Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 40

Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Blaðsíða 40
40 | | 5. júlí 2023 Ég var spurð að því um daginn hvernig mér fyndust Vestmanna- eyingar. Merkileg spurning og skemmtileg. Og gefur kannski strax til kynna að Vestmanna- eyingar séu eitthvað öðruvísi en annað fólk. Mín fyrstu viðbrögð voru að segja að ég upplifði Vestmannaeyjar einmitt bara eins og litla útgáfu af Íslandi, ég þekki nákvæmlega sömu týpurnar á Heimaey og Norðurey. En svo fór ég að hugsa þetta betur. Því ég vissi eiginlega alveg hvað viðkomandi meinti. Ég verð bara stundum hörundsár þegar fólk gefur þetta í skyn því mér finnst það vera gert af vanþekk- ingu og misskilningi. Að það sé eitthvað neikvætt við Vestmanna- eyinga. Þeir séu eitthvað skrítnari en annars gengur og gerist hjá landsmönnum. Svo er ekki. Samt er ég alveg sammála því að það sé eitthvað öðruvísi við Eyjamenn. En hvað er það? Hvað verður t.d. til þess að 4.500 manna bæjarfélag á lið í efstu deildum karla og kvenna í handbolta og fótbolta? Handboltaliðin spiluðu bæði til úrslita í vor, skiluðu þremur titlum og það þarf sko marga í fótboltalið. Margrét Lára og Ásgeir Sigurvins, landsliðs- þjálfararnir Heimir Hallgríms og Addi P. og jú Íslandsmethafinn í maraþoni, Hlynur Andrésson, er líka Eyjamaður. Ein af stærstu krakkamótum sumarsins eru haldin ár hvert í Vestmannaeyj- um og fólk streymir til Eyja í Puffin-run og á golfvöllinn sem er einhver sá flottasti í heimi. Allt gert með bros á vör Og þetta er bara hluti af íþróttalíf- inu. Bestu veitingastaðir lands- ins eru líka í Vestmannaeyjum, spennandi verslanir og lista- og menningarlífið er fjölskrúðugt. Eyjamenn halda stærstu útihátíð landsins og goslokahátíðin vex hratt. Það er eitthvað í gangi nánast hverja helgi yfir margra mánaða tímabil hjá bæjarfélagi sem er jafnstórt og Seltjarnarnes og Skagafjörður. Og ég hef aldrei hitt neinn sem fannst leiðinlegt að fara til Vestmannaeyja og heillað- ist ekki af stórbrotinni náttúrufeg- urðinni. Það er heldur ekkert mál að vera með stórar sjónvarpsútsendingar frá Eyjum því það eru allir til í að hjálpa og redda öllu. Það reddast alltaf allt í Vestmannaeyjum. Hvort sem það er að græja mat fyrir allt starfsliðið, skutlast á sjó eða lána aðstöðu. Hvenær sem er sólahringsins. Ekkert mál, alveg sjálfsagt og allt gert með bros á vör. Handboltamaðurinn Rúnar Kárason sagði nýlega í viðtali að hann hafi enn verið staddur á Sel- fossi þegar fyrstu Eyjamennirnir voru farnir að bjóða hann velkom- inn og búslóðin var komin inn á nýtt heimili áður en hann náði að snúa sér við. Ekki alveg venjulegir Maður skyldi kannski ætla að svona fólk byggi við einhvers konar fullkomnun, toppaðstæður í einhverjum skilningi, annars væri það ekki svona úr garði gert eða hvað? Eftir því sem ég hugsa þetta betur verð ég einmitt sannfærðari um að Eyjamenn séu svona eins og þeir eru vegna ögrandi að- stæðnanna sem þeir eru vanir að búa við. Nándin og baráttan við hafið, stopular og óáreiðanlegar samgöngur og hráslagalegir og dimmir vetur. Það er ekkert víst að þú komist í þá læknisþjónustu sem þú þarft, hvort blöðin komi á morgun eða hægt verði að halda tónleikana sem hafa verið í undir- búningi. Mörg hundruð manns afbóka sig á veitingastað eina helgina í maí vegna sjófæris og kokkurinn nýtir hráefnið í matar- bakka sem eyjaskeggjar sameinast um að kaupa. Þessi hugsunarháttur og viðhorf til lífsins kristallast í því sem þessi grein átti að snúast um; gosinu. Ég er nokkuð viss um að engum öðrum en Vestmannaeyingum hefði tekist að „redda“ því. Þeir eru nefnilega ekki alveg venjuleg- ir. Ég sé afa Magnús bæjarstjóra fyrir mér segja: „Komið bara aftur! Hér er allt að verða fínt!“. Meira að segja lundinn kom og hreinsaði holurnar sínar. Hálfri öld síðar nefna handboltamennirn- ir sem ekki voru orðnir fjarlæg hugmynd gosið sem ástæðu samstöðu og sérstöðu ÍBV. Vestmannaeyingar eru harðari af sér en annað fólk og það misskilst kannski stundum en gefur þeim og öllum hinum meira. Til hamingju með uppbygginguna, goslokaafmælið og að vera svona eins og þið eruð. Takk fyrir mig. Þið eruð einstök! Edda Sif dagkrárgerðarkona og Eyjakona: Það reddast allt í Vestmannaeyjum Edda Sif og fjölskylda, Vilhjálmur Siggeirsson og sonurinn Magnús Berg Vilhjálmsson með Herjólfsdal í bakgrunni.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.