. Bæjarstjórn hefur valið að- ila til þess að vinna að nýju deiliskipulagi í Löngulág. Var óskað eftir tillögum að skipulaginu og voru fimm aðilar sem unnu sýnar hugmyndir áfram. Úr þeim hópi var valinn einn aðili til að vinna skipulag fyrir svæðið. Tillaga um val á hugmynd að skipulagi kom til bæjarstjórnar frá vinnuhópi og eftir kynningu sam- þykkti bæjarstjórn á fundi sínum 22. júní sl. tillögu hópsins um að Trípólí arkitektastofa myndi vinna að þessu nýja hverfi. Verkefnið er gríðarlega spennandi enda um nýtt heildstætt hverfi að ræða með blandaðri byggð. Framundan er mikil og vanda- söm vinna hjá sveitarfélaginu, enda hefur aldrei fyrr verið farið í svo veigamikið verkefni í deiliskipulagsvinnu fyrir íbúða- byggð með þessum hætti og því mikilvægt að vanda til verks svo að vel takist til. Innviðir til framtíðar Uppbygging innviða er nauðsyn- leg svo að hægt sé að tryggja þjónustu og áframhaldandi vöxt samfélagsins. Vestmannaeyjabær vinnur að því í gegnum félagið Eygló að ljósleiðaravæða bæinn sem er hluti af nauðsynlegum innviðum í nútímasamfélagi og er t.d. hluti af því að gera bæinn að- laðandi búsetukost fyrir fólk sem getur stundað fjarvinnu af ýmsu tagi. Þrýst er á aðkomu ríkisins að nýrri vatnsleiðslu sem er nauðsyn- leg almannavarnaraðgerð. Lands- net hefur hafið undirbúning að lagningu tveggja nýrra rafstrengja til Eyja til að tryggja flutning raforku til fyrirtækja og heimila. Samgöngurnar eru alltaf uppi á borðinu í samskiptum við ríkið og þarf að stíga stór skerf þar og er fullnaðarrannsókn á fýsileika jarð- ganga þar efst á blaði svo móta megi heilsteypta framtíðarsýn í þessum efnum. Heilbrigðisþjón- ustan er okkur öllum mikilvæg og skiptir máli að ríki jafni aðgengi að þeirri þjónustu. Menntun skiptir okkur öll máli Vestmannaeyjabær er í fremstu röð er varðar áherslur og aðgerðir í menntamálum. Öflugt starfsfólk og skapandi umhverfi skiptir þar miklu máli. Þróunarsjóður leik-og grunnskóla dafnar og er Tónlist- arskólinn að koma inn í sjóðinn á næsta ári. Snemmtæk íhlutun með áherslu á málþroska barna í leik- skólanum, í samstarfi við Mennta- málastofnun, er frábært verkefni sem verið var að ljúka innleiðingu á hér í Eyjum. Kveikjum neistann er langstærsta þróunar- og rann- sóknarverkefni á Íslandi og er í fullum gangi í GRV. Ég get ekki verið annað en ánægð fyrir hönd Vestmanneyjabæjar, Grunnskóla Vestmannaeyja, foreldra, nemenda og síðast en ekki síst kennarana sem eru þátttakendur í verkefninu með þessi fyrstu ár og árangurinn. Hermundur og hans fólk ásamt samstarfsaðilum eru að gera góða hluti og samfélagið hrífst með. Við hér í Eyjum erum stolt af verkefninu og að hafa verið fyrst sveitarfélaga til að taka þátt. Við erum að ná árangri. Nú horfum við fram á veginn og höldum áfram að þróa og bæta okkar góðu skóla okkur öllum til hagsbóta! Kraftur og trú! Vestmannaeyjar hafa upp á svo margt að bjóða sem er að mörgu leyti einstakt. Það vita þeir sem hér búa og þeir sem hafa sótt okk- ur heim. Mannauðurinn er mikill og kraftur og trú á samfélagið sést í uppbyggingu hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Verið er að lyfta grettistaki í innviðauppbyggingu. Þegar við bætist dugnaður, kraftur og Eyjastoltið þá er ekki hægt að segja annað en að framtíðin sé björt hér í Eyjum. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri: Dugnaður, kraftur og Eyjastoltið Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja og Hallgrímur Steinsson, framkvæmdastjóri, f.h. Sjálfbærs fiskeldis í Eyjum ehf., nú LIFS við undirritun samkomulags í júní 2020 vegna fiskeldis í Viðlagafjöru á Heimaey.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.