Fréttir - Eyjafréttir - 03.08.2023, Blaðsíða 16
16 | | 3. ágúst 2023
Emmsjé Gauta þarf vart að
kynna enda einn ástsælasti
tónlistarmaður og rappari
okkar Íslendinga. Gauti, sem
heitir fullu nafni Gauti Þeyr
Másson, er einnig flytjandi
þjóðhátíðarlagsins í ár sem
hefur slegið rækilega í gegn
og fjallar um þúsund hjörtu
sem að slá í takt. Lag og
texti eru samin af Gauta og
Þormóði Eiríkssyni, einum
eftirsóttasta pródúsent á
landinu. Tónlistarmaðurinn
Jón Jónsson tók sömuleiðis
þátt í lagasmíðinni. Karlakór
Vestmannaeyja og Kvennakór
Vestmannaeyja eru báðir með
í laginu en Gauti gerði sér leið
til Eyja í vor bæði til þess að fá
kórana til að syngja inn á lagið
og til að taka upp tónlistar-
myndband. Gauti var á leið í
sænska móðurskipið IKEA með
fjölskyldu sinni þegar blaða-
maður heyrði í honum.
Gengið smurt fyrir sig
„Ég hef alltaf verið spenntur
fyrir því að spila á Þjóðhátíð en
í þetta skiptið er einhvers konar
auka fiðringur fyrir því að vera
með lagið. Ég væri að ljúga ef ég
myndi ekki segja að ég væri pínu
stressaður en ég held að þetta
sé samt allt eðlilegt, bara svona
týpískt stress sem ég upplifi alltaf
fyrir svona stór gigg.”
„Ég held ég hafi aldrei fundið
fyrir jafn mikilli pressu að semja
músík. Vanalega finnst mér eigin-
lega engin pressa að semja músík
en þarna varstu með tímaramma
og kannski ekki beint einhverjar
reglur, en það eru samt alveg
óskrifaðar reglur. Allavega ef
maður ætlar að ná þessu í gegn þá
þarf þetta að vera í einhvers konar
ákveðinni þemu, en ég er alveg
rosalega sáttur með útkomuna og
er eiginlega bara ennþá að átta
mig á því hversu jákvæð við-
brögðin eru búin að vera. Það er
búið að vera lyginni líkast hvað
allt ferlið er búið að ganga vel fyr-
ir sig eftir að við gáfum út lagið.
Þetta hefur bara runnið einhvern
veginn smurt fyrir sig.”
En hvernig kom lagið til þín?
„Það kom til mín í draumi, nei
djók. Ég held bara að eftir margar
stundir í stúdíóinu með Þormóði
og eftir að hafa kafað í það hvern-
ig okkar upplifun á Þjóðhátíð er
þá bara kom þetta. Mér fannst
okkar upplifun einhvern veginn
þurfa að endurspegla textann en
lagið þurfti líka að vera þannig
að fólk gæti tengt við það. Ég hef
aldrei farið sem gestur á Þjóðhá-
tíð heldur hef ég alltaf farið sem
atriði þannig að fyrir mér er þetta
bara um að standa uppi á sviði og
horfa á mörg þúsund manns, það
er svona mín upplifun. Síðan þarf
maður bara að vera smá klisju-
gjarn og breyta manneskjum í
hjörtu og syngja fallega um það.”
Hef ekki hugmynd um
hvaða lið þetta er
Gauti kom fyrst fram á Þjóðhátíð
árið 2014 og verður þetta sjötta
skiptið sem hann treður upp á
stóra sviðinu. „Ég ætla aðeins að
breyta til núna samt og taka alla
fjölluna með. Ég hef alveg tekið
konuna með áður en núna ætlum
við að taka börnin og fá svona
fjölskylduupplifunina af hátíð-
inni.”
Fjölskyldan auglýsti eftir
gistingu í vinsælum hópi Eyja-
manna á samfélagsmiðlinum
Facebook og ekki leið á löngu þar
til heimamenn voru búnir að opna
heimili sín fyrir þeim. „Við erum
bara mætt í eitthvað heimahús hjá
einhverju fólki og okkur er boðið
í kjötsúpu. Ég hef ekki hugmynd
um hvaða lið þetta er.”
Ætliði að vera yfir alla helgina?
„Nei, því miður verðum við bara á
föstudeginum. Ég er að spila þessi
Hlakkar til að vera lukkutröllið í ár
Með alla fjölskylduna á Þjóðhátíð Í kjötsúpu hjá ókunnugum
SALKA SÓL ÖRVARSDÓTTIR
salka@eyjafrett ir. is