Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.08.2023, Side 10

Fréttir - Eyjafréttir - 03.08.2023, Side 10
10 | | 3. ágúst 2023 í hreinsun fyrir nokkrum árum. Eitthvað hafði það hlaupið því tengdapabbi þurfti að saga súlurn- ar til svo dúkurinn passaði. Eitt af minnstu tjöldunum í Dalnum,“ segir Kristjana. „En karakterinn er alltaf jafnstór,“ segir Kári. Ekki segjast þau ganga í fótspor foreldranna þegar kemur að undirbúningi þjóðhátíðar enda allt miklu af- slappaðra en á árum áður. „Við höfum oft notið þess að deila tjaldinu með hótelstjóran- um á Hótel Vestmanna- eyjum, henni Maríu Ýr,“ segir Kristj- ana og á þar við Maríu Ýr Krist- jánsdóttur mágkonu sína. „Hún er einstaklega myndarleg í einu og öllu. Það verð- ur enginn svangur með henni í tjaldi. Hún er sko sjúklega myndarleg og það er allt gott sem hún gerir.“ Kári vill halda nafni konunnar á lofti og nefnir hinar ómissandi lefsur sem Kristjana bakar. Segir þær hafa öðlast mikla frægð en hvað eru lefsur? „Það er réttur sem Kristjana Ingólfs og Kol- brún Sól, frænkur mínar voru alltaf með. Tacopönnukaka með allskonar gromsi og skorin í litla bita. Alltaf jafngott og ógeðslega vinsælt,“ segir Kristjana. „Döðlugottið er alltaf vinsælt. Samlokurnar og lagterturnar, hvítu og brúnu sem mamma bakar klikka ekki.“ segir Kári. „Núna erum við færri en venjulega, allir á ferðalagi og í útlöndum. Þegar við erum öll er umfangið meira, allir koma með sitt, gamaldags og nýmóðins og alltaf möffins og pitsusnúðar fyrir börnin,“ segir Kristjana. Það er ekki bara að tjaldið eigi sér sögu, það sama á við um húsgögn- in. „Við erum búin að vera með sömu húsgögnin og koffortið í yfir 20 ár. Planið er, þó það gamla standi fyrir sínu að fjárfesta í nýju og stærra tjaldi á næstunni,“ segir Kári. Er fjöl- skylduhátíð Og áfram er spjallað um Þjóðhátíðina og leggja þau áherslu á að hún er fjölskylduhátíð. „Þegar krakkarnir voru yngri fór maður með þeim á barnaskemmtunina. Það var alltaf gaman, kaffi í tjaldinu, stemming og spjall, verður rigning eða ekki? Þarf að setja plast undir dúkinn eða ekki? Ef dúkurinn er og engin rigning verður tjaldið eins og gufubað og allir brjálaðir,“ segir Kári. Hver finnst ykkur hápunkturinn á þjóðhátíðinni? „Fyrir mína parta finnst mér brennan flottust,“ segir Kári. „Ég er eiginlega sammála. Brennan stendur okkur nærri. Það er handboltinn sem sér um hana og mikið lagt í að hún verði sem flottust. Það er okkar fólk sem stendur vaktina á Fjósakletti og það finnst mér mjög hátíðlegt. Svo er alltaf geggjað að sjá blysin á sunnudeginum. Annars finnst mér hátíðin verða flottari eftir því sem ég verð eldri. Ekki síst þegar maður er komin með krakka. Þá sér maður betur hvað þetta er stórfenglegt,“ segir Kristjana. Þau segja tjaldið skipta miklu máli, það er bækistöðin og tenging við gamlar hefðir sem eru þó að breytast. „Áður var þrýstingur, ef ekki var allt fyrsta flokks í tjaldinu fengu konur á sig stimpil, hún er ekki myndar- leg húsmóðir. Þetta hefur breyst og í dag spilum við þetta eftir hendinni. Byrjum ekki að baka í maí,“ segir Kristjana. Skreyttu vitlaust tjald Á hverju ári er þema í tjaldinu og Kári hefur ákveðnir hugmynd um hvað það eigi að vera í ár. Hugmynd sem hann ætlar að halda til streitu þó ekki séu allir á eitt sáttir. „Mig langar til að vera með íþróttaþema, setja búninga á súlurnar, treyjur og dót úr öllum áttum,“ segir Kári en Kristjana rifjar upp tjöldunina í fyrra þar sem Kári og Gústaf bróðir hans fengu ekki háa einkunn fyrir. „Þeir tjölduðu og sögðu svo Maríu Ýr og Silju Rós hans Gústafs hvar tjaldið var. Þær fóru og skreyttu og gerðu allt mjög fínt. Kom í ljós að þær voru að skreyta vitlaust tjald. Þurftu að taka allt niður og voru ekki glaðar. Þetta var ógeðslega fyndið,“ sagði Kristjana sem var svo heppin að vera í vinnu þegar þetta gerðist. „En sterkasta minning mín er,“ segir Kári. „Er Síðasti dansinn hans Árna Johnsen sem byrjar á yndislegu harmónikuspili. Maður á labbi niður Skvísusundið, fram hjá gosbrunninum, mölin í kring brakar undir fæti, ljósin og Síðasti dansinn hljómar í græjunum. Yndislegt.“ „Maður er stoltur að við skulum halda úti svona stórri útihátíð. All- ir svo glaðir, til í hjálpa hver öðr- um og það er svo gaman,“ segir Kristjana og Kári tekur undir það. „ÍBV skiptir bæjarfélagið miklu máli. Allt þetta fólk sem hingað kemur vegna viðburða á vegum ÍBV, TM-mótið, Orkumótið og þjóðhátíðin skilar miklum pen- ingum inn í samfélagið. Ekki síst til fyrirtækja í þjónustu. Gisting, veitingahús og fatabúðir njóta góðs af. ÍBV er ótrúlegur partur í því að skapa peninga fyrir Vest- mannaeyjar. Það verður að bera virðingu fyrir því,“ segir Kári. Sjálf eru þau á fullu í ferða- mennsku og nóg að gera um helgina stóru. Kristjana stjórnar og nú er Kári með klósettburstann á lofti en ekki handboltann. En það breytist í ágúst.Ekki fer sögum af hæfileikum Kára á gítarinn. Í Dalnum, Kristjana, Klara, Kári og Kristján í góðum gír. ” Sterkasta minning mín er Síðasti dansinn hans Árna Johnsen sem byrjar á yndislegu harmónikuspili. Maður á labbi niður Skvísusundið, fram hjá gosbrunninum, mölin í kring brakar undir fæti, ljósin og Síðasti dansinn hljómar í græjunum. Yndislegt.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.