Fréttir - Eyjafréttir - 03.08.2023, Side 22
22 | | 3. ágúst 2023
Jarl Sigurgeirsson hefur verið
félagi í Karlakór Vestmannaeyja
frá upphafi. Hann hefur fengið
að stýra nokkrum verkefnum og
er í stjórn kórsins þessa stundina.
Síðan hann var 13 ára hefur hann
einungis misst af tveimur Þjóðhá-
tíðum, „Eitt skiptið var ég á sjó í
Norðursjónum á dönskum trollara
og annað skiptið var ég í bústað í
Skorradal, þar sem rigndi látlaust
allan tímann. Ég sór þess þá eið
að láta slíkt aldrei henda aftur og
hef staðið við það.“
Karlakór Vestmannaeyja tekur
þátt í Þjóðhátíðarlaginu í ár, líkt
og Kvennakór Vestmannaeyja.
Þjóðhátíðin leggst vel í Jarl og er
hann ásamt Karlakórnum spenntur
fyrir komandi hátíð.
Hvernig byrjaði karlakór Vest-
mannaeyja? „Við höfðum lengi
verið að ræða um að gaman væri
að stofna karlakór í Vestmanna-
eyjum. Það varð aldrei meira en
hugmynd og við sáum ekki alveg
hvernig við gætum fengið karla
almennt til að stíga það skref að
mæta á kóræfingu. Það var svo
árið 2015 í apríl held ég, að við
sáum spjall í gangi á fésbókinni
þar sem Ágúst Halldórsson setti
fram þá staðreynd að karlmenn
í Vestmannaeyjum væru engu
minni karlmenn en íslenskir
karlmenn og gætu fullvel sungið
í karlakór, rétt eins og aðrir og
líklega mun betur.
Það var vel tekið undir þessa
umræðu hjá Ágústi og þannig
rúllaði boltinn af stað. Við geng-
um svo frá samningi við Þórhall
Barðason um að hjálpa okkur að
rúlla þessum bolta af stað. Hann
tók að sér stjórn kórsins og gekk
alveg bráðvel. Um 60 manns
mættu á fyrstu æfingarnar og var
ótrúlegt hvernig menn sem aldrei
höfðu sungið í kór, eða bara sung-
ið nokkuð yfirleitt, lögðu á sig að
æfa sig í sönglistinni.
Kórinn hefur síðan þá þróast.
Við erum ekki lengur nýstofnaðir
og margir hafa helst úr lestinni,
en eftir standa öflugir söngmenn,
sem margir kynntust sönglistinni
fyrst í kórnum, ásamt því að alltaf
detta inn nýir og nýir félagar.
Ég gæti trúað að í dag séu um
30 manns sem upplifa sig sem
meðlimi í kórnum og gætu mætt
á næstu æfingu. Við eigum samt
við að stríða það sama og önnur
félagasamtök, og það er baráttan
um mínúturnar. Tíminn er líklega
það dýrmætasta sem hver maður
á og tími nýttur til eins er ekki
nýttur til annars á meðan.“
Þjóðhátíð hápunktur hvers árs
Hvernig gengur undirbúningur-
inn? „Undirbúningur fyrir Þjóð-
hátíðina er svo sem ekki mikill.
Við sungum með í upptökum á
Þjóðhátíðarlaginu ásamt kvenna-
kórnum. Það var ekki mjög flókið,
þannig að við þurfum líklega bara
að hittast einu sinni og renna því
yfir áður en við förum á sviðið
í Dalnum. Ég býst við að við
karlarnir verðum kannski um 20
og stelpurnar í Kvennakórnum
líklega svipaður fjöldi, eða fleiri.“
Hvernig er upplifunin að fá að
taka þátt í Þjóðhátíðarlaginu?
„Það er fyrir það fyrsta mikill
heiður að hafa verið kallaðir til
þessa verkefnis. Það var frábært
að fá að taka þátt í endanlegri
útkomu lagsins, ásamt kvenna-
kórnum. Það var virkilega vel til
fundið hjá Gauta að setja okkur
með í það. Það gerði gott fyrir
lagið að fá kórana inn, en gerði
líka mjög gott fyrir kórana að fá
að vera með í slíku verkefni.
Að standa síðan á stóra sviðinu í
Herjólfsdal og frumflytja þjóðhá-
tíðarlagið er síðan tilfinning sem
er engu lík. Ég hef sjálfur upplifað
það árið 2012 og sú tilfinning
gleymist aldrei. Karlakórinn hefur
síðan staðið á sviðinu í Herj-
ólfsdal og tekið þátt í kvölddag-
skránni. Það er viðburður sem
oft er ræddur hjá liðsmönnum
kórsins sem einn af hápunktum
lífsins. Það sem er öðruvísi í ár
er líklega tvennt. Í fyrsta lagi þá
erum við bara að fara að syngja
eitt lag, þannig að við þurfum
ekki stífar æfingar fyrir Þjóðhátíð
og í öðru lagi, erum við að fara að
frumflytja Þjóðhátíðarlagið sjálft
sem er alveg frábær tilfinning.“
Hvernig er stemmningin fyrir
Þjóðhátíðinni? „Stemningin fyrir
þjóðhátíðinni er góð. Það er mikil
tilhlökkun bæði fyrir hátíðinni
og einnig okkar þætti í hátíðinni.
Hvað mig varðar þá er ég alltaf
spenntur fyrir þjóðhátíð. Helgin
er reyndar orðin að miklu leyti
vinnuhelgi, þar sem ég er með
í nokkrum tónlistarhópum sem
koma fram hér og þar á hátíðinni.
Það hefur breytt talsvert upplifun
minni af þjóðhátíð, en sú breyting
hefur bara verið til hins betra.
Fyrir mér er þjóðhátíð hápunktur
hvers árs. Ég elska allar hliðar
þjóðhátíðar og það er enginn stað-
ur í veröldinni sem ég tæki fram
yfir Herjólfsdal á Þjóðhátíð.“
Eitthvað að lokum? Ég hvet alla
sem nokkurn minnsta áhuga hafa
á söng að láta eftir sér að mæta á
æfingar hjá þeim kórum sem starf-
andi eru hér í Eyjum. Við erum
með Karlakórinn, Kvennakórinn
og Kór Landakirkju. Allt saman
frábærir metnaðarfullir kórar með
frábærum félagsskap.
Það líffræðileg og efnafræðileg
staðreynd að við iðkun söngs,
þá framleiðir líkaminn efni sem
valda vellíðan og hafa góð áhrif á
andlega og þá um leið líkamlega
heilsu fólks. Það er flókið mál að
útskýra það nánar, en einfalt mál
að upplifa. Það er bara að mæta
á æfingu hjá viðkomandi kór. Ég
get 100% lofað að öllum nýjum
félögum er tekið fagnandi og ég
get líka 100% lofað að enginn sér
eftir því að hafa látið eftir sér að
prófa.“
Karlmenn í Eyjum geta líka sungið
DÍANA ÓLAFSDÓTTIR
diana@eyjafrett ir. is
Karlakór Vestmannaeyja tekur lagið í Klettshelli sem var liður í kynningarátaki fyrir Ferðamálasamtök Vestmannaeyja