Fréttir - Eyjafréttir - 03.08.2023, Side 17
3. ágúst 2023 | | 17
þrjú gigg; barna, frumsyngja og
síðan um kvöldið. Síðan er það
bara beint í háttinn, sofa í fimm
og hálfan tíma og beint í dallinn.
Þetta verður rosalegt. Rosaleg
keyrsla.”
En hvernig ertu úti á sjó? „Ég
hef eiginlega alltaf sloppið við að
fara í löngu ferðina, svona oftast.
Hingað til hefur verið fínt sko en
ég lofa engu. Ég hef gaman af því
að fara í Herjólf, það er einhver
svona stemning að mæta og láta
eins og túristi sem hefur aldrei
farið á sjó áður og reyna að standa
í fæturnar og fá nojuna að maður
sé að verða sjóveikur.”
Samið í snjóþungum mars
Eftirlætis þjóðhátíðarlag Gauta er
„Lífið er yndislegt” með Hreimi
Erni Heimissyni og segir hann
það hafa kjarnað nýtt tímabil af
þjóðhátíðarlögum. „Við leituðum
alveg í lagið að einhverju leyti
svona án þess að fara að stela.
Það er auðvitað rosalega erfitt að
vera bara í apríl eða snjóþungum
mars að semja um Þjóðhátíð því
maður er náttúrulega ekkert þar.
Við þurftum því svolítið að loka
augunum, skoða gamlar myndir
og fara yfir katalogginn til að fá
þetta aðeins í æð.”
Hvað þarf þjóðhátíðarlag að
hafa? „Kassagítar og svo er
nauðsynlegt að þetta sé lag sem
að fólk getur sungið með. Þetta
má ekki vera of flókið og þetta má
ekki vera of kúl heldur þarf þetta
að vera svona temmilega næs,
rúllandi í gegn. Síðan finnst mér
einhvern veginn nauðsynlegt að
það sé hægt að búta það niður og
að það sé hægt að taka það í alls
konar formum, eins og á kassagít-
ar í tjaldinu eða það að kór geti
sungið það eða hvað sem er. Bara
að fólk geti tekið þátt í því að
flytja lagið sem auðvitað styrkir
lagið og gerir það stærra.”
Hvern myndir þú vilja sjá vera
með þjóðhátíðarlagið næst?„Ég
skora á þjóðhátíðarnefnd að fá
einhvern af yngri kynslóðinni af
konum til að spreyta sig á laginu
og gefa kyndilinn áfram því við
eigum svo endalaust af flottu tón-
listarfólki. Það er erfitt að nefna
eitthvað eitt nafn en ég skora
allavega á að það verði valið vel
og að einhver nýr, sem hefur ekki
samið lagið áður, fái kyndilinn á
næsta ári.”
Nauðsynlegt að passa upp
á hvort annað
„Það sem hefur heillað mig
sérstaklega svona í seinni tíð er
að taka eftir hvað þetta er mikil
fjölskylduskemmtun yfir daginn.
Auðvitað eru flestir sem stefna
að því að skemmta sér vel en það
er því miður alltaf eitt og eitt fífl
sem skemmir fyrir heildinni. Það
er rosalega nauðsynlegt að við
tökum öll þátt í því að passa upp
á hvort annað og að við förum
varlega. Þetta á að snúast um ást
og umhyggju, en það eru alltaf
einhverjir menn að stjána bláast
og aðrir í einhverjum fáránlegum
hlutum.”
Spenntur fyrir Slippnum
„Ég elska að fara til Gísla á
Slippinn og það er alltaf to do á
árinu hjá mér að fara til hans að
borða. Ætli við fjölskyldan séum
ekki bara spenntust fyrir því að
fara til hans og síðan bara labba
um og leyfa börnunum að upplifa
skemmtunina yfir daginn og bara
einhvern veginn vera meðvituð
um sig í geðveikri náttúru.”
Ætliði að kíkja eitthvað í hvítu
tjöldin? „Já, verður maður ekki
að gera það? Ég allavega stoppa
alltaf hjá Þuru Stínu og fjölskyldu
og konan mín þekkir eitthvað lið
líka. Ég væri að ljúga ef ég væri
ekki að segja að ég er ótrúlega
spenntur fyrir því að labba á milli
tjalda og vera lukkutröllið í ár og
allir bara eitthvað vúú, þúsund
hjörtu!” segir Gauti og hlær.
Gauti um borð í Herjólfi ásamt
Benjamíni Bent Árnasyni,
trommara.
- hluti af samfélaginu síðan 1974
ERTU EKKI
ÖRUGGLEGA
Í ÁSKRIFT?
Það er einfalt að gerast
áskrifandi á eyjafrettir.is