Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Síða 23

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Síða 23
5. júlí 2023 | | 23 Heimir Hallgrímsson, tann- læknir og knattspyrnuþjálfari fer ekki troðnar slóðir þegar kemur að löndum til að þjálfa í. Eftir farsælan, svo vægt sé til orða sem þjálfari í íslenska karlalandsliðsins þjálfaði hann Al-Arabi í Katar árin 2019 til 2021. Þá tekur við hlé frá þjálfun þar til síðasta vetur að hann tók við lands- liði Jamaíka. Suðræn paradís í Karabíska sem hefur helst getið sér gott orð fyrir frábært íþróttafólk og tónlistina hans Bob Marley. Minna hefur farið fyrir afrekum þeirra á knattspyrnuvellinum en nú er Heimir tekinn við taumunum og stefnir hátt. Er kannski ekki í ólíkri stöðu og þegar hann og Lars Lagerbäck tóku við íslenska landsliðinu árið 2011. Stefnan var sett á að komast á stórmót og það tókst með eftirminnilegum hætti þegar Ísland komst í átta liða úrslit á EM í Frakklandi 2016 og HM í Rússlandi tveimur árum seinna. Og enn og aftur er stefnan sett á stórmót. Eiginkonan, Íris Sæ- mundsdóttir, fyrrum landsliðskona og þjálfari í knattspyrnu starfar með yngri landsliðum kvenna á Jamaíka þannig að þau hafa í mörg horn að líta. Bæði eru þau Eyjafólk og tóku út sinn þroska sem leikmenn og þjálfarar hjá ÍBV og skarta bik- armeistaratitli kvenna í fótbolta, hún sem fyrirliði ÍBV og hann þjálfari. Seinna náði Heimir mjög góðum árangri með karlalið Eyja- manna og nú er það Jamaíka. Stuttur aðdragandi „Aðdragandinn var ekki langur. Þetta þurfti að gerast hratt því þeir áttu leik við Argentínu í lok september 2022 og ég skrifaði undir tíu dögum fyrir leik. Það var sérstök staða að hafa ekki meiri tíma til að kynnast heilu landsliði. Hvað þá ef þú ert að fara spila við Argentínu. Það var kannski ekki auðveldasti eða uppáhalds- mótherjinn sem maður gat valið sér. Já, fyrirvarinn var stuttur en við ákváðum að slá til,“ segir Heimir. Hann vissi lítið um fótboltann á Jamaíka en þau voru þó ekki al- veg ókunnug landinu. „Við fórum þangað í frí fyrir 25 árum síðan og það fyndna er að við búum á nákvæmlega sama stað og þá. Þannig að við þekktum eyjuna, veðrið aðeins en vissum ekkert um fótboltann. Þeir eiga mikið af mjög góðum leikmönnum og í dag eru sex sem spila í Ensku úrvals- deildinni. M.a. Leon Baily hjá AstonVilla, Michael Anton- io hjá West Ham og Bobby Reid hjá Fulham. Mjög góðir leikmenn en það hefur ekki skilað sér upp í landsliðið. Það er því verkefnið að búa til gott lið og það er alveg raunhæft markmið.“ Heimir segir að þeim hafi verið mjög vel tekið. „Við getum ekki kvartað en þetta er lítið knattspyrnusamband sem hefur ekki úr miklum fjármunum að spila. Þannig að eðlilega gengur ekki allt upp. En móttökurnar voru góðar og allir mjög almenni- legir við okkur. Knattspyrnusam- bandið hefur mætt mótlæti en nú finnur fólk fyrir meðbyr. Okkur hefur gengið ágætlega og margt spennandi framundan,“ segir Heimir og eru það orð að sönnu. Stefnan sett á HM 2026 „Í sumar eru leikir í Mið- og Norður Ameríku sem CONGACAF, Knattspyrnusam- band Suður- Mið- og Norður Ameríku og þjóða í Karabískahaf- inu stendur fyrir. Þeir eru með sína meistaradeild, Gold Cup sem er haldin annað hvert ár. Heimsmeist- arakeppnin 2026 verður í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada og verður Suður Ameríku- keppnin haldin í Bandaríkjunum á næsta ári sem er stærsta álfukeppn- in utan Evrópu. Hún verður stækkuð þannig að hún verði í líkingu við HM og er liður undirbúningi fyrir Banda- ríkjamenn. Þar verða sex bestu þjóðirnar í CONGACAF. Við eigum möguleika á að fara á Gold Heimir og Íris leita uppi ævintýrin og ólíka menningarheima: Hollt og þroskandi að stíga reglulega út fyrir þægindarammann ÓMAR GARÐARSSON omar@eyjafrett ir. is Íris og Heimir kunna vel við sig á Jamaíka og þeim hefur verið vel tekið. ” Við fórum þangað í frí fyrir 25 árum síðan og það fyndna er að við búum á nákvæmlega sama stað og þá. Þannig að við þekktum eyjuna, veðrið aðeins en vissum ekkert um fótboltann.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.