Fréttir - Eyjafréttir - 05.07.2023, Page 44
44 | | 5. júlí 2023
Á miðvikudagskvöldið kl. 20:00
verður dagskrá í Eldheimum,
Gísli Helgason og Eyjapistlarnir
ógleymanlegu. Þar ætlar Gísli
segja frá Eyjapistlunum og spila
brot úr þeim auk þess að koma
fram með föruneyti valinna tón-
listarmanna og flytja lögin sín og
annarra ástsælla Eyjamanna. Með
honum í liði eru Unnur og Simmi,
Hafsteinn Guðfinnsson, Þórarinn
Ólason, Herdís Hallvarðsdóttir og
Magnús R. Einarsson.
Um þetta segir Gísli: Þann 5.
febrúar 1973 var mikill örlagadag-
ur í lífi okkar tvíbura, Arnþórs og
Gísla. Magnús bæjarstjóri hringdi
og spurði hvort við værum tilbúnir
að koma fram í Eyjapistli. Ég varð
harla glaður og tók því vel.
Svo rúmri klukkustund síðar hr-
ingdi Stefán Jónsson, fréttamaður
og sagði að frá og með morgun-
deginum ættum við að sjá um
Eyjapistil og fór nánar út í það.
Gerði okkur grein fyrir að það
væri ekkert undanfæri, borgaraleg
skylda. Við áttum að nota tvær
klukkustundir á dag í vinnu við
þættina. Staðreyndin varð sú að
þetta var þrotlaus vinna.
Eyjapistlarnir voru á hverjum
degi fram til júnímánaðar, svo sex
sinnum í viku og fór svo fækk-
andi. Við höfðum alltaf símann
við eyrað á nóttunni og það
hringdu margir og helltu tilfinn-
ingum sínum yfir okkur. Ég var
stundum miður mín eftir samtöl,
var rétt 21 árs og vissi ekkert
hvernig ég átti að höndla þetta.
Þá voru móðir mín og Eygló
móðursystir mín eins og klettar
við hliðina á mér.
Eyjapistill var á dagskránni frá
7. febrúar til 25. mars 1974. Þarna
voru lesnar ýmsar tilkynningar,
fréttir, afmæliskveðjur og birt við-
töl við fólk. Við reyndum að hafa
yfirbragð þáttanna með eins léttu
móti og við höfðum vit á.
Tónlist og valin atriði
Á tónleikum Föruneytis GH verða
flutt valin atriði úr Eyjapistlunum.
Það var mikið vandamál að velja.
Í byrjun verður þetta ljúfsárt, en
svo léttist þetta eftir því sem á
líður. Við heyrum t.d. auglýsingu
frá einu átthagafélagi Vestmanna-
eyinga þar sem menn eru hvattir
til þess að taka með sér brjóst-
birtu á ball og hlutum við miklar
skammir fyrir að hálfu Ríkisút-
varpsins.
Ég mun birta ýmsar tilkynningar
sem okkur bárust um svarta plast-
poka með hinu og þessu í. Ein til-
kynning sem er bara til í handriti
fjallar um týndan plastpoka með
bollastelli m. a. norska biblíu,
kven-nærbuxur ásamt fleira dóti.
Svo koma brot úr viðtölum.
Anna í Vatnsdal segir t. d. frá
því þegar húsið hennar fór
undir hraun. Við heyrum bein
samtöl við fólk, tekin í síma
og krakkar verða ekki útundan.
Palli Steingríms birti viðtöl við
börn í Noregi og við finnum til
barnatíma sem var fluttur á milli
jóla og nýárs en umsjónarmenn
Eyjapistils stóðu að honum. Þar
segir einn strákur, nemandi í
Barnaskóla Vestmannaeyja frá
prakkarastriki þegar verið var að
safna eða stela í áramótabrennu
og stelpur fengu ekki að vera
með.
Svo flytjum við tónlist, undir-
ritaður, Herdís Hallvarðsdóttir,
Magnús R. Einarsson, Hafsteinn
Guðfinnsson og fleiri.
Það kviknuðu ýmsar tilfinningar
við að fara yfir þá þætti sem til
eru, en alls urðu Eyjapistlarnir
261. 53 þættir eru til hjá Rík-
isútvarpinu en tæplega 30 voru
varðveittir ´á segulböndum okkar
Arnþórs.
Áætla má að um 750 manns
hafi komið fram í þáttunum og
heildartími allra um 90 klukku-
stundir.
Ég er þakklátur öllum þeim
sem stuðlað hafa að því að þessi
tónleikar verði að veruleika.
Kristín Jóhanns hefur alltaf sýnt
mér og okkur ræktarsemi og
mikla vinsemd.“
Eldgosið
1973 og
þróun
byggðar
og mann-
lífs í Eyjum
Laugardaginn 8. júlí nk.
kl. 12.00 – 13.30 verður
goslokaviðburður í bíósaln-
um í Kviku við Heiðarveg
sem ber heitið Eldgosið
á Heimaey 1973 og áhrif
þess á þróun byggðar og
mannlífs í Eyjum. Brugðið
verður upp á sýningartjald
myndum og skýringum
sem tengjast eldgosinu á
Heimaey og þeim gríðar-
legu áhrifum sem það hafði
á allt umhverfið. Þá verða
sýndar myndir af húsum í
austurbænum eftir að þau
voru grafin upp að loknu
gosi. Rúmlega helmingur
þeirra voru seld nýjum
eigendum, en önnur dæmd
ónýt og brotin niður.
Þá mun Páll Zóphóníasson,
sem var í forystu Eyja-
manna í eldgosinu og Hall-
grímur Tryggvason, vélvirki
sem vann við sjódælingu á
hraunið fara yfir atburði
sem höfðu mikil áhrif og
sitja eftir í minningunni.
Að lokum verður brugðið
upp rúmlega 100 myndum
sem sýna þróun byggðar, at-
vinnulífs og mannlífs í Eyj-
um með áherslu á tímabilið
frá upphafi vélbátaaldar í
Eyjum.
Skipta má þessu tímabili
upp í tvö 50 ára tímabil,
fyrir og eftir eldgosið á
Heimaey 1973. Margir
aðilar komu að myndavali
sem tengjast atburðum á
hverju ári.
Þessi kafli tekur um 30
mínútur í sýningu og verður
Eyjatónlist leikin undir.
Reiknað með að þessi
viðburður standi í 1,5 klst.
í heild og verði lokið kl.
13.30.
Arnar Sigurmundsson hefur
umsjón með þessum við-
burði. Frá 1973 eru komnar
til sögunnar tvær nýjar
kynslóðir og þeir Eyjabúar
sem upplifðu á eigin skinni
þennan einn stærsta atburð
Íslandssögunnar fyrir 50
árum eru margir fallnir frá
og aðrir 50 árum eldri.
Gísli Helgason og föruneyti í Eldheimum:
Eyjapistlarnir ógleymanlegu
og Eyjalögin
Stórfjölskyldan - Myndin var tekin í 90 ára afmæli móður Gísla, Guðrúnar Stefánsdóttur frá Skuld sem var fædd
30. júní 1908. Faðir þeirra var Helgi Benediktsson sem var atkvæðamikill í útgerð í Vestmannaeyjum um miðja síðustu
öld. Bræðurnir Gísli og Arnþór eru fremst til hægri.