Fréttir - Eyjafréttir - 03.08.2023, Blaðsíða 4
4 | | 3. ágúst 2023
Að ala upp barn sem á 4000 foreldra
E Y J A M A Ð U R I N N
Ellert Scheving Pálsson tók við
sem framkvæmdarstjóri ÍBV-
íþróttafélags fyrir stuttu. Hann
hefur því í mörg horna að líta
þessa dagana við undirbúning
Þjóðhátíðar.
Nafn: Ellert Scheving Pálsson:
Fjölskylda: Ég er giftur Sólveigu
Rut Magnúsdóttur og saman eigum
við Daníel Gauta 10 ára og Söru
Sól 19 mánaða.
Hefur þú búið annarsstaðar en í
Eyjum: Já ég bjó í Hafnarfirði þar
til ég flutti til Vestmannaeyja árið
2001.
Mottó: Þetta er ekki spurning um
hvað þú getur heldur hvað þú gerir.
Síðasta hámhorfið: Ég man það
eiginlega ekki, það er svo langt
síðan. Ég mæli samt alltaf með
Atlanta.
Uppáhalds hlaðvarp? Ég hlusta
á Dr. Football, Steve Dagskrá og
Disgraceland meðal annarra.
Aðaláhugamál: Ég hef áhuga á
flestum íþróttum. Aðallega fótbolta
og handbolta. Ég hef einnig mik-
inn áhuga á hjólreiðum.
Eitthvað sem þú gerir á hverjum
degi sem þú gætir ekki verið án:
Ég vildi óska þess að ég gæti sagt
líkamsrækt en ég reyni að hjóla
daglega og finnst fátt betra.
Venjulegur dagur hjá þér? Ég
er vakinn af dóttur minni flesta
morgna, snemma. Þá byrjar
ákveðinn glundroði sem tekur
svona 45 mínútur og endar með
því að öll fjölskyldan er kominn
á sinn stað, leikskóla, skóla og
vinnu. Dagarnir eru mismunandi
eins og þeir eru margir, sérstaklega
í þessu starfi sem ég er í en oftast
er það síminn og tölvupóstur sem
tekur yfir daginn.
Hvað óttast þú mest: Ég hef alið
með mér einhvern sérkennilegan
ótta við geitunga.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Það er margt en þessa dagana
er ég hrifinn af nýju lagi GusGus
og Birnis.
Hvað er velgengni fyrir þér: Mér
finnst velgengni vera ofboðslega
stórt hugtak. Fyrir mér er það
kannski bara að geta farið sáttur á
koddann. Að eiga góða fjölskyldu
og vini er líka ákveðin tegund af
velgengni.
Hvernig leggst framkvæmdar-
stjórastarfið í þig? Það leggst bara
vel í mig. Þetta er auðvitað svolítið
yfirþyrmandi svona til að byrja
með enda í mörg horn að líta. Mér
var einu sinni sagt að það að starfa
hjá ÍBV væri eins og að ala upp
barn sem á 4000 foreldra. Ég held
að það sé sannleikur í því.
Í þessu starfi er Þjóðhátíð auðvit-
að eitt stærsta verkefnið. Ég er svo
heppinn að vera partur af frábærri
Þjóðhátíðarnefnd, þar er valinn
maður í hverri stöðu. Það er líka
þannig að ef ekki væri fyrir ótrú-
legt starf sjálfboðaliða í Dalnum þá
færi hátíðin ekki fram. Það er gott
að hafa það hugfast.
Hefur þú sett þér einhver markmið
í starfi? Ég vil að ÍBV skili afburða
barna og unglingastarfi og það er
mitt markmið í starfinu. Það er
mikilvægast.
Ætlar þú að vera á Þjóðhátíð? Að
sjálfsögðu.
Er þjóðhátíðarhefð hjá ykkur?
Þetta er einhvern veginn alltaf eins
hjá okkur. Kaffi á setningu svo er
það bara brekkan og stuð í tjaldinu
þegar líður á nóttina.
Hvað stendur upp úr á Þjóðhá-
tíð? Ég hef alltaf verið hrifinn af
brennunni. Það er einhver ró sem
myndast í dalnum þegar er kveikt í
henni. Ég kann að meta það.
Eitthvað að lokum? Ég vil óska
öllum Þjóðhátíðargestum góðrar
skemmtunar. Við skulum hafa það
í huga að Vera Vakandi og spyrjum
fólk hvort það sé allt í lagi. Þetta
er fjölskylduhátíð okkar allra og
munum að hlúa vel að yngstu
gestunum. Góða skemmtun.
E L L E R T S C H E V I N G P Á L S S O N
Ellert ásamt syninum Daníel Gauta.
Diljá Pétursdóttur gegndi hlut-
verki fulltrúa Íslands í Eurovision
í ár með lagið Power sem hún
samdi ásamt hinum vinsæla
pródúsent Pálma Ragnari. Hún
söng sig inn í hjörtu landsmanna
í Söngvakeppni Sjónvarpsins og
var send rakleiðis til Manchester í
stóru keppnina. Diljá hefur verið
að vinna að nýrri tónlist og er
sömuleiðis að fara að leika í nýrri
þáttaröð fyrir Sjónvarp Símans.
Bæði mun Diljá troða upp á
föstudagskvöldinu og á fimmtu-
daginn á Húkkaraballinu sem fer
fram í portinu á bakvið Strandveg
50. Með henni í portinu verða
meðal annars Sprite Zero Klan,
Gugusar, JóiPé x Króli og Snorri
Ástráðsson.
„Ég hef farið fjórum sinnum á
Þjóðhátíð. Tvisvar sinnum sem
barn fór ég á sunnudeginum með
fjölskyldunni og svo fór ég árin
2019 og 2022 frá föstudegi til
sunnudags. Upplifunin hefur alltaf
verið mjög góð og stemningin
mikil.” Aðspurð sagðist hún vera
spenntust fyrir atriði hljómsveitar-
innar XXX Rottweiler Hunda sem
leika fyrir dansi á Brekkusviðinu
aðfaranótt laugardags.
Ekki mínútu seinna
„Með mér í atriðinu verða Sólrún
Mjöll trommari og Reynir Snær
gítarleikari og við erum búin að
púsla saman „neglusetti”. Við
erum að vinna með blöndu af
lögum eftir mig og Pálma Ragnar
og endurgerð á íslenskum lögum
sem flestir ættu að kannast við”
segir Diljá sem bíður spennt eftir
því að fá að koma fram.
„Það er mæting í dalinn á föstu-
daginn í seinasta lagi klukkan níu
og ekki mínútu seinna en það”
segir Diljá að endingu en hún er
önnur til að stíga á stokk, beint á
eftir tónlistarkonunni Unu Torfa.
Diljá Pétursdóttir:
Búin að púsla saman „neglusetti”