Fréttir - Eyjafréttir - 03.08.2023, Blaðsíða 31
3. ágúst 2023 | | 31
Hvernig finnst þér hafa gengið
hingað til? Þetta hefur gengið bara
ágætlega, hafa komið kaflar þar
sem við erum ekki sáttir með og
kaflar sem við erum sáttir með og
við erum meira en klárir í seinni
hlutann af þessu móti.
Það hafa verið mikið af óhappa
meiðslum og fjórir á förum í
háskólaboltann. Hvernig ætlið þið
að tækla framhaldið? Ekkert öðru-
vísi, við erum með mjög flottan
hóp og það stíga þá bara aðrir upp
fyrir þá sem eru að fara erlendis.
Hvernig er stemmningin og
mórallinn í hópnum? Stemningin
er hrikalega góð, þetta er mjög
þéttur hópur og allir klárir í að
bakka hvorn annan upp.
Þú hefur verið óheppinn með
meiðsli, hvernig gengur endur-
hæfingin? Já óheppinn eða ekki,
undirlagið er ekki að gera neinum
gott hérna en endurhæfingin
gengur bara þokkalega, erum bara
að stjórna álaginu og vona að það
virki fyrir mig.
Er liðið búið að setja sér mark-
mið í næstu leikjum? Nei svo
sem ekki, við erum ekki að horfa
lengra en í næsta leik sem er erfitt
verkefni gegn Víking á útivelli og
eins og er erum við bara að horfa
þangað.
Hvernig er spennustigið fyrir
Þjóðhátíðarleiknum í hópn-
um? Það er bara gott, hrikalega
skemmtilegt að spila leik hérna
í Eyjum yfir Þjóðhátíð og þetta
verður bara stuð og stemning.
Ætlar þú að vera á Þjóðhátíð? Já,
ég fer ekki af eyjunni þá helgina.
Eitthvað að lokum? Vill bara
koma fram þakklæti til ykkar sem
hafið mætt á leikina hjá okkur
og staðið með okkur. Það hefur
hrikalega mikla þýðingu og við
hina sem hafa ekki verið að mæta
þá væri gaman að sjá ykkur á vell-
inum og taka þátt í þessari baráttu
með okkur.
Áfram ÍBV
Hvernig finnst þér hafa gengið
hingað til? Ég er dálítið svekkt
með árangur okkar það sem af er
tímabilinu en við trúum samt að
við getum fengið eitthvað út úr
leikjunum sem við eigum eftir.
Hvernig líkar þér Vestmannaeyjar
og hvernig er boltinn hér sam-
anborið við fyrri staði? Ég elska
eyjuna og hversu náið samfélagið
er. Það er mjög góð og huggandi
tilfinning fyrir mig, svona langt
að heiman því það eru kunnuleg
andlit allt í kringum mig. Ég var
að spila háskólafótbolta í Utah og
Boston áður en ég kom til Íslands.
Íslenskur fótbolti er ekki ósvipað-
ur því sem ég er vön. Leikstíllinn
er svolítið öðruvísi en hann er
auðvitað háður liðinu. Stærsti
munurinn á háskólareynslu minni
og reynslu minni á Íslandi myndi
ég segja vera umhverfið og að-
staðan, því Ísland er augljóslega
minna land.
Hvernig er mórallinn og stemmn-
ingin í hópnum? Slæm úrslit
hafa áhrif á okkur en við erum
staðráðnar í að halda saman og fá
sem mest út úr tímabilinu.
Hefur liðið sett sér markmið
fyrir næstu leiki? Engin sérstök
markmið, en hins vegar vitum við
að í okkar stöðu skiptir hvert stig
máli og við förum inn í hvern leik
vitandi það.
Ætlar þú á Þjóðhátíð? Já, ég ætla
á Þjóðhátíð.
Hefur þú farið á Þjóðhátíð áður
og hvað stendur upp úr? Já, ég fór
í fyrra. Mér finnst skemmtilegt
hversu miklu máli þjóðhátíð skipt-
ir fyrir alla á Íslandi. Ég hef aldrei
upplifað aðra eins hátíð áður en
ég kom til Íslands, svo mér finnst
þetta allt mjög einstakt. Ég elska
þegar allir sitja í brekkunni og
syngja saman.
F Y R I R L I Ð A R Í B V Í F Ó T B O L T A N U M T E K N I R T A L I DÍANA ÓLAFSDÓTTIR
diana@eyjafrett ir. is
Eiður Aron Sigurbjörnsson fyrirliði karlaliðs ÍBV:
Þakklátur þeim sem mæta á völlinn
Haley Thomas fyrirliði kvennaliðs ÍBV:
Hvert stig skiptir máli