Fréttir - Eyjafréttir - 03.08.2023, Blaðsíða 2
Útgefandi: Eyjasýn ehf. - kt. 480278-0549
Ægissgötu 2 - 900 Vestmannaeyjum.
Ritstjórn og ábyrgð: Ómar Garðarsson og Sindri
Ólafsson - omar@eyjafrettir.is - sindri@eyjafrettir.is.
Umbrot: Leturstofa Vestmannaeyjum ehf.
Ljósmyndir: Blaðamenn Eyjafrétta.
Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf.
Sími: 481 1300
Netfang: frettir@eyjafrettir.is.
Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is
Veffang: www.eyjafrettir.is
EYJAFRÉTTIR er áskriftarblað.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
„Auðvitað er mikil ábyrgð fólgin í
því en það er einnig mikill heiður
og mikil áskorun. ÍBV skipar stór-
an sess í bæjarfélaginu, er með
karla- og kvennalið í efstu deild
bæði í handbolta og fótbolta sem
er ótrúlegt í ekki stærra bæjarfé-
lagi ásamt því að halda úti yngri
flokka starfi. Þá heldur félagið
þrjá risa viðburði yfir sumartím-
ann, sér um þrettándann og heldur
handboltamót á veturna. Eðlilega
koma upp hnökrar hér og þar í svo
viðamiklu starfi en vandamálin
eru til þess að leysa þau,“ segir
Sæunn Magnúsdóttir sem er að
byrja sitt annað ár sem formaður
ÍBV-íþróttafélags sem heldur
þjóðhátíðina að venju.
Er eitthvað sem hefur komið þér
á óvart sem formaður ÍBV? „Ég
hef lært margt og mikið síðasta
árið. Ég vissi að ÍBV héldi stærstu
viðburðina í Eyjum ár hvert og
því mjög mikilvægt viðskipta-
lífinu hér í bæ en ég áttaði mig
ekki á því hversu rosalega stórt
vörumerki ÍBV er.“
Hvernig er að vera orðin þátttak-
andi í undibúningi þjóðhátíðar?
„Ég hef nú lengi komið að undir-
búningi hátíðarinnar í gegnum
vinnuna og því svolítið skrítið
að vera í sumarfríi og láta aðra
um leyfamálin. Það er hins vegar
mjög skemmtilegt að taka þátt í
undirbúningi hinu megin frá.“
Hvert er þitt hlutverk í því? „Þar
sem ég hef töluverða þekkingu á
leyfamálum hef ég helst leiðbeint
og aðstoðað framkvæmdastjóra
varðandi umsóknir og leyfamál.
Félagið hefur átt og vill eiga gott
samstarf við leyfisveitendur og
umsagnaraðila og hefur t.a.m.
unnið mikla og góða greinargerð
sem fylgir umsókn um hátíðina
og ætti að auðvelda vinnu bæði
félagsins umumsagnaraðila.“
Klár í slaginn
Bjartsýn á góða þjóðhátíð? „Já.
Auðvitað, spáin er góð, Dalurinn
glæsilegur, nýr rennilás á tjaldinu
og búslóðin klár til flutnings.“
Loks, ertu mikil þjóðhátíðar-
kona? „Ójá, það eru einhverjir
töfrar við þessa hátíð, það er ekki
bara hátíðin sjálf heldur líka allt
stússið í kringum hana sem gera
hana alveg einstaka og ómissandi.
Líkt og flestir Eyjamenn hefur
fjölskyldan mín sína siði og venj-
ur í kringum hátíðina en Þjóðhátíð
skipar stærstan sess í hjarta mínu
af öllum fjölskyldusamkomum
ársins.
Það er alltaf gestkvæmt hjá okk-
ur hjónum á þjóðhátíð og töfrarnir
koma berlegast í ljós þegar
gestir okkar fá að upplifa hátíðna
frá sjónarhorni Eyjamanna.
Skyldumæting er á setninguna þar
sem þeir sjá hátíðleikann og öðl-
ast virðingu fyrir hátíðinni okkar
og því mikla starfi sem sjálfboða-
liðarnir okkar inna af hendi,“
sagði Sæunn að endingu.
Sæunn Magnúsdóttir formaður Mikil ábyrgð og heiður:
ÍBV er risastórt vörumerki
Ári á undan. Sæunn og eiginmaðurinn, Sveinn Hjalti Guðmundsson, flugmaður, á leið í Dalinn sem Barbie og Ken.