Fréttir - Eyjafréttir - 03.08.2023, Qupperneq 30
30 | | 3. ágúst 2023
Baldvin Freyr Ásmundsson er
fæddur og uppalin í Reykjavík.
Kærasta Baldvins er Eyjamær-
in Ásta Björt Júlíusdóttir sem
spilar með meistaraflokki kvenna
í handbolta. Uppeldisfélag
Baldvins er Fram en í dag spilar
hann fótbolta með KFS hér í
Eyjum.
Baldvin og Ásta kynnast á
Þjóðhátíð 2022 og flutti hann til
Eyja í apríl síðastliðnum og líkar
vel. Áður en Baldvin flutti til Eyja
fór mikill tími í að púsla saman
fjarsambandi og handbolta. Segir
hann tímabilið hafa einkennst
af mikilli stemningu í bland við
spennu og stress, „Mikill tími fór
bæði í deildina, bikarkeppnina og
svo úrslitakeppnina sjálfa,“
Að hans mati finnst honum lífið
í kringum handboltann vera ansi
venjulegt en að sjálfsögðu séu
hlutir sem þarf að taka tillit til
eins og að þetta geti verið tíma-
frekt, krefjandi en mest af öllu
skemmtilegt.
Baldvin segir stelpurnar geta
gengið stoltar frá tímabilinu „Ég
hafði það alltaf á tilfinningunni
að þær myndu taka þessa bikara
og ná þrennunni en þetta voru
auðvitað margir leikir og mikið
álag svo það gekk ekki í restina en
þær geta gengið stoltar frá þessu
tímabili með tvo bikara enda
frábærar í allan vetur.“
Að lokum deildi Baldvin því
eftirminnilegasta frá tímabilinu
sem var þegar stelpurnar urðu
bikarmeistarar. „Ásta var manna
glöðust með bikarinn og drakk
„nokkra“ bjóra á leiðinni til Eyja
og var fljót að sofna þegar við
mættum heim. Titlarnir tveir eru
að sjálfsögðu það sem stendur
upp úr og ÁFRAM ÍBV,“ segir
Baldvin að lokum.
Ætlar þú að vera á Þjóðhátíð? Ég
verð á Þjóðhátíð af sjálfsögðu,
maður er hrikalega spenntur fyrir
Þjóðhátíðinni. Þetta er mín fyrsta
Þjóðhátíð búandi á Eyjunni svo
það verður gaman að prófa að
vera „heimamaður”.
Páll Eiríksson er fæddur og
uppalinn í Vestmannaeyjum. Í
dag starfar hann á Herjólfi og er í
Stýrimannaskólanum. Maki Palla
er Ólöf Maren Bjarnadóttir mark-
maður í meistaraflokki kvenna í
handbolta. Palli og Ólöf kynnast
árið 2020 og eiga saman dótturina
Ástrós Berthu. Sjálfur spilaði Palli
handbolta og í dag spriklar hann í
handbolta sér til gamans.
Síðastliðið handboltatímabil var
bæði stressandi og spennandi og
segir Palli það vera það sem geri
þetta skemmtilegt. Það sem stóð
upp úr var klárlega Bikarmeistara-
titillinn hjá stelpunum
„Þetta er mikil skuldbinding,
mikill tími fer í æfingar, leiki og
annað sem tengist handboltanum,
en það er líka gaman og skemmti-
legt að fara á leiki sérstaklega
þegar gengur vel eins og hjá
stelpunum síðasta vetur.“
Palli segir tilfinninguna á
úrslitaleiknum í bikarnum afar
skrýtna, „Marta markmaður fékk
rautt spjald í fyrri hálfleik og Ólöf
þurfti að koma inn á og klára leik-
inn. Ég verð að viðurkenna það að
ég var alveg virkilega stressaður
þá því þetta voru hennar fyrstu
mínútur inn á handboltavelli eftir
árs pásu vegna barnsburðar. En
það kom ekki að sök og tilfinn-
ingin eftir leik var frábær“, segir
Palli að lokum.
Ætlar þú að vera á Þjóðhátíð?
„Já, ég ætla að vera á Þjóðhátíð,
maður er alltaf spenntur fyrir
Þjóðhátíð.
Parið Richard Sæþór Sigurðsson
og Harpa Valey Gylfadóttir deila
því sameiginlega áhugamáli að
æfa og spila handbolta en Richard
fæddur og uppalinn Eyjamaður.
Þegar hann var níu ára flutti hann
á Selfoss og í dag æfir hann og
spilar handbolta með Selfossi.
Richard kynnist Hörpu Valey
Gylfadóttur árið 2022 og deila
þau því sameiginlegu áhugamáli
þar sem Harpa Valey spilaði með
Meistaraflokki kvenna í handbolta
síðastliðið tímabil þegar ÍBV varð
bæði deildar -og bikarmeistari.
Harpa Valey er á förum frá
ÍBV þar sem hún hefur samið
við Selfoss til næstu þriggja ára.
Richard segir að stemmingin hjá
þeim þetta tímabil hafi verið afar
góð en þar sem þau bjuggu ekki á
sama stað þurftu þau að plana það
að hittast í kringum handboltann.
„Við reyndum að nýta útileikina
hjá Hörpu til að hittast.“
Richard segir bikarúrslitaleik-
inn hafa verið töluvert meira
stressandi en aðra leiki. „Það
var frábært að sjá þær klára báða
titlana, því maður veit hvað það
fer mikil vinna og tími í þetta.“
Richard mætti á úrslitaleikina í
bæði deild og bikar. Segir hann
gaman að þau deili þessu áhuga-
máli og fylgjast með leikjum hjá
hvort öðru. „Það var ansi sætt
að sjá lokaskotið hjá Hörpu í
leiknum gegn Val í deildinni fara
í markið á síðustu sekúndunni“,
segir Richard að lokum.
Ætlar þú að vera á Þjóðhátíð? Já
ég gerði þau mistök að mæta ekki
2016 og þau mistök koma ekki
fyrir aftur. Það er alltaf gaman að
koma í dalinn og hitta fólkið sitt.
Geta gengið stoltar frá tímabilinu
Skrýtin og frábær tilfinning
Handboltinn sameiginlegt áhugamál