Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Síða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Síða 6
6 | | 5. júlí 2023 Á 50 ára gosloka afmæli í Vest- mannaeyjum er margs að minnast og hægt að rifja upp ýmislegt við þau tímamót. Íslendingar eru öðruvísi en annað fólk í ver- öldinni og við Eyjamenn aðeins meira öðruvísi. Það sést ekki á út- litinu en það er eitthvað sem hefur mótað karakterinn sem einkennir Eyjamanninn. Erfið lífsbarátta og nálægðin við náttúruöflin hefur átt stóran þátt í því að við erum öðru- vísi þegar við berum okkur saman við venjulegar mælistikur. Eitt af okkar einkennum er keppnisandi sem hefur oft verið á mörkum þess að vera talinn eðli- legur, jafnvel langt frá því. Hvað skýrir það að Eyja með 4600 íbúa er með 18 holu golfvöll, fjóra grasvelli til knattspyrnuiðkunar, knattspyrnuhús til vetrariðk- unar, þrjá innanhús leikvelli til handboltaiðkunar auk annara íþróttagreina í þeim salarkynnum. Þessu tengt er 25 metra sundlaug með góðu útisvæði. Að baki þessara mannvirkja liggur mikill metnaður og einlæg trú fjölda einstaklinga um mikilvægi þess að grunnurinn að góðu samfélagi er góð aðstaða til íþróttaiðkunar og heilsueflingar. Golfvöllurinn Fyrir gos þá byrjaði ég að sækja golfvöllinn á sumrin. Þá hafði móðir mín fengið áhugann á golfi og keypt hálft golfsett. Það varð úr að settið var fengið að láni þegar tækifæri var til þess og skundað í dalinn. Þegar drengur- inn skilaði sér ekki heim eftir átta tímana á golfvellinum varð móð- urtilfinningin sterk hjá mömmu og hún smurði nesti í box og skutlaði því inn á golfvöll svo við vinirnir myndum ekki svelta. Golfið hefur alla tíð síðan fylgt mér með mismikilli ástundun. Eftir gosið var golfvöllurinn í Herjólfsdal illa farinn og ekki leikhæfur. Félagar í golfklúbbnum létu það ekki stöðva sig. Fljótlega eftir að fólkið byrjaði að flytja heim eftir gosið þá var fundið svæði suður á Eyju sem hafði verið notað fyrir kindur og hesta. Græjaður 6 holu golfvöllur og fé- lagsstarfið komið í gang að nýju. Uppgjöf var ekki til í orðabókinni. Á meðan golfarar spiluðu golf sunnan við flugvöllinn var sam- hliða því unnið í sjálfboðavinnu við að hreinsa og gera golfvöll- inn kláran að nýju í Herjólfsdal. Eftir mikla vinnu var byrjað að spila golf í Herjólfsdal 1977. Byggður var nýr golfskáli sem var svokallað A-hús á þeim stað sem núverandi golfskáli er. Gamli golfskálinn frá því fyrir gos var þar sem ferðalangar hafa núna aðstöðu í Herjólfsdal. Ræktunarstarf og uppbygging Í hönd fór margra ára ræktunar- starf og uppbygging á þessum níu holu golfvelli sem þótti magnaður með fjallaveggina svo til í brautarköntum. Ég á góða og fallega minningu frá því þegar unglinghópurinn í GV mætti undir verkstjórn Ragga Rakara til að búa til sandgryfju við Fjósa- klettinn á 8. holu. Þetta var 11 manna hópur sem kláraði verkið á nokkrum klukkutímum. Það sem stendur upp úr er að Raggi skutlaði okkur öllum heim í einni ferð á litlum Fiat. Ég væri búin að gleyma þessar sandgryfjugerð ef ekki hefði verið bílferðin. Reikna með að brotið sé fyrnt og valdi vini mínum ekki vandræðum. Fyrir einhverja þótti níu holu golfvöllurinn alveg ágætis pakki til að sjá um og láta ganga upp fjárhagslega fyrir ekki fleiri borg- andi félaga. En Eyjamaðurinn var ekki á því að þetta væri endastöð- in. Hafin var undirbúningur að stækkun í 18 holu golfvöll sem tekinn var í notkun 1993. Allt frá þeim tíma hefur verið byggt upp í smáum skrefum hvort sem það snýr að iðkendum eða starf- seminni. Í dag hefur golfvöllurinn mikið aðdráttarafl fyrir golfara frá fastalandinu og er sterk stoð í ferðaþjónustunni í Eyjum yfir sumartímann. Samheldnin Það sem ég var að hugsa þegar ég settist við tölvuna og skrifaði þessa stuttu grein á þessum tíma- mótum sem goslokaafmælið er, þá var ætlunin að draga á einhvern hátt fram þá elju og vinnu sem Eyjamenn hafa lagt á sig til að byggja upp samfélagið eftir gosið. Ég tók smá snúning á golfklúbbn- um en sögur í þessum anda eru fjölmargar hvort sem þær snúa að Þór, Týr eða ÍBV. Einnig hefur félagastarfsemi í Eyjum verið öflug og skilað miklu til samfélagsins. Ég heyrði einu sinni mannlýsingu sem hljóðaði svona með rödd Einars í Betel: „Ekki fékk hann vitið í vöggugjöf – og ekki heldur í fermingargjöf.” Mér dettur þessi mannlýsing stundum í hug þegar við Eyja- menn eru að göslast áfram í bættri aðstöðu til allrar íþróttaiðkunar á síðustu áratugum. Ég þakka Guði fyrir að við Eyjamenn erum aðeins öðruvísi og fengum ekki allt í fermingargjöf. GV sveitin sigraði í sveitakeppni 50+ í Sandgerði 2017. Frá vinstri Eyþór Harðarson, Magnús Þórarinsson, Hlynur Stefánsson, Stefán Sævar Guðjónsson, Sigurjón Pálsson, Sigurður Sveinsson , Ágúst Ómar Einarsson ásamt starfsmönnum mótsins. Eyþór Harðarson Oddviti Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn: Uppgjöf var ekki til í orðabókinni

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.