Fréttir - Eyjafréttir - 03.08.2023, Blaðsíða 20
20 | | 3. ágúst 2023
Kristín Halldórsdóttir er með-
stjórnandi Kvennakórs Vest-
mannaeyja og átti upphaflega
hugmyndina af stofnun kórsins.
Kristín hefur frá upphafi verið
formaður en á síðasta aðalfundi
ákvað hún að stíga til hliðar sem
formaður og Helga Björk Georgs-
dóttir tók við keflinu.
Kvennakór Vestmannaeyja hefur
tvö ár í röð tekið þátt í Þjóðhá-
tíðarlaginu og heyrði blaðamaður
Eyjafrétta í Kristínu um þetta
skemmtilega verkefni.
Hvernig kom það til að kvenna-
kórinn varð að veruleika? „Ég
ákvað eitt kvöld í febrúar 2020
að skella í eina Facebook færslu
á þeirri stórskemmtilegu síðu
„Kvenfólk í Eyjum“ og kanna
hvort ég myndi ekki finna nokkrar
konur með mér í smá sönghóp
eða jafnvel lítinn kór. Ég veit
nefnilega að það er ótrúlega mikið
af Eyjamönnum sem elska að
syngja og held að það sé okkur
í blóð borið. Það stóð ekki á
viðbrögðum við þessari færslu
minni en 180 kommentum síðar
var ákveðinn stofnfundur kórsins
1. mars 2020.
Á sjötta tug kvenna mætti á
stofnfundinn og hófust æfingar
stuttu síðar. Starfið hefur samt
ekki gengið áfallalaust fyrir sig
og nokkrir hnökrar hafa vissulega
verið á starfi og rekstri kórsins
síðan þá. Við könnumst öll
við orð eins og hópamyndanir,
fjöldatakmörk og sóttvarnarreglu
og setti sú uppákoma sannarlega
strik í reikninginn hjá þessum
nýstofnaða kór strax í upphafi
bæði varðandi æfingar og rekstur
kórsins sem varð rosalega þungur
á þessum tíma. En með dyggri
aðstoð nokkurra fyrirtækja hér í
Eyjum tókst okkur að halda þessu
öllu gangandi og erum við þeim
fyrirtækjum ævinlega þakklátar.
Í dag eru 30 konur starfandi í
kórnum og ótrúlega skemmtilegur
og fjölbreyttur hópur.“
Hvernig gengur undirbún-
ingurinn fyrir Þjóðhátíðina?
„Undirbúningur gengur bara vel.
Hluti kórsins fór í upptökur á
þjóðhátíðarlaginu í apríl ásamt
karlakórnum sem heppnuðust vel
og má heyra kórana óma undir
í viðlögum og svörum í laginu.
Við eigum svo eftir að taka eina
æfingu í Þjóðhátíðarvikunni. Þetta
er frekar auðvelt sem við erum að
gera en við syngjum viðlagið og
erum með tvær línur á öðrum stað
í laginu. Þetta er alls ekki mikil
vinna, bara gaman.
Hópurinn á Þjóðhátíðinni mun
samanstanda af 22 konum úr
Kvennakór Vestmannaeyja og svo
er Karlakór Vestmannaeyja með
okkur þannig að það má búast við
myndalegum hópi Eyjamanna á
sviðinu í ár.“
Magnað ævintýri
Hvernig er upplifunin að fá að
taka þátt í Þjóðhátíðarlaginu?
„Það eru allir spenntir fyrir þessu
held ég. Þetta er annað árið í röð
sem okkur hlotnast sá heiður að
taka þátt í frumflutningi Þjóð-
hátíðarlagsins og þetta er alveg
mögnuð tilfinning að standa uppi
á þessu risastóra sviði og horfa
yfir brekkuna.
Klara Elías og Emmsjé Gauti eru
alveg svakalega ólíkir tónlista-
menn að vinna með. Klara er með
allt á hreinu og með ákveðnar
skoðanir á hlutunum á með-
an Gauti er rosalega slakur að
eðlisfari og spilar þetta meira „as
we go“. Hann er alveg hrikalega
skemmtileg týpa með endalausa
orku og maður er bara einhvern
veginn slakur í kringum hann.
Í fyrra vorum við að gera þetta
í fyrsta skiptið og það var pínu
svona stress í gangi kannski þess
vegna en núna erum við orðnar
„sjóaðar“. Gauti er ótrúlega róleg-
ur yfir þessu þannig að það róar
mann líka helling. Við hlökkum
bara rosalega til og vonandi skil-
um við þessu vel af okkur.“
Hvernig er stemmingin í hópnum
fyrir Þjóðhátíðinni? „Stemningin
er bara góð. Þjóðhátíðarfiðrildin
eru að mæta í magann og undir-
búningur í fullum gangi hjá öllum.
Hópurinn er spenntur fyrir þessu
verkefni en auðvitað er þetta
aðeins öðruvísi en í fyrra þar sem
við höfum flestar staðið á sviðinu
núna og vitum hvernig þetta geng-
ur allt saman fyrir sig.
Við erum alveg svakalega
þakklátar að fá að taka þátt í þessu
magnaða ævintýri annað árið í
röð. Það er gríðarlegur heiður
fyrir svona nýjan kór að fá svona
tækifæri og að heyra raddir okkar
kvenna óma í útvarpi oft á dag er
algjörlega ólýsanleg tilfinning.
Algjörlega ólýsanleg tilfinning
DÍANA ÓLAFSDÓTTIR
diana@eyjafrett ir. is
Kvennakór Vestmannaeyja í fullum skrúða.