Fréttir - Eyjafréttir - 03.08.2023, Síða 29
Tanya Rós Jósefsdóttir Goremyk-
ina og Gabríel Martinez Róberts-
son kynnast árið 2015. Á þeim
tíma þekktust þau lítið, þrátt fyrir
að aðeins eitt ár sé á milli þeirra.
„Við fórum meira að segja saman
á handboltamót til Svíþjóðar án
þess að eiga í samskiptum en
byrjum svo að hittast stuttu eftir
það. Hann hefur verið í handbolta
síðan hann var níu ára og var
mjög efnilegur og góður þegar
við byrjum að hittast. Hann hefur
alltaf verið góður í íþróttum en
handboltinn var snemma tekinn
fyrir.“
Sjálf spilaði Tanya handbolta öll
uppeldisárin. „Við vorum bæði
í handbolta og fótbolta á yngri
árum en völdum snemma hand-
boltann. Ég var í markinu í báðum
íþróttum en fannst spennan og
þátttaka mín í handbolta meiri og
því var valið á milli íþróttanna
auðvelt fyrir mig.“
Tanya segir gaman að fá að alast
upp í kringum íþróttina og hefur
hún gaman af því að styðja við
bakið á sínum manni. Hún mætir
á flesta heimaleiki hafi hún kost
á, bæði í 3. flokki, U-liðinu og
núna í Meistaraflokki. „Ég horfi
alltaf á útileiki en tími leikja
getur haft þar áhrif og að finna
góð gæði á streymi getur reynst
erfitt. Þó handboltatíminn sé að
mestu ánægjulegur er hann ekki
gallalaus og getur það reynst erfitt
að plana frí. Allt er það er samt
þessi virði.“
Tanya segir það auðvitað vera
auka stress þegar makinn spilar
mikilvægan leik. „Maður vill að
þeim gangi sem allra best. Gabríel
gerir miklar kröfur á sjálfan sig og
vill standast væntingar í hverjum
leik. Og ég vil að honum takist
alltaf að spila sinn besta leik.“
Á meðan á úrslitakeppninni
stóð viðurkennir hún að þau hafi
verið nokkuð sigurviss fyrst eftir
að undanúrslitum Hauka og Aft-
ureldingar lauk. „Liðið var búið
að sigra og spila með sóma alla
keppnina og litu bara mjög vel
út heilt yfir. Ég get alveg viður-
kennt það að eftir fyrsta leikinn í
úrslitum var tilfinningin hjá mér
bara svolítið; við erum með þetta
og ég var bara heilt yfir spennt
fyrir leikjunum. Hafði fulla trú á
strákunum. Það þarf mjög mikið
til að koma til baka í stöðunni 2-0
kafla og sigra á útivelli. Sérstak-
lega í Vestmannaeyjum. Hauka-
menn komu virkilega á óvart, þeir
voru bæði að spila með minni
breidd og ekki úthvíldir. Það var
síðan mjög svekkjandi að tapa
þriðja leiknum og fá ekki að vinna
á heimavelli.
Þegar fjórði leikurinn tapast svo
á útivelli var maður orðin mjög
stressaður. Við mættum síðan
tveimur og hálfum tíma fyrr upp í
íþróttahús fyrir úrslitaleikinn hér
heima og ég alveg hreint titraði
af spenningi og stressi. Gabríel
var stressaður og strunsaði fram
og til baka um heimilið fyrir leik
en varð síðan aðeins rólegri eftir
að við mættum í hús. Ég veit ekki
hvað það var en um leið og við
vorum búin að skora fyrstu mörk
leiksins varð ég mun rólegri og
fann mig bara í stemningunni. Það
var bara einhver fílingur og þeir
voru með þetta.“
Eftir úrslitaleikinn eyddi liðið
miklum tíma saman í alls kyns
skemmtun. Það var ótrúlega
gaman að sjá og fá að taka þátt
sérstaklega því við erum að
kveðja svo marga æðislega leik-
menn, þjálfara og fleiri sem koma
að handboltanum hérna í Eyjum.
Það var mikill tími tekinn frá
fyrir fögnuðinn og við konurnar
í liðinu fengum auðvitað að taka
þátt sem var ótrúlega gaman, segir
Tanya að lokum.
Ætlar þú að vera á Þjóðhátíð? Já
ég mæti í Dalinn. Það er mikil til-
hlökkun fyrir hátíðinni í ár, margir
flottir tónlistarmenn á dagskrá og
Dalurinn lítur vel út.
Titraði af spenningi og stressi
HALLDÓRA KRISTÍN ÁGÚSTSDÓTTIR 861 1105 - viðskiptafræðingur og
löggiltur fasteigna- og skipasali dora@husfasteign.is
- Lág söluprósenta
- Allar eignir sýndar af fasteignasala
- Fagljósmyndun
- er með kaupendur af raðhúsi
eða eign á jarðhæð
- Legg mikið upp úr persónulegri
og vandaðri þjónustu,
þar sem kaupendur og
seljendur eru vel upplýstir
um stöðu mála, góð eftirfylgni,
hröð en vönduð vinnubrögð
Ert þú að hugsa
um að selja
eignina þína?
VANTAR ALLAR TEGUNDIR EIGNA Á SKRÁ
VEGNA MIKILLAR SÖLU UNDANFARIÐ
S T R A N D V E G I 4 3 A