Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Síða 39
5. júlí 2023 | | 39
___
Burðarþolshönnuður
Mannvit óskar eftir að ráða öflugan burðarþolshönnuð sem getur tekið að sér
alhliða burðarþolshönnun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hönnun bygginga, burðarþolshönnun á brúm, vatnsaflsvirkjunum, jarðvarmavirkjunum,
tengivirkjum og háspennulínum.
Menntunar- og hæfniskröfur
– Háskólamenntun í byggingarverkfræði eða tæknifræði
með áherslu á burðarþolshönnun
– Fimm ára reynsla af hönnun burðarvirkja er æskileg
– Reynsla af BIM hönnun, almennum reiknilíkönum, þrívíddarforritum
og Tekla Structures er kostur
– Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
– Frumkvæði og skipulagshæfileikar
Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Jónsson, sviðsstjóri burðarvirkja, tj@mannvit.is.
___
Tæknifólk í Vestmannaeyjum
Mannvit óskar eftir öflugu og metnaðarfullu fólki í fjölbreytt verkefni á starfsstöð Mannvits
í Vestmannaeyjum. Viðkomandi munu vinna jöfnum höndum að hönnun og eftirliti á sviði hús-
bygginga, gatna og annarra mannvirkja. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi og störfin fela
í sér tækifæri til þess að taka þátt í að byggja upp öfluga starfsstöð Mannvits á svæðinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Lögð er áhersla á að viðkomandi sinni hönnun, ráðgjöf og eftirliti í Vestmannaeyjum
ásamt hönnunarvinnu í fjarvinnu fyrir aðrar starfsstöðvar eftir því sem menntun og
bakgrunnur gefur tilefni til.
Menntunar- og hæfnikröfur
– Háskólamenntun á sviði byggingaverkfræði, byggingafræði,
tæknifræði eða önnur sambærileg menntun
– Jákvæðni og góð færni í mannlegum samskiptum
– Frumkvæði og skipulagshæfileikar
Nánari upplýsingar veitir Einar Ragnarsson, sviðsstjóri mannvirkja og umhverfis, er@mannvit.is,
og Sigurður Guðjón Jónsson, byggingarverkfræðingur, sigurdurgj@mannvit.is.
___
Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí 2023. Sótt er um störfin á mannvit.is.
Um Mannvit
Mannvit er ráðgjafarfyrirtæki á sviði verkfræði, umhverfismála og tækniþjónustu sem nýlega
sameinaðist alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækinu COWI. Við byggjum samkeppnisforskot okkar á
öflugum mannauði og samruninn skapar aukin starfstækifæri sem gerir fyrirtækið að enn
eftirsóttari vinnustað, en COWI er leiðandi fyrirtæki á Norðurlöndunum á sviði verkfræði, hönnunar
og arkitektúrs.
Hjá okkur starfar sterk liðsheild og við leggjum mikinn metnað í að skapa öruggt og gott
starfsumhverfi þar sem fólki líður vel og fjölbreytileikanum er fagnað.
Mannvit leitar að
öflugu fólki