Úrval - 01.06.1963, Side 19
STYRKUR 1 STORMUM LÍFSIXS
27
hámarki sinu, ef svo mætti segja,
svo að ég hringdi í hana og
bað hana aS koma. Þegar hún
kom, bað hún mig strax að gera
sér greiða. Hún sagði: „Jerry
hefði getað orðið nágranni minn,
svo að mér finnst ári hart að
hafa ekki kynnzt honum. Viltu
ekki segja mér eitthvað um
hann?“
„Skyndilega langaði mig' til að
tala um Jerry. Ég leysti nú frá
skjóðunni og sagði allt það, sem
ég hafði bælt niður með mér,
og ég flóði öll i tárum. Þetta
var fyrsta skref mitt í áttina til
þess sálarfriðs, sem fylgir upp-
gjöfinni.“
Börn, sem verða fyrir sárum
missi, eru erfitt vandamál. Hug-
hreysting barnsins kann að fel-
ast í því, að ekki einungis sé það
elskað heldur sé þess einnig
þarfnazt, þegar sorgin sækir
það heim. Eiginkona, sem misst
hafði mann sinn, sagði mér, að
áhyggjurnar út af Pétri, tíu ára
syni þeirra, hefðu skyggt á sorg
hennar. „Pétur varð undarlega
fámáll eftir dauða Davíðs. Mér
fannst ég ekki ná inn um vegg-
inn, sem hann hafði byggt um-
hverfis sig.
„Loks dag einn fór hann út á
blaðsölustað, kom með kvöld-
blaðið, settist niður i stólinn
hans Daviðs og tók að lesa. Síð-
ar kveikti liann á sjónvarpinu,
ekki á eftirlætis kúrekamynd-
inni sinni, heldur fór hann nú
að fylgjast með fréttunum. Eft-
ir kvöldmat fór hann um húsið
og gáði að hurðum og gluggum.
Hann minntist á það við mig,
að líklega yrðum við að láta
dytta að húsinu fyrir veturinn.
„Mér var nú farið að verða
ljóst, hvað hann var að gera og
hvers vegna hann hafði ekki
grátið í návist minni. Með því
að feta í fótspor föður síns, var
hann að reyna að bæta okkur
þá aðhlynningu og öryggi, sem
við höfðum glatað. Ég varð að
taka á öllu mínu viljaþreki til
þess að faðma hann ekki að mér,
en ég vildi ekki fyrir neinn mun
spilla fyrir honum þvi virðu-
lega hlutverki, sem hann hafði
nú með höndum.“
Ógerningur er að takmarka
sanna samúð við eitt augnablik.
Prestur nokkur sagði mér eitt
sinn: „Sá, sem missir ástvin, er
yfirleitt umsetinn vinum og hug-
hreystingarorðum ausið yfir
hann —• i fyrstu. En hvað ger-
ist nokkrum vikum síðar? Hinna
deyfandi áhrifa, sem áfallið
færði honum í fyrstu, gætir ekki
lengur. Þau liryggilegu störf,
sem hann varð að vinna, eru
nú um garð gengin. Vinir hans
eru aftur teknir að sinna sínu.
Hann er skilinn eftir allt of
fljótt.