Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Side 18

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Side 18
18 | | 5. júlí 2023 Miðstöðin hefur frá upphafi verið fjölskyldufyrirtæki en núverandi eigendur þess eru hjónin Marinó Sigursteinsson og Marý Ólöf Kolbeinsdóttir. Sigurvin Marinó Jónsson pípulagningameistari, afi Marinós sem nú rekur Miðstöð- ina, stofnaði fyrirtækið árið 1940 en rak það undir sínu nafni allt til 1950 þegar það fékk nafnið Miðstöðin. Marinó Sigursteins- son er þriðji ættliðurinn sem starfar við fyrirtækið og nú hefur fjórði ættliðurinn mætt, sonurinn Bjarni Ólafur sem vinnur við hlið föður síns. Fyrirtæki sem byrjaði í pípulögnum rekur í dag alhliða byggingavöruverslun og pípulagn- ingaverkstæði sem þjónustar stóra jafnt sem smáa og teygir anga sína upp á land. „Það er rétt, Miðstöðin byggir á gömlum grunni og ég er fjórði ætt- liðurinn sem kem að rekstrinum,“ segir Bjarni Ólafur og tekur undir að margt hafi breyst frá því langafi hans stofnaði fyrirtækið árið 1940. „Já, hér er ég og dóttir mín, Emelía, sem vinnur í afgreiðslunni og er fimmti ættliðurinn. Sjálfur vann ég hér sem unglingur með skóla. Kláraði sveinsprófið hér en eftir það fluttum við fjölskyldan upp á land og ég lauk byggingar- iðnfræðinámi frá Tækniskólanum og kláraði meistarann. Eftir það lá leiðin til Danmerkur þar sem við bjuggum í tíu ár. Þar lærði ég byggingafræði og starfaði fyrst sem pípari í 2 ár áður og á verk- fræðistofu í 5 ár en við fluttum aftur heim fyrir ellefu árum síðan. Ég var í fjögur ár hjá tæknideild Vestmannaeyjabæjar en þá kallaði Miðstöðin aftur. Það þurfti ekki að snúa upp á höndina á mér. Mér líkar að vera í atinu með skítuga putta.“ Miklar breytingar Bjarni tekur undir að sem iðngrein hafi pípulagnir tekið miklum breytingum frá því hann steig sín fyrstu skref í Miðstöðinni. „Ég náði að vinna með Didda afa og þá vorum við að handsnitta allt að fjögurra tommu galvinseruð rör. Mikið verk að snúa saman og herða. Nú er þetta allt í plasti og soðið saman. Við sjóðum saman upp í 400 mm plaströr sem tekur minni tíma og þau endast betur.“ Það er ekki bara að greinin hafi breyst, viðhorfið er annað með kröfu um betri nýtingu á orku og endurnýtingu hennar. „Eftir nám vann ég í fimm ár á verkfræði- skrifstofu í Danmörku. Vann ég m.a. skýrslur um allar byggingar í eigu sveitarfélagsins í Óðinsvéum sem fór í bók sem fylgdi hverju húsi ásamt viðhaldsáætlun. Fremst í bókinni voru merki eins og við sjáum á ísskápum, A++, A+ og alveg niður G. Það var orkumerkið sem hvert hús fékk og þar var svo hægt að sjá orkusparnað sem og hagkvæmni þeirra verkþátta sem mælt var með og hve lengi það tæki að byrja að borga til baka. Þannig gátu einkunnir húsa hækk- að og þar með fasteignarverð.“ Fara vel með orkuna Danir leggja mikla áherslu á að nýta orkuna og fara vel með hana. Hún er dýrari en hér og þeir einangra húsin vel og eru meira að hugsa um að halda hitanum inni en ekki kuldanum úti. „Danir fara vel með orkuna sem þeir borga fyrir. Nýting á varma er líka alltaf til skoðunar hjá okkur. Þar erum við að stíga misjafnlega stór en mikilvæg skref. Taka má sem dæmi orkuna í vökvakælingu mótora. Hana nýtum við með því að setja vökvann í lokuð kerfi tengd varmaskiptum á t.d. heitu neysluvatni. Þar kólnar vökvinn og fer aftur inn á mótorana. Með þessu er ekki bara verið að spara peninga, það er líka verið að minnka kolefnissporið. Í Dan- mörku fengum við póst um hver áramót frá orkusölufyrirtækjunum. Þar stóð ekki hvað þú varst búinn að spara mikinn pening heldur hver staðan var á kolefnissporinu. Fjölskyldan hafði minnkað kolefn- isnotkun um þetta mörg tonn með aðgerðum til að spara orku,“ segir Bjarni en sá danski er ekki hættur. Árið 2025 skal vera 400 mm ein- angrun í gólfum, 300 mm í þaki og 200 mm í veggjum. „Hjá okkur er þetta mest 100 mm í veggjum,“ segir Bjarni sem gerir ekki ráð fyrir að hertar reglur um einangrun í húsum á Íslandi yrðu samþykktar þegjandi og hljóðalaust. „Framtíðin er svokölluð „passiv- hus“, sjálfbær hús sem lágmarka aðkeypta orku sem er erfiðara hjá okkur því sólarsellur og varmadælur nýtast ekki eins vel. Í Danmörku og Þýskalandi eru heilu hverfin af sjálfbærum húsum eða „passivhúsum“ sem selja orkuna inn á bæjarkerfið. Þú getur verið með sólarsellur sem framleiða rafmagn og sólvarmadælur sem eru á lokuðu kerfi.“ Fjölbreytt verkefni Í dag vinna um 20 hjá Miðstöðinni og er þeim skipt í flokka. „Við erum með bæjarhóp sem sér um viðgerðir, endurnýjun lagna og hópa sem eru í Vinnslustöðinni, Ísfélaginu og laxeldinu. Alltaf notalegt að vinna í heimahúsum þegar boðið er upp á normalbrauð og fleiri góðgæti. Við verðum að passa að hinn almenni kúnni sitji ekki á hakanum. Ef dregst saman í sjávarútvegi er ekki gott að vera bara með fólk sem hefur sérhæft sig í stóru lögn- unum. Þess vegna látum við menn- ina fara á milli og núna er ég með sex lærlinga sem fara í allt, stóru rörin, lagnir í heimahúsum og allt þar á milli,“ segir Bjarni sem segir næg verkefni framundan. „Þróun í öðrum löndum nær hingað og píparar munu vera í lykilhlutverki þegar kemur að bættri nýtingu á orku og lækkun kolefnisspors í heiminum sem og stærri iðnfyrirtækjum.“ Bjarni Ólafur í Miðstöðinni Næg verkefni: Píparar menn framtíðarinnar Starfsmenn Miðstöðvarinnar í dag. Frá vinstri, Bjarni Ólafur Marinósson, Bjarki Ómarsson, Guðmundur Jón Magnús- son, Arnar Þór Lúðvíksson, Anton Már Óðinsson, Gauti Þorvarðarson, Guðjón Ingi Hauksson, Emelía Ögn Bjarnadóttir, Styrmir Jóhannsson, Arnar Freyr Önnuson, Ásmundur Ívar Óskarsson, Sveinn Hjörleifsson, Martin Gilpin, Sæþór Freyr Heimisson, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Einar Kristinn Kárason, Ómar Reynisson og Marinó Sigursteinsson.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.