Fréttir - Eyjafréttir - 03.08.2023, Blaðsíða 25
3. ágúst 2023 | | 25
Þjóðhátíð Vestmannaeyja var
haldin fyrstu helgina í ágúst árið
1973 eins og löng hefð er fyrir.
Hún fór þó ekki fram í Herjólfsdal
eins og að vanda, að þessu sinni
var ekki unnt að halda hana í
Herjólfsdal vegna ösku sem lá yfir
dalnum enda eldgos nýafstaðið
á Heimaey. Þrátt fyrir gosið var
ákveðið að þjóðhátíðin skyldi ekki
falla niður og Knattspyrnufélagið
Týr sá um þjóðhátíðarhaldið eins
og til stóð. Þjóðhátíðin var að
þessu sinni haldin á Breiðabakka
suður á Eyju. Fyrir hátíðina voru
settar upp skreytingar, dans-
pallur, leiksvið og gosbrunnur
settur á hamrana fram við sjó,
en gosbrunnur var aðalsmerki
Týs á Þjóðhátíð. Veitingatjaldið
var að sjálfsögðu reist og götur
til þess að tjalda við hústjöld-
um. Þá var jafnframt ákveðið að
þjóðhátíðin skyldi standa aðeins
einn dag að þessu sinni til þess
að hreinsun á ösku í bænum og
önnur nauðsynleg störf myndu
ekki tefjast lengur. Milli eitt og
tvö þúsund manns sóttu þjóðhátíð
Vestmannaeyja að þessu sinni
og þótti takast vel til. Meðal
þess sem var á dagskrá varð að
sjálfsögðu hefðbundin setning
með bænarorðum og tónlistarat-
riðum. Þá tók við pokahandbolti,
eggjaboðhlaup og fleira áður en
barnadagskrá hófst. Kvöldvakan
hófst svo með fjöldasöng áður en
nokkrir skemmtikraftar stigu á
stokk sem flestir voru heimamenn
og náði hámarki þegar Árni John-
sen flutti þjóðhátíðarlagið „Við
höldum þjóðhátíð“ en Árni samdi
bæði lag og texta með skömmum
fyrirvara enda aðdragandi hátíðar-
innar ekki langur. Klukkan 23 var
síðan varðeldur og hljóp Sigurður
Reimarsson brennu kóngur einn
hring á Breiðabakka og tendraði
síðan bál. Var fjöldasöngur við
varðeldinn í eina klukkustund,
en þá hófst glæsileg flugeldasýn-
ing og síðan léku Logar, Eldar
og fleiri fyrir dansi fram undir
morgun. Vinna hófst síðan aftur
í Eyjum klukkan eitt eftir hádegi
daginn eftir.
Þessi þjóðhátíð skipti máli
Týrarinn, Magnús Birgir Guð-
jónsson eða Biggi Gauja eins og
hann er best þekktur hefur komið
að undirbúningi Þjóðhátíðar Vest-
mannaeyja frá árinu 1969. Hann
var í Þjóðhátíðarnefnd árið 1973
og tók þátt í undirbúningnum
fyrir þessa sérstöku hátíð. „Ég var
fluttur til baka og það kom aldrei
neitt annað til greina en að halda
Þjóðhátíð. Þetta var breiður hópur
fólks sem sá um hátíðina þarna og
mikil vinna sem fór í að undirbúa
þetta þó einungis væri tjaldað til
einnar nætur.“ Biggi segir það
að sjálfsögðu hafa þótt sérstakt
að standa í öllu þessu umstangi á
meðan að bærinn væri á kafi og
nóg annað að gera. „Þetta var svo
lýsandi fyrir andann sem var í
gangi í Eyjum. Það átti að byggja
bæinn aftur og það kom ekkert
annað til greina og þá var náttúru-
Ekkert annað í stöðunni en að halda Þjóðhátíð:
Menn óðu hér eld og
brennistein fyrir samfélagið
Umgjörðin var glæsileg á hátíðinni 1973 þó einungis væri
tjaldað til einnar nætur. Mynd; Sigurgeir Jónasson
SINDRI ÓLAFSSON
sindri@eyjafrett ir. is
Fyrsta þriggja daga Þjóðhátíðin var haldin á Breiðabakka árið 1974 . Mynd; Sigurgeir Jónasson