Fréttir - Eyjafréttir - 03.08.2023, Blaðsíða 26
lega ekkert annað í stöðunni en að
halda Þjóðhátíð.“ Hann segir sér-
stakan anda hafa verið á hátíðinni.
„Það var mjög einbeittur vilji hjá
fólki að hafa gaman í skugga alls
þess sem gengið hafði á. Bátarn-
ir sem voru á sjó komu í landi
til að sjómenn gætu tekið þátt í
hátíðinni. Það komu nokkrir ofan
af landi til að mæta á hátíðina
en þeir voru ekki margir.“ Birgir
segir það líka hafa verið mikilvæg
skilaboð útávið að lífið yrði aftur
venjulegt í Vestmannaeyjum. „Það
er auðvitað ómögulegt að fullyrða
en ég held að þessi þjóðhátíð hafi
skipt máli í því að halda þessari
baráttu gangandi.“
Hafði meiri áhuga
á brennunni
Þjóðhátíð var aftur haldin á
Breiðabakka í ágúst 1974 en þá
með hefðbundnu þriggja daga
sniði. Þórarinn, Friðbjörn Ólafur
Valtýsson eða Bibbi eins og hann
er oft kallaður kom að undirbún-
ingi hátíðarinnar en faðir hans
Valtýr Snæbjörnsson var formaður
þjóðhátíðarnefndar Þórs á þessum
tíma. „Það var svo mikill hugur í
öllum og þessir frasar „Heima á
ný“ og „Eyjar munu rísa“ ómuðu
út um allt og menn óðu hér eld
og brennistein fyrir samfélagið
og það munaði ekkert um að
henda upp einni Þjóðhátíð.“
Bibbi segir það hafa gert þessa
hátíð sérstaka var sú staðreynd
að verið var að halda upp á 1100
ára afmæli Íslandsbyggðar og 100
ára afmæli Þjóðhátíðarinnar sem
varð náttúrulega upphaflega til í
kringum 1000 ára afmæli byggðar
í landinu. „Það voru heiðursgestir
á hátíðinni að því tilefni og þeir
fluttu þeir ávörp forseti Íslands,
herra Kristján Eldjárn og Birgir
Ísleifur Gunnarsson borgarstjóri
Reykjavíkur. Einnig bauð bæj-
arstjórn Vestmannaeyja Richard
Beck til hátíðarinnar hann var
frægur Vestur-Íslendingur. Ég var
alveg rólegur yfir þessum mönn-
um öllum saman. Ég hafði meiri
áhuga á brennunni, hún var mitt
aðalverkefni á þessum tíma. Það
var annars ótrúlegt hvað menn
lögðu á sig að koma þessu upp en
eljan og viljinn í Eyjum var bara
svo mikill á þessum tíma,“ sagði
Friðbjörn aðspurður um hátíðina
1974. Það vakti athygli blaða-
manns að fram kemur í Fréttum
(síðar Eyjafréttum) í aðdraganda
hátíðarinnar að mikil eftirspurn
sé eftir hvítum tjöldum þar sem
margir hafi tapað sínum tjöldum
undir hraun.
Tjörn, bátur og danspallur
í láni
Árið 1975 var hátíðin aftur í
höndum Týrara á Breiðabakka.
„Þetta gekk náttúrulega allt út
á það að gera betur en hinir,“
sagði Biggi Gauja aðspurður um
hátíðina 1975. „Þá byggðum við
stóran danspall úr timbri og þetta
var ekkert flókið í þá daga. Við
fengum bara allt timbrið lánað
og skiluðum því aftur í timbur-
söluna eftir hátíð, það var ekkert
verið að flækja hlutina. Við fórum
líka í það þetta ár að útbúa tjörn
á miðju svæðinu og komum
okkar gosbrunni fyrir þar. Það
tók svolítinn tíma að græja það
en einhvern veginn hafðist þetta.
Mesta vesenið á okkur fyrir þessa
hátíð var líklega báturinn sem við
drösluðum á brennuna. Hann var
dreginn frá Friðarhöfn inn í Klauf
og þar var hann var sagaður í þrjá
parta í fjörunni. Það þurfti margar
hendur og stórar vélar til að koma
þessu upp úr fjörunni og upp á
brennustæðið.“ Brennustæðið á
Breiðabakka var nálægt þeim stað
þar sem nú má finna upplýs-
ingaskilti um Surtsey. „Þetta var
ógurleg vinna, bæði að koma
bátnum í land og svo að saga hann
og svo að koma honum upp úr
fjörunni þetta tók marga daga. En
þetta var allt í góðum gír,“ sagði
Biggi og glotti.
Vildum ekki missa
niður hátíðina
Veðrið var ekki að hjálpa til á
þessari þjóðhátíð. „Það rigndi eins
og andskotinn á þessari þjóðhátíð
eins og öllum sem haldnar voru á
Breiðabakka. Ingimar Eydal var
með hljómsveit á sviði á laugar-
dagskvöldi og þegar hann var
búinn að hella þrisvar sinnum úr
orgelinu þá var ballinu slúttað. Á
sunnudag var farið með hátíðina
inn í samkomuhúsið. Þá var allt
rignt niður og ekkert vit í að halda
áfram úti.“
Birgir segir þessar Breiðabakka-
hátíðir ekki hafa verið mikla
fjáröflun fyrir félögin. „Þær gáfu
ekkert sérstaklega mikið í aðra
hönd, það skipti máli að halda
áfram, við vissum að við færum
aftur inn í dal og vildum ekki
missa niður hátíðina.“
26 | | 3. ágúst 2023
Bjarni Ólafur Guðmundsson, Hreimur Örn Heimisson og Magnús Birgir Guðjónsson. Mynd; Addi í London
Þétt setinn Breiðabakki. Mynd; Sigurgeir Jónasson