Fréttir - Eyjafréttir - 03.08.2023, Síða 28
28 | | 3. ágúst 2023
Linda Björg Ómarsdóttir og Theo-
dór Sigurbjörnsson kynntust árið
2010. Saman eiga þau Eið Gauta
fimm ára og Elísabetu Dögun
þriggja ára. Frá því þau kynnast
hefur handbolti verið partur af
lífi þeirra. Linda stundaði sjálf
handbolta þegar hún var yngri og
fór á alla kvennaleiki með móður
sinni. Linda segir að Theodór hafi
blómstrað í handbolta eftir að
ÍBV komst upp í efstu deild árið
2013 og nær eftir það frábærum
árangri.
„Það hefur verið aðdáunarvert
að fylgjast með honum bæði fyrir
mig sem maka og fyrir krakkana
sem eru svo stolt af pabba sínum
sem er sigursælasti leikmaður
ÍBV frá upphafi.“
Linda er mikill stuðningsmaður
og lætur sig ekki vanta á leiki
þegar hún getur. Hún segir þó að
það sé aðeins meira krefjandi eftir
að þau eignuðust börn. Æfingar
oft á matar- og háttatíma en hún
segir það vera þess virði, sérstak-
lega þegar þeir vinna bikar. „Að
fylgjast með deildarleikjum er
gaman en að fylgjast með leikjum
þar sem spilað er upp á bikar sé
frábært, sérstaklega gaman að
fylgjast með ÍBV þar sem liðs-
heildin er svo frábær.“
Á meðan á úrslitakeppninni um
Íslandsmeistaratitilinn stóð var
mikil spenna á heimilinu og smá
stress. Linda segir tilfinninguna,
þegar þeir unnu Íslandsmeist-
aratitilinn vera frábæra. „Að sjá
eitthvað sem búið er að vinna
markvisst að og leggja mikla
vinnu í skila sér er frábært“. Frá
hennar sjónarhorni var fögnuð-
urinn heldur rólegri en hjá liðinu
en eftir leik var fagnað upp á
Háalofti og lokahófið var síðan
haldið á föstudeginum.
Ætlar þú að vera á Þjóðhátíð?
„Nei, við ætlum að fara til Tener-
ife yfir þessa Þjóðhátíð en verðum
á næstu.“
Fyrir 12 árum síðan kynntust þau
Svava Tara Ólafsdóttir og Dagur
Arnarsson. Saman eiga þau son-
inn Flóka og rekur hún verslunina
Sölku. Svava Tara hefur alltaf haft
áhuga á handbolta. Sjálf æfði hún
handbolta og segir hún áhugann
upphaflega hafa kviknað þar og að
sjá bræður sína spila.
„Ég hef alltaf haft gaman að
fylgjast með handbolta en það er
miklu skemmtilegra að fylgjast
með einhverjum sem maður
þekkir og heldur með.“ Frá því
að Svava Tara og Dagur kynnast
hefur Dagur spilað handbolta.
Tímabilin geta verið strembin.
„Hjá mér varð þetta meiri vinna
þegar ég hóf reksturinn og ennþá
meiri vinna þegar ég eignaðist
Flóka. En við erum heppin með
fjölskyldu og ég með starfsfólk
svo það reddast oftast allt.“
Svava Tara segir handboltann
bjarga vetrinum, þar sem lítið
annað er í gangi. Hún segir að
þrátt fyrir að úrslitakeppnin hafi
verið í gangi hafi andrúmsloftið
á heimilinu verið frekar rólegt.
„Það er kannski meiri spenningur
en það er ekki mikið stress í Degi
fyrir leiki sem róar mig.“
Að vera maki og áhorfandi á
þessum mikilvægu leikjum segir
hún vera hrikalega gaman, mikill
spenningur og hvað þá þegar
umgjörðin er eins og hún var núna
í úrslitakeppninni. Hún stendur
við bakið á sínum manni sama
hvernig fer og segir þá heppna
með sjálfboðaliða og þá sem
koma að þessu. „En maður er
mikilvægastur þegar þeir tapa því
þá þurfa þeir einhvern sem hvetur
þá áfram.“
Þess var þó ekki þörf þetta árið
þar sem ÍBV hampaði Íslands-
meistaratitlinum og segir hún
tilfinninguna ólýsanlega. „Það að
sjá kærastann sinn svona glaðan
og ná markmiðum sínum er besta
tilfinningin. Hvað þá allt samfé-
lagið sem samgladdist þeim svo
mikið og gafst aldrei upp á að
hvetja þá áfram“, segir Svava Tara
að lokum.
Ætlar þú að vera á Þjóðhátíð? „Já,
ég verð á Þjóðhátíð. Það er alltaf
spenna fyrir þessari viku sem er
framundan.“
Handboltalið ÍBV náðu frábærum
árangri á tímabilinu 2022 til 2023.
Stelpunar stóðu uppi sem deildar- og
bikarmeistarar og strákarnir hömpuðu
Íslandsmeistaratitlinum. Náðu þrem-
ur titlum af sex sem verður að teljast
einstakur árangur. Árangur næst ekki
nema með mikilli vinnu leikmanna en að
baki þeirra er fjölskylda. Til að kynnast
þeirri hlið tókum við maka nokkurra
þeirra tali.
Aðdáunarvert að fylgjast með honum
Eiður Gauti, Theodór, Linda Björg og Elísabet Dögun á góðri stundu.
Ólýsanleg tilfinning
Dagur og Svava Tara eftir úrslitaleikinn.
DÍANA ÓLAFSDÓTTIR / diana@eyjafrett ir. is