Úrval - 01.06.1963, Síða 24
32
ÚR VAL
Ungir, mexíkanskir liðsfor-
ingjar, sem hafa hlotið þjálfun
sem verkfræ'ðingar eða arkitekt-
ar, hafa margir hverjir lagt fram
skipulagningarhæfni sina mál-
efni þessu til hjálpar. Einn
þeirra er Enriqne Estrada Cueva
höfuðsmaður. Hann fór nýlega
með mér í smáferðalag og sýndi
mér ýmsa skóla i byggingu. Við
horfðum á þorpsbúa setja skóla-
húsin saman. Þeir gerðu það á
sama hátt og strákar búa til
brýr með hjálp mekkanós. Þeir
skrúfuðu saman bitana hvern á
fætur öðrum, þangað til grindin
var risin. Og drengirnir og
stúlkurnar, sem áttu fyrir sér að
ganga í skólann, aSstoðuðu þá á
ýmsan hátt, stolt á svipinn, t. d.
við að sækja vatn.
Húsgrindin rís með ævintýra-
legum hraða. Einu verkfærin,
sem notuð eru við byggingu
hennar, eru skrúflyklar og halla-
mælar. Sérhver bogi er settur
saman á jörðinni, og siðan er
bonum lyft með köðlum. Að
því búnu er hann skrúfaður við
steinsteyptan grunn. Þegar all-
ir bogarnir, sjö að tölu, eru risn-
ir, eru þeir tegndir með stál-
bitum báðum megin. Siðan er
öll grindin prófuð og rétt eftir
þörfum. Nálægt bænum Puebla
sáum við 8 manna vinnuflokk
reisa eina húsgrind á 2
tímum. Og það tók ekki lengri
tíma að skrúfa hurðir og glugga
fasta i grindina og festa allar
Ieiðslur.
Þegar þeim hluta verksins er
lokið, er um margar leiðir að
velja. Sé steinn, upáhaldsefni
þorpsins, eru ytri veggirnir
hlaðnir úr honum. Annars eru
notaðir tilbúnir tigulsteinar,
brenndir eða sólþurrkaðir (ad-
obe). í einu þorpi i heitasta
hluta Mexíkó horfðum við á
menn setja stráþak á skólann í
stað þakskífa eða annarra efna,
sem venjulegri eru. í sumum
bæjum eru nokkrar byggingar-
einingar tengdar saman, hálf
tylft eða fleiri, svo að þannig
myndast nokkuð stór skóli.
Stundum eru allar einingarnar
í beinni línu, en sé byggt í halla,
rís hver einingin ef til vill upp
af annarri, þ. e. á misháum
grunni. í olíubænum Huauc-
hinango voru einingarnar tengd-
ar þannig saman, að úr þeim
varð tveggja hæða bygging með
tíu kennslustofum.
Skólarnir eru byggðir með
þannig fyrirkomulagi, að allur
kostnaður er greiddur jafnóðum.
Stundum tekur því byggingin
lengri tíma, allt upp í ár, svo að
þorpsbúum takist að safna fyrir
sinum hluta byggingarkostnað-
arins og ekki verði um neina
skuld þeirra að ræða. Stundum
leggja þorpsbúar fram sinn