Úrval - 01.06.1963, Side 22
30
Ú R VA L
sinn staS, hringdi skólabjallan
fyrsta sinni.
„Þetta var líkast einskæru
kraftaverki,“ sagSi bílstjórinn
viS mig, þegar viS virtum fyrir
okkur þetta fallega hús, sem
byggt var úr stáli og stein-
steypu. „Einn dag . . . enginn
skóli . . . og næsta dag . . . var
svo kominn skóli! ÞaS er sagt,
aS slíkt gerist nú um landiS
þvert og endilangt.“
Og slikt er einmitt aS gerast
í Mexikó. „Hraðskólinn“, sem
við vorum aS heimsækja, var
sýnishorn hinnar nýju, bylting-
arkepndu byggingaraSferðar,
sem hleypt hefur af stokkunum
geysilegri skólabyggingaröldu
um gervalla Mexíkó. Næstum
3000 slíkir, nýir skólar voru
reistir árið 1961. Þeir voru reist-
ir af ibúunum í þorpunum og
bæjunum sjálfum. Flestir þeir,
sem unnu við bygginguna, voru
sjálfboðaliðar. Og kennaraíbúð
fylgdi um helmingi þessara
skólabygginga.
Adolfo Lipez Mateos forseti
hleypti þessari byggingaröldu af
stokkunum árið 1959, og sam-
kvæmt henni á að vera búið aS
reisa 39.000 ný skólahús fyrir
árið 1970. Auk þessara „hraS-
skóla“ hafa verið byggðir skólar
á venjulegan hátt svo hundruð-
um skiptir, og þar að auki hafa
þúsundir eldri skóla verið end-
urnýjaðir. Sumir þeirra eru allt
frá 17. öld. Samtimis hefur ver-
ið stuðlað að aukinni tölu kenn-
ara með því að auka kennara-
menntun og fjölda kennaraskóla.
Og árangurinn af allri þessari
viðleitni hefur orðið geysilegur.
Aðsókn að barnaskólunum hef-
ur aukizt um 20% á þrem árum,
og ein milljón barna, sem hvorki
höfðu kennara né skólahús, þeg-
ar byggingaraldan hófst, eru nú
tekin til við að læra að lesa og
skrifa.
Þessi 11 ára áætlun mun kosta
25.000 milljónir peso (886%
milljón sterlingspund), og mun
bæði ríkisstjórnin og hin ýmsu
sveitarfélög og bæjarfélög skipta
á milli sín kostnaðinum. Þetta
er risavaxin upphæð fyrir land,
þar sem meðaltekjur hvers þegns
eru undir 3750 peso (133 ster-
lingspundum) á ári. En allir
virðast samt vilja styðja þessa
menntunarkrossferð. Allir leggja
fram fé, alls kyns félög og klúbb-
ar, verkalýðs- og iðnfélög, for-
eldrafélög o. fl. Og meðlimirnir
leggja einnig fram vinnu sem
sjálfboðaliðar, aka vörubílum,
hræra steypu, leggja alls konar
leiðslur.
Þessi áætlun hefur dregið að
sér athygli alheims, og er það
ekki að ástæðulausu. UNESCO
(Menningarsamtök Sameinuðu
þjóðanna) álítur, að aðrar van-